Hætt við að borga leikskólastarfsmönnum 75 þúsund fyrir að fá vini og ættingja til starfa

Í gær var greint frá því að starfs­menn á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar áttu að fá 75 þús­und króna launa­auka ef þeir fá vini sína eða ætt­ingja til starfa á leik­skólum. Félag leik­skóla­kenn­ara sagði „Tupperware píramída hvatn­ingu“ ólík­lega til árang­urs.

Skúli Helgason er formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar og borgarfulltrúi Samfylkingar.
Skúli Helgason er for­maður skóla- og frí­stunda­ráðs Reykja­vík­ur­borgar og borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar. Mynd: Aðsend

Reykja­vík­ur­borg hefur hætt við að borga leik­skóla­starfs­mönnum 75 þús­und króna launa­auka fyrir að hvetja vini eða ætt­ingja til að koma til starfa í leik­skólum borg­ar­innar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá borg­inni í dag.

Þar segir að ákveðið hafi verið að leggja til­lög­una til hliðar „en leggja því meiri kraft í að þróa aðrar hug­myndir eins og nýja aug­lýs­inga­her­ferð, efla íslensku­kennslu og bæta mót­töku nýliða, þróa aðgengi­legra umsókn­ar­kerfi, auka grein­ing­ar­vinnu, efla stuðn­ing við ein­staka leik­skóla, og sam­starf við ráðn­inga­stofur og Háskóla Íslands.“ Þá verði leitað leiða til að hlúa betur að starfs­um­hverf­inu til að draga úr starfs­manna­veltu.

[links]Kjarninn greindi fyrstur miðla frá því í gær að Reykja­vík­ur­borg ætl­aði sér að ráð­ast í nokkrar aðgerðir til þess að reyna að laða fólk að störfum á leik­skól­um, meðal ann­ars nýja aug­lýs­inga­her­ferð og verk­efni sem felst í að greiða starfs­mönnum leik­skóla fyrir að fá vini og ætt­ingja til starfa í skól­un­um. Alls er um að ræða 75 þús­und króna launa­auka sem greiddur er út þegar vin­ur­inn eða ætt­ing­inn er búinn að starfa í þrjá mán­uði á leik­skóla.

Áætl­aður kostn­aður við launa­auk­ann nam fimm millj­ónum króna af þeim 20 milljón krónum sem borg­ar­ráð sam­þykkti á fimmtu­dag að ráð­stafa til aðgerða sem ætlað er að fjölga starfs­mönnum á leik­skólum borg­ar­inn­ar.

Í til­lögum frá skóla- og frí­stunda­sviði sem lagðar voru fram af Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra í borg­ar­ráði sagði að fyr­ir­huguð fjölgun leik­skóla­plássa á næstu árum fæli í sér að fjölga þurfi starfs­mönnum á leik­skólum um 250-300 næstu 3-4 árin. Búast mætti við því að það verði krefj­andi, þar sem ekki hafi tek­ist að full­manna leik­skóla borg­ar­innar í haust.

Mikið gagnrýni

Áformin um að borga starfs­fólki til að hvetja vini og ætt­ingja til að starfa á leik­skólum voru harð­lega gagn­rýnd víða.

Félag leik­skóla­kenn­ara sagði til að mynda í stöðu­upp­færslu á Facebook að sú til­laga „að búa til Tupperware píramída hvatn­ingu vegna ráðn­inga starfs­fólks í leik­skóla“ væri langt því frá lík­leg til þess að ráð­ast á rót mönn­un­ar­vanda í leik­skól­um.

Í færslu félags­ins sagði að stærsta verk­efni sveit­ar­fé­laga væri að fjölga leik­skóla­kenn­urum og hafi lengi ver­ið. „Leik­skóla­stigið hefur þró­ast hratt sem skóla­stig. Ákvarð­anir sam­fé­lags­ins um að taka sífellt inn yngri og yngri börn án þess að hugsa málið fylli­lega til enda hefur aukið á vand­ann, aukið mönn­un­ar­þörf og hægt á hlut­falls­legri fjölgun leik­skóla­kenn­ara þrátt fyrir mikla fjölgun í leik­skóla­kenn­ara­námi und­an­farin ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár