Ætla að greiða starfsmönnum leikskóla 75 þúsund fyrir að fá vini eða ættingja til starfa

Starfs­menn á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar munu geta fengið 75 þús­und króna launa­auka ef þeir fá vini sína eða ætt­ingja til starfa á leik­skólum. Ráðast á í aug­lýs­inga­her­ferð og frek­ari aðgerðir til að fá fólk til starfa á leik­skólum borg­ar­innar.

Útlit er fyrir að fjölga þurfi leikskólastarfsmönnum um 250-300 í borginni á næstu 3-4 árum. Ekki tekst að manna leikskólana til fulls í dag.
Útlit er fyrir að fjölga þurfi leik­skóla­starfs­mönnum um 250-300 í borg­inni á næstu 3-4 árum. Ekki tekst að manna leik­skól­ana til fulls í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Reykja­vík­ur­borg ætlar sér að ráð­ast í nokkrar aðgerðir til þess að reyna að laða fólk að störfum á leik­skólum, meðal ann­ars nýja aug­lýs­inga­her­ferð og verk­efni sem felst í að greiða starfs­mönnum leik­skóla fyrir að fá vini og ætt­ingja til starfa í skól­unum. Alls er um að ræða 75 þús­und króna launa­auka sem greiddur er út þegar vin­ur­inn eða ætt­ing­inn er búinn að starfa í þrjá mán­uði á leik­skóla.

Áætlaður kostn­aður við launa­auk­ann nemur fimm millj­ónum króna af þeim 20 milljón krónum sem borg­ar­ráð sam­þykkti í gær að ráð­stafa til aðgerða sem ætlað er að fjölga starfs­mönnum á leik­skólum borg­ar­innar.

Í til­lögum frá skóla- og frí­stunda­sviði sem lagðar voru fram af Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra í borg­ar­ráði í gær segir að fyr­ir­huguð fjölgun leik­skóla­plássa á næstu árum feli í sér að fjölga þurfi starfs­mönnum á leik­skólum um 250-300 næstu 3-4 árin. Búast megi við því að það verði krefj­andi, þar sem ekki hafi tek­ist að full­manna leik­skóla borg­ar­innar í haust.

Auk þeirra aðgerða sem þegar hafa verið nefndar er lagt til að bæta aug­lýs­ingar leik­skóla á umsókn­ar­vef borg­ar­innar og búa til sér­staka lend­ing­ar­síðu á net­inu fyrir leik­skól­ana, þar sem „dregnar verða fram mik­il­vægar upp­lýs­ingar um störfin og þau hlunn­indi sem stör­f­unum fylgja.“

Þá er áformað að efla mót­t­töku nýliða í leik­skól­unum og reyna að draga úr því að þeim sé „hent beint í djúpu laug­ina“ og „stór­efla íslensku­kennslu,“ helst á þann máta að hún fari fram áður en fólk hefji störf á leik­skól­unum. Talið er að þetta myndi stækka umsækj­enda­hóp­inn.

Einnig er áformað að ráð­ast í frek­ari grein­ingar á umsóknum á leik­skól­ana og starfs­manna­veltu, meðal ann­ars á því hvernig laða megi fleira ungt fólk til starfa á leik­skólum og hvað útskýri starfs­lok á leik­skólum borg­ar­innar.

[adspot]

Áformað er að ráða sér­stakan mannauðs­ráð­gjafa til eins árs til þess að halda utan um þetta átaks­verk­efni í mannauðs­málum leik­skól­anna, en áætl­aður kostn­aður við það er um 12 millj­ónir króna.

Einnig er áætlað að styðja sér­stak­lega við leik­skóla sem eru í miklum vanda vegna mönn­unar um þessar mundir með tíma­bund­inni ráðn­ingu aðila úr hópi núver­andi eða fyrr­ver­andi leik­skóla­stjóra til þriggja mán­aða. Þessi starfs­maður ætti að greina helstu vanda­málin sem leik­skóla­stjórar standa frammi fyrir og leita á þeim lausna og veita stuðn­ing og hand­leiðslu. Áætlaður kostn­aður við þetta er þrjár millj­ónir.

Ekki ráðist að rót vandans

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, gagn­rýndi þessar áform­uðu aðgerðir í bókun sinni á fund­inum í gær og sagði að ekki væri ráð­ist að rót vand­ans, sem væru launa­kjör og starfs­að­stæður.

„Það verður að horfast í augu við rót vand­ans og skoða raun­veru­legar ástæður þess af hverju illa gengur að ráða fólk til starfa á leik­skólum en ekki setja það á herðar starfs­fólks að fá nýja inn. Sama hversu mikið er aug­lýst eða fólk hvatt til þess að sækja um, þá stendur eftir sú staða að hér eru störf sem ekki er mikið greitt fyrir. Starfs­fólk leik­skól­ans ætti að fá launa­auka fyrir að vinna mik­il­væg­asta starf í heimi eins og aug­lýs­inga­her­ferðir hafa sann­ar­lega bent rétti­lega á. Starfs­fólk leik­skóla hefur verið undir miklu álagi, hefur þurft að hlaupa hratt og sinna miklu undir álagi, sér­stak­lega þegar áhrifum COVID er bætt ofan á,“ sagði Sanna Magda­lena í bókun sinni.

Hún bætti því við að hún sæi ekki hvernig það að koma á launa­auka sem sumir fengju og aðrir ekki fyrir að útvega starfs­fólk, yrði til þess að bæta stöð­una.

„Það er á ábyrgð borg­ar­innar að manna stöður, ekki á að færa þá ábyrgð á starfs­fólk leik­skóla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár