„Kæri bæjarstjóri/kóngur”

Börn í Kirkju­bæj­ar­skóla vilja rusla­tunnur, end­ur­bættar vatns­lagnir, nýrra nammi í búð­ina og Hopp-raf­skútur. Þá vilja þau gjarnan geta kom­ist í bíó. Sveit­ar­stjórn Skaft­ár­hrepps tók erindi þeirra og ábend­ingar til umfjöll­unar á fundi sínum.

Kirkjubæjarskóli.
Kirkju­bæj­ar­skóli. Mynd: Klaustur.is

„Kæri bæj­ar­stjóri/kóngur. Getur klaustur haft bíó? Það væri svo skemmti­legt, gerðu það. Kveðja, Gabríel Fannar, 6. bekk.“

Gabríel Fannar er Unason og sendi bréf um þetta mál til sveit­ar­stjóra Skaft­ár­hrepps nýverið. Hann var ekki eini grunn­skóla­nem­inn sem ákvað að skrifa sveit­ar­stjór­anum því auk erindis hans var bréf frá nem­endum í 8.-10. bekk í Kirkju­bæj­ar­skóla tekið fyrir á síð­asta fundi sveit­ar­stjórnar.

[adspot]

Því það er ekki aðeins afþrey­ing á borð við bíó sem brennur á unga fólk­inu í Skaft­ár­hreppi. Þeim er annt um nátt­úr­una, vilja veg­bætur, Hopp-raf­skútur og fleiri leik­tæki.

Hér eru ábend­ingar nem­enda 8.- 10. bekkjar sem lagðar voru fyrir sveit­ar­stjórn á fundi hennar 19. októ­ber:

„Við viljum fá rusla­tunnur aftur á bæina og á Klaustur því ef það eru ekki rusla­tunnur þá eru meiri líkur á að fólk hendi rusli í nátt­úr­una,“ er það fyrsta sem unga fólkið setur á blað. Og vatns­málin eru þeim einnig hug­leikin. „Skipta um vatns­lagnir í skól­anum því vatnið þarf að renna í ca 30 mín til að kólna en er oft brúnt á lit­inn og vont bragð af því“.

Svo vilja þau að fram­kvæmdir við skól­ann verði kláraðar. „Klára skól­ann að utan (ekk­ert búið að vinna við það lengi) og fylla í hol­una hjá mötu­neyt­inu.“

Skóla­lóðin er þeim einnig ofar­lega í huga. „Það vantar leik­tæki sem henta okkar ald­urs­hóp eins og köngu­ló­ar­rólu, apar­ólu og úti körfu­bolta­völl.“

Versl­anir fá svo létt á bauk­inn frá börn­unum. „Það er mjög dýrt að búa úti á landi svo það er dýrt að versla í búð­inni,“ skrifa þau. Og úrvalið er of lítið að þeirra mati og „oft gam­alt nammi í sjopp­unni.“

Til að kom­ast um Kirkju­bæj­ar­klaustur vilja krakk­arnir svo gjarnan fá aðgang að raf­skútum og „Hopp-hlaupa­hjól“ eru á óska­list­anum.

En þau taka líka fyrir alvar­legri mál sem snerta öryggi borg­ar­anna. „Það þarf nauð­syn­lega að hefla Með­al­lands­veg­inn oftar því hann er hættu­legur og fer illa með bíl­ana,“ skrifa þau. „Við skorum á þig að fá þér bíltúr og prófa að keyra hann sjálfur,“ bæta þau við og beina þar orðum sínum til sveit­ar­stjór­ans, Einars Krist­jáns Jóns­sonar, sem þau kveðja með fal­legum hvatn­ing­ar­orðum og hlýjum óskum um hið nýja starf: „Vertu ann­ars vel­kom­inn í sveit­ina okkar og von­andi muntu kunna vel við þig.“

Undir bréfið skrifa Amelía Íris, Ásgeir Örn, Bríet Sunna, Garðar, Iðunn, Júlía, Friðrik, Vilhelm Logi, Daníel, Sverrir Máni, Ásgeir Marinó og Ólöf Ósk.

[adspot]

Sveit­ar­stjórnin fjall­aði um bæði erindin á fundi sínum nú í októ­ber. Hún þakk­aði Gabríel Fannari fyrir að vekja athygli á kvik­mynda­mál­unum og sam­þykkti sam­hljóða að vísa því til menn­ing­ar­mála­nefndar sveit­ar­fé­lags­ins „með ósk um að nefndin athugi þann mögu­leika að hafa kvik­mynda­sýn­ingar á Kirkju­bæj­ar­klaustri í sam­vinnu við stóru kvik­mynda­húsin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“.

Bréf nem­enda 8.-10. bekkjar var einnig lagt fram til kynn­ingar og þakkar sveit­ar­stjórn þeim ábend­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár