Brottfall úr framhaldsskólum hefur aldrei mælst minna hjá Hagstofunni

Hag­stofan hefur fylgst með brott­falli nem­enda úr fram­halds­skólum allt frá árinu 1995, og aldrei mælt það minna en hjá þeim árgangi nýnema sem hóf nám árið 2016. Tæp 62 pró­sent nem­anna höfðu útskrif­ast árið 2020.

Brottfall kvenna úr framhaldsskólanámi er um 15 prósent á móti 25 prósent hjá körlum.
Brott­fall kvenna úr fram­halds­skóla­námi er um 15 pró­sent á móti 25 pró­sent hjá körlum. Mynd: Pexels

Brott­hvarf nem­enda á fram­halds­skóla­stigi hefur ekki mælst minna allt frá árinu 1995 en það gerir nú, sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Brott­fall náði hámarki hjá þeim nýnemum sem hófu nám í fram­halds­skóla árið 2003, en er staðan var tekin fjórum árum seinna höfðu 29,6 pró­sent þess hóps hætt námi án þess að útskrif­ast. Þetta hlut­fall var komið niður í 19,9 pró­sent, hjá nýnemum árs­ins 2016, er staðan var tekin árið 2020.

Braut­skrán­ing­ar­hlut­fall fjórum árum eftir að nám hefst hefur aldrei mælst hærra en það gerir hjá þessum árgangi nýnema, en nærri 62 pró­sent þeirra sem hófu nám árið 2016 höfðu útskrif­ast árið 2020. Rúm 18 pró­sent voru enn í námi án þess að hafa útskrif­ast.

Í umfjöllun á vef Hag­stof­unnar um þessar tölur kemur fram að brott­fall úr námi er meira hjá körlum en konum, en af nýnemum árs­ins 2016 höfðu tæp 25 pró­sent karla hætt námi án þess að útskrif­ast á meðan að hið sama var uppi á ten­ingnum hjá 15 pró­sentum kvenna.

Meira brott­hvarf er í starfs­námi en bók­námi, en um þriðji hver nýnemi sem hóf starfs­nám árið 2016 hafði hætt í námi án þess að útskrif­ast þegar staðan var tekin fjórum árum síðar.

[adspot]

Brott­hvarf var einnig almennt meira í skólum í lands­byggð­unum en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þó hættu færri nýnemar í starfs­námi í skólum á lands­byggð­inni án þess að útskrif­ast en nýnemar í starfs­námi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Brottfall mun meira hjá innflytjendum – en þó aldrei verið minna

Fram kemur í tölum Hag­stof­unnar að rúm­lega 46 pró­sent inn­flytj­enda, sem hófu nám í dag­skóla á fram­halds­skóla­stigi haustið 2016, höfðu hætt námi án þess að útskrif­ast fjórum árum seinna.
„Það er minnsta brott­hvarf þessa hóps í mæl­ingum Hag­stof­unnar en þó mun meira en á meðal nýnema með íslenskan bak­grunn,“ segir á vef Hag­stof­unnar, en brott­hvarf nýnema hausts­ins án erlends bak­grunns var tæp 18 pró­sent og lægra, eða rúm 13 pró­sent á meðal nem­enda sem voru fæddir erlendis en með íslenskan bak­grunn.

Á vef Hag­stof­unnar kemur fram að brott­hvarf nem­enda úr skóla megi skil­greina á marga vegu. Í talna­efni Hag­stof­unnar er hins vegar miðað við svo­kallað árgangs­brott­hvarf, þar sem nýnemum í dag­skóla að hausti er fylgt eftir og staðan tekin eftir fjögur ár, sex ár og sjö ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár