Telja að Alliance-húsið og byggingarréttur séu öllu meira en 650 milljóna virði

Við Granda­garð 2 stendur Alliance-húsið, sem Reykja­vík­ur­borg keypti fyrir 10 árum og gerði upp að utan. Frá 2018 hafa verið gerðar tvær til­raunir til að selja það, en það hefur ekki enn gengið. Nú á að reyna í þriðja sinn.

Í Alliance-húsinu er í dag Sögusafnið og veitingastaðurinn Matur og drykkur. Á lóðinni má byggja 4.193 nýja fermetra ofanjarðar, undir verslun, þjónustu, íbúðir og hótelstarfsemi, samkvæmt skipulagi.
Í Alliance-hús­inu er í dag Sögu­safnið og veit­inga­stað­ur­inn Matur og drykkur. Á lóð­inni má byggja 4.193 nýja fer­metra ofanjarðar, undir verslun, þjón­ustu, íbúðir og hót­el­starf­semi, sam­kvæmt skipu­lagi. Mynd: Úr fasteignaauglýsingu frá Reykjavíkurborg.

Reykja­vík­ur­borg bár­ust þrjú til­boð í Alliance-húsið við Granda­garð 2 eftir að húsið og með­fylgj­andi bygg­ing­ar­réttur á lóð­inni voru aug­lýst til sölu í febr­úar á þessu ári. Öllum til­boð­unum var hafnað, en það hæsta hljóð­aði upp á 650 millj­ónir króna. Borg­ar­ráð sam­þykkti að hefja nýtt sölu­ferli á fundi sínum í síð­ustu viku.

Það verður þriðja sölu­ferlið sem ráð­ist hefur verið í á eign­inni, sem Reykja­vík­ur­borg keypti árið 2012 á um 340 millj­ónir króna. Borgin hefur svo varið yfir 100 millj­ónir í lag­fær­ingar á ytra byrði húss­ins, sem er friðað.

Höfnun kauptil­boð­anna byggði meðal ann­ars á því að til­boðin væru lág í ljósi verð­mats, en KPMG verð­metur húsið og upp­bygg­ing­ar­rétt­indin á lóð­inni á 870 til 1.260 millj­ónir króna.

Í grein­ar­gerð frá borg­inni segir að óvissa um verð­matið sé umtals­verð þar sem ekki liggi fyrir kostn­að­ar­mat við end­ur­bætur húss­ins, auk þess sem verð­mæti lóða geti breyst hratt. Hins vegar var það nið­ur­staðan að „sterkar vís­bend­ingar“ væru til að staðar um að til­boðið væri of lágt og „tals­vert undir því sem eðli­legt matsvirði eign­ar­innar gæti verið miðað við gild­andi deiliskipu­lag.“

Heimilt að byggja 4.193 nýja fermetra ofanjarðar

Upp­runa­legur hluti Alliance-húss­ins er skráður 2.007 fer­metrar, en nýrri hluti þess, sem á að rífa sam­kvæmt skipu­lagi reits­ins, er 470 fer­metrar. Samkvæmt deiliskipu­lagi er heim­ilt bygg­ing­ar­magn á lóð­inni alls 7.600 fer­metrar, þar af 6.200 ofanjarðar og 1.400 fer­metra bíla­kjall­ari.

Það má því byggja alls 4.193 nýja fer­metra ofanjarðar og heim­ilt er að auka bygg­ing­ar­magn enn frekar með milli­loftum, sam­kvæmt skil­málum í skipu­lagi reits­ins, sem er frá árinu 2018.

[adspot]

Gert er ráð fyrir því að á efri hæðum nýbygg­ingar skuli vera gisti­starf­semi eða önnur skrif­stofu- og atvinnu­starf­semi, auk íbúða í efri hæðum nýbygg­ingar sem snýr að Mýr­ar­götu. Á neðri hæðum er svo gert fyrir versl­unum, veit­inga­starf­semi og léttri atvinnu­starf­semi í að lág­marki fimm aðskildum rýmum.

Vildu ekki byggja hótelrými heldur íbúðir

Í 650 millj­óna til­boð­inu, frá félag­inu E&S 119 ehf., sem tekið var til skoð­unar af hálfu borg­ar­innar, var gengið út frá því að ekki yrði hót­el­starf­semi á efri hæðum, heldur yrðu þar íbúðir.

Skipu­lags­full­trúi borg­ar­innar taldi að kauptil­boðið væri því ekki í sam­ræmi við þá skil­mála sem væru í gildi á svæð­inu og gengið hefði verið út frá í aug­lýs­ingum á reitnum. Það var því ekki nóg með að til­boðið þætti í lægra lagi, heldur þyrfti einnig að gera skipu­lags­breyt­ingar til þess að leyfa íbúðir, meðal ann­ars með til­liti til bíla­stæða­mála, dval­ar­svæða og birtu­magns í nýbygg­ingum. Sagði í umsögn skipu­lags­full­trúa að ef gera þyrfti slíkar breyt­ingar á skipu­lagi kæmi upp sú spurn­ing hvort allir bjóð­endur hefðu setið við sama borð.

Borgin mun því að gera þriðju til­raun­ina til þess að reyna að selja Alliance-húsið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár