Tap á A-hluta Reykjavíkur 8,9 milljarðar á fyrri hluta árs – Miklu meira tap en ætlað var

Borg­ar­stjóri segir að stóra áskor­unin í rekstri sveit­ar­fé­laga séu þær fjár­hæðir sem þau eigi útistand­andi hjá rík­inu vegna þjón­ustu við fatl­aða. Borg­ar­ráð hefur sam­þykkti að setja í for­gang að leið­rétta hall­ann sem sé á fjár­hags­legum sam­skiptum við ríkið.

Nýr meirihluti tók við stjórnartaumunum í Reykjavík í byrjun júní.
Nýr meiri­hluti tók við stjórn­ar­taumunum í Reykja­vík í byrjun júní. Mynd: Bára Huld Beck

Í árs­hluta­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins, sem birt­ur var í dag, kemur fram að sá hluti rekstrar hennar sem fjár­­­magn­aður er með skatt­­tekj­um, svo­­kall­aður A-hluti, hafi verið rek­inn í 8,9 millj­arða króna tapi. Það er umtals­vert verri nið­ur­staða en fjár­hags­á­ætlun gerði ráð fyr­ir, en í henni var reiknað með 4,8 millj­arða króna tapi á þessum hluta rekstr­ar­ins.

A-hluti borg­ar­innar tap­aði 3,8 millj­örðum króna á árinu 2021 og 5,8 millj­örðum króna á árinu 2020.

Hinn hlut­inn í rekstri borg­­ar­inn­­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­­­bú­­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­­ar­­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­­borg­­­ar­­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­­ar­­leik­vangs ehf.

Í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar vegna fyrri hluta árs­ins 2022 var gert ráð fyrir að sam­stæða henn­ar, bæði A- og B-hluti rekstr­ar­ins, myndi skila 3,4 millj­arða króna hagn­aði. Nið­ur­staðan í rekstr­inum reynd­ist allt önn­ur, eða 13,2 millj­arða króna hagn­að­ur. Hagnaður sam­stæð­unnar var 23,4 millj­arðar króna í fyrra en árið 2020 tap­aði hún 2,8 millj­örðum króna.

Virði íbúða Félagsbústaða hækkaði gríðarlega

Stærsta ástæða þess að afkoma sam­stæð­unnar reynd­ist heilum 9,8 millj­örðum krónum betri en gert hafði verið ráð fyrir skýrist einkum af því að virði eigna Félags­bú­staða, félags utan um félags­legar leigu­í­búðir í eigu Reykja­víkur, hækk­aði 16,9 millj­arðar króna umfram áætlun. Hækkunin end­ur­speglar hækkun á fast­eigna­mati. Íbúð­irnar 3.030 sem Félags­bú­staðir eiga voru metnar á 146,7 millj­arða króna um mitt þetta ár.

[adspot]Á móti voru fjár­magns­gjöld 5,8 millj­örðum króna umfram áætlun sem að hluta til má rekja til auk­innar verð­bólgu. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um sex pró­sent frá ára­mótum en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir hækkun upp á 1,65 pró­sent.

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg segir að vonir hefðu staðið til að við­snún­ingur í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs yrði kröft­ugur á árinu 2022. „Þrátt fyrir að vel hafi gengið að ná atvinnu­leysi niður hafa stríðs­á­tök og við­var­andi vanda­mál í aðfanga­keðjum sett hag­kerfi heims­ins í upp­nám. Verð­bólga mælist mun hærri en spáð var, bæði hér­lendis sem og í öllum helstu við­skipta­löndum Íslands. Þá hefur óvissa á fjár­mála­mörk­uðum auk­ist mikið sem m.a. hefur end­ur­spegl­ast í lækkun hluta­bréfa­verðs og hækk­andi ávöxt­un­ar­kröfu á skulda­bréfa­mark­aði. Þessi breytta staða í ytra umhverfi end­ur­spegl­ast í rekstr­ar­nið­ur­stöðu borg­ar­innar á tíma­bil­inu.“

Rifa seglin í fjárfestingu

Þar er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni, borg­ar­stjóra í Reykja­vík að borgin sé nú að rifa seglin í takt við breyttar aðstæður, eftir að hafa aukið fjár­fest­ingar í far­aldr­inum, en fjár­fest­ingar árs­ins lækka um alls sjö millj­arða króna. „Stóra áskor­unin í rekstri sveit­ar­fé­laga um land allt eru svo þær fjár­hæðir sem þau eiga útistand­andi hjá rík­inu vegna lög­boð­inna skyldna sem þau inna af hendi í þjón­ustu við fatlað fólk. Það er eitt af lyk­il­verk­efnum í fjár­málum borg­ar­innar að knýja á um rétt­láta leið­rétt­ingu á þeim og von­umst við eftir góðri sam­vinnu við rík­is­stjórn, Alþingi og hags­muna­sam­tök fatl­aðs fólks við að fá úrbætur í þessu efni fljótt og vel. Það getur ekki beðið. Áfram verður unnið að fjár­málum og fjár­mála­stjórn borg­ar­innar af ábyrgð og festu.“

Borg­ar­ráð sam­þykkti í dag að setja í for­gang að leið­rétta þann mikla halla sem sé á fjár­hags­legum sam­skiptum Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­ins. Sérstakt aðgerðateymi hefur verið skipað sem vinnur að málum með borg­ar­stjóra, tryggir yfir­sýn og veitir full­trúum borg­ar­innar og sveit­ar­fé­laga í ýmsum hópum sem fjalla um málin á vett­vangi stjórn­sýsl­unnar bak­land og stuðn­ing. Borg­ar­stjóri og teymið mun reglu­lega upp­lýsa borg­ar­ráð um fram­gang mála og form­legt heild­ar­yf­ir­lit yfir fjár­hags­leg sam­skipti ríkis og Reykja­vík­ur­borgar verður lagt fyrir borg­ar­ráð að minnsta kosti tvisvar á ári.

Borg­ar­ráð sam­þykkti einnig ramma­út­hlutun þar sem sviðum borg­ar­innar eru lagðar línur fyrir gerð fjár­hags­á­ætl­unar næsta árs. Í til­kynn­ing­unni segir að hvatt sé til auk­ins aðhalds í rekstri um leið og grænar áherslur, sjálf­bærni til lengri og skemmri tíma, betri rekstur og skil­virk þjón­usta verði höfð að leið­ar­ljósi. „Gert er ráð fyrir hag­ræð­ingu sem nemur eitt pró­sent af launa­kostn­aði. Þá hefur mannauðs- og starfs­um­hverf­is­sviði verið falið að gera til­lögu að breyttum ráðn­ing­ar­reglum og eft­ir­fylgni með þeim. Mark­miðið er að auka yfir­sýn með nýráðn­ingum og end­ur­ráðn­ingum vegna starfs­manna­veltu, draga úr eða fresta ráðn­ingum þar sem færi er á en ekki skapa hik varð­andi ráðn­ingar vegna grunn­þjón­ustu við vel­ferð, skóla og frí­stund þar sem mik­il­vægt átak í ráðn­ingum stendur yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár