„Fullkomið ábyrgðarleysi“ af ríkinu að fylla ekki upp í fjármögnunargat sveitarfélaga

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík, sem inni­heldur meðal ann­ars einn þeirra flokka sem stýra rík­is­skút­unni, hefur bætt við þegar harð­orða umsögn sína um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp. Þar segir að van­fjár­mögnun rík­is­ins á verk­efnum sveit­ar­fé­laga sé slá­andi.

Einar Þorsteinsson úr Framsóknarflokki er formaður borgarráðs. Hann verður svo borgarstjóri síðar á þessu kjörtímabili.
Einar Þor­steins­son úr Fram­sókn­ar­flokki er for­maður borg­ar­ráðs. Hann verður svo borg­ar­stjóri síðar á þessu kjör­tíma­bili. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er full­komið ábyrgð­ar­leysi af rík­inu að leggja fram fjár­laga­frum­varp án þess að bæta sveit­ar­fé­lög­unum upp það sem vantar í fjár­mögnun hennar sem hefur gríð­ar­leg og alvar­leg áhrif á fjár­hag sveit­ar­fé­laga og verk­efni um land allt.“ Þetta segir í bókun þeirra flokka sem standa að meiri­hlut­anum í Reykja­vík sem birt­ist í upp­færðri umsögn Reykja­vík­ur­borgar um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp sem sam­þykkt var á fundi borg­ar­ráðs í síð­ustu viku. Athygli vekur að einn þeirra flokka, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, er líka í þeirri rík­is­stjórn sem stendur að fjár­laga­frum­varp­inu.

Þar segir enn fremur að van­fjár­mögnun rík­is­ins á verk­efnum sveit­ar­fé­laga sé slá­andi í fjár­laga­frum­varpi næsta árs, einkum í ljósi þess að ríkið geri sífellt meiri kröfur um þjón­ustu sveit­ar­fé­laga án þess að fjár­magn fylgi með. „Þetta er í mörgum til­fellum þjón­usta sem krefst mik­illar mönn­unar. Til að mynda þjón­usta við fatlað fólk, þjón­usta við börn með alvar­legar þroska- og geð­rask­anir, frí­stund fatl­aðra ung­menna, áfram­hald­andi upp­bygg­ing á hús­næði fyrir fatlað fólk, NPA, íslensku­kennsla fyrir börn af erlendum upp­runa, rekstur grunn­skóla, samn­ingar um mót­töku flótta­fólks og svo mætti lengi telja. Reykja­vík­ur­borg og sveit­ar­fé­lögin hafa lagt metnað sinn í að sinna þessum verk­efnum í sam­ræmi við lög og vinna að stöð­ugum umbótum í þjón­ust­unni.“

Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá

Full­trúar stærsta flokks­ins í minni­hluta í borg­ar­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sátu hjá við afgreiðslu upp­færðu umsagn­ar­innar. Það gerðu hins vegar ekki allir full­trúar minni­hlut­ans. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir frá Sós­í­alista­flokki Íslands, lét bóka að hún tæki heils­hugar undir þær áherslur sem komi fram í umsögn Reykja­vík­ur­borgar við frum­varp til fjár­laga. „Hér er mik­il­vægt að taka fram að allt of lengi hefur rík­is­valdið komið verk­efnum til sveit­ar­fé­lag­anna án þess að fjár­magn eða tekju­stofnar hafi fylgt. Sós­í­alistar leggja áherslu á að tekju­stofnar sveit­ar­fé­lag­anna verði auknir og að aukið fjár­magn fylgi verk­efnum sem sett eru í hendur þeirra. Hér er aug­ljóst að leið­rétta þarf fjár­fram­lög rík­is­ins til borg­ar­innar, þannig að fjár­magn verði veitt eftir því sem raun­veru­lega kostar að veita þjón­ust­una. Íbúar eiga ekki að þurfa að finna fyrir deilum á milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um fjár­mögnun á þjón­ustu sem þeir eiga lög­bund­inn rétt á. Ljóst er að stór­auka þarf tekjur til borg­ar­innar og í því sam­hengi hafa sós­í­alistar lagt áherslu á útsvar á fjár­magnstekjur og að hluti af áfeng­is­gjaldi renni til sveit­ar­fé­lag­anna, svo dæmi séu nefnd.“

[adspot]Kolbrún Bald­urs­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi í borg­ar­ráði fyrir hönd Flokks fólks­ins, tók í svip­aðan streng og sagði fjöl­mörg verk­efni vera sam­eig­in­lega á ábyrgð ríkis og borgar. „Það er þekktur vandi að ekki fylgi nægt fjár­magn frá ríki til borgar vegna verk­efna sem komið er inn á borð sveit­ar­fé­laga. Þetta er sagan enda­lausa og hefur bitnað alvar­lega á þjón­ustu­þegum.“

Hún telur að leið­rétta þurfi fjár­fram­lög rík­is­ins til borg­ar­innar þannig að fjár­magn verði veitt eftir því sem það kostar að veita þjón­ust­una. „Flokkur fólks­ins vill nefna hér sér­stak­lega þjón­ustu við fatlað fólk og íslensku­kennslu barna af erlendum upp­runa. Flokkur fólks­ins bendir á að nú þegar eru langir biðlistar í íslensku­ver borg­ar­innar en þar eru ung­mennin í for­gangi. Staðan er þannig núna að það eru ein­göngu nem­endur í ung­linga­deildum sem fá inni í íslensku­verum borg­ar­innar. Það verður að fjölga íslensku­verum sem hafa gefið góða raun. Þannig væri hægt aðstoða fleiri nem­endur og yngri nem­endur fengju þá kennslu líka. Því miður virð­ist ríkja ákveðið skiln­ings­leysi á þörfum barna því þessu verk­efni fylgir ekki nægj­an­legur fjár­hags­legur stuðn­ingur frá rík­inu. Að þessu verk­efni þurfa ríki og borg að vinna saman.“

Vantar 12-13 milljarða á ári

Í upp­runa­legri umsögn borg­ar­innar um fjár­laga­frum­varpið sagði að ríkið hafi ógnað sjálf­bærni sveit­ar­fé­laga á Íslandi með því að van­fjár­magna ýmis verk­efni sem rík­is­valdið ætlar sveit­ar­fé­lögum að sinna. Þar beri van­fjár­mögnun á mála­flokki fatl­aðs fólks hæst.

Í umsögn­inni var dregið saman að borgin líti svo á að van­fjár­mögnun rík­is­ins á hinum ýmsu verk­efnum sem borgin sinni, stundum í sam­starfi við önnur sveit­ar­fé­lög, nemi yfir 19 millj­örðum króna. Þar af sé þjón­usta við fatlað fólk, sem færð­ist frá ríki til sveit­ar­fé­laga árið 2011, van­fjár­mögnuð um 10,8 millj­arða króna.

Reykja­vík­ur­borg er síður en svo eina sveit­ar­fé­lagið sem er í þess­ari stöðu. Starfs­hópur sem skip­aður var til að meta kostnað við mála­flokk­inn hafi kom­st að þeirri nið­ur­stöðu að hall­inn á lands­vísu hafi verið um 8,9 millj­arðar á lands­vísu árið 2020 og að búast megi við því að hann hafi verið allt að 12-13 millj­arðar á síð­asta ári.

Lagði til að útsvar yrði hækkað um 0,26 prósentustig

Í setn­ing­ar­ræðu fjár­mála­ráð­stefn­u sveit­ar­fé­laga sem haldin var í síð­ustu viku kom Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir, for­maður stjórnar Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga og borg­ar­full­trúi í Reykja­vík, inn á þetta mál­efni og sagði mik­il­vægt er að nið­ur­staða við­ræðna liggi fyrir eigi síðar en 1. des­em­ber 2022 og sveit­ar­fé­lögum verði strax bætt van­fjár­mögnun mála­flokks­ins. Ekki er gert ráð fyrir neinu fjár­magni frá ríki til sveit­ar­fé­laga vegna þessa í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi, sem þó gerir ráð fyrir að rík­is­sjóður verði rek­inn í 89 millj­arða króna halla.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, sagði í ræðu sinni á ráð­stefn­unni að ljóst væri að umfang þess fjár­­hags­­vanda sem sveit­­ar­­fé­lög lands­ins glíma við vegna auk­ins kostn­aðar í tengslum við mál­efni fatl­aðs fólks sé orðið af þeirri stærð­­argráðu að til­­efni gæti verið til að mæta honum sem fyrst með ráð­­stöf­unum til bráða­birgða, þar til fulln­að­­ar­­upp­­­gjör og grein­ing liggur fyrir af hálfu sér­­stakrar nefndar sem hefur málið til umfjöll­un­­ar.

Hann viðr­aði svo þá hug­mynd til að mæta vand­anum að hækka útsvarspró­­sent­una sem sveit­­ar­­fé­lög inn­­heimta um 0,26 pró­­sent­u­­stig til að skila þeirri tekju­aukn­ingu sem til þarf til að brúa bilið í mála­­flokkn­­um. Á móti yrðu öll skatt­­þrep í tekju­skatti rík­­is­ins lækkuð um 0,26 pró­­sent­u­­stig til að allir skatt­greið­endur væru jafn­­­settir eftir sem áður. Þetta ætti að skila fimm til sex millj­örðum króna í nýjar tekjur fyrir sveit­ar­fé­lög lands­ins.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var spurð út í þessa hug­mynd í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í gær af Loga Ein­ars­syni, for­manni og þing­manni Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Þar svar­aði for­sæt­is­ráð­herra því til að hug­myndin hefði ekki verið rædd við rík­is­stjórn­ar­borðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár