Sá hluti Reykjavíkurborgar sem rekinn er fyrir skattfé tapaði 11,1 milljarði á níu mánuðum

Vaxta­kostn­aður sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar var 12,1 millj­arði króna hærri en áætl­anir gerðu ráð fyrir á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Sam­stæðan skilar hagn­aði, en ein­ungis vegna þess að matsvirði félags­legs hús­næðis hækk­aði um 20,5 millj­arða króna.

Dagur B. Eggertsson er sem stendur borgarstjóri í Reykjavík. Einar Þorsteinsson mun taka við því embætti síðar á kjörtímabilinu.
Dagur B. Egg­erts­son er sem stendur borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Einar Þor­steins­son mun taka við því emb­ætti síðar á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Sá hluti rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­­­­­magn­aður er með skatt­­­tekj­um, svo­­­kall­aður A-hluti, var nei­kvæður um 11,1 millj­arð króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022. Fjár­hags­á­ætlun vegna árs­ins hafði gert ráð fyrir að rekstr­ar­nið­ur­staðan yrði nei­kvæð um 1,6 millj­arða króna og því er nið­ur­staða um 9,5 millj­örðum krónum verri en stefnt var að.

Þetta kemur fram í nýbirtu upp­gjöri Reykja­vík­ur­borgar vegna fyrstu níu mán­aða árs­ins. Þar segir að verð­bólga hafi verið 7,8 pró­sent á tíma­bil­inu sem hafi gert það að verkum að fjár­magns­gjöld hafi verið miklu hærri en áætlað var. Þannig hafi A-hluti borg­ar­innar greitt um fimm millj­arða króna meira í vexti á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins 2022 en reiknað hafi verið með. Á sama tíma voru tekjur 344 millj­ónum krónum undir áætlun og rekstr­ar­út­gjöld, meðal ann­ars laun, 4,4 millj­örðum króna yfir þeim.

Matsbreyting á félagslegu húsnæði upp um 20 milljarða

Hinn hlut­inn í rekstri borg­­­ar­inn­­­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­­­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­­­­­bú­­­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­­­ar­­­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­­­borg­­­­ar­­­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf. og Þjóð­­­ar­­­leik­vangs ehf.

[adspot]Hann er jákvæður um 17,9 millj­arða króna. Þar skiptir mestu Stærsta ástæða þess að virði eigna Félags­bú­staða, félags utan um félags­legar leigu­í­búðir í eigu Reykja­vík­ur, hækk­aði 16 millj­arðar króna umfram áætl­un, eða alls um 20,5 millj­arða króna. Hækk­unin end­ur­speglar hækkun á fast­eigna­mati, en alls eiga Félags­bú­staðir 3.049 íbúðir. Eignir félags­ins voru metnar á 146,7 millj­arða króna um mitt þetta ár.

Þessi mats­breyt­ing, sem ekki er hægt að leysa út nema með því að selja íbúðir Félags­bú­staða, gerir það því að verkum að sam­stæða Reykja­víkur, bæði A- og B-hlut­inn, skil­aði 6,8 millj­arða króna hagn­aði á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Það er 758 millj­ónum krónum meira en áætl­anir höfðu gert ráð fyrir.

Hin mikla verð­bólga hefur gert það að verkum að fjár­magns­gjöld sam­stæð­unnar voru 12,1 millj­arði króna hærri en áætlað var.

Segja verðbólgu og hærri stýrivexti hafa áhrif

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna upp­gjörs­ins segir að ýmis­legt hafi sett svip sinn á það. „Bylgja nýs afbrigðis af COVID-19 í upp­hafi árs fól í sér tíma­bundið álag á rekstur, einkum á sviðum skóla og vel­ferðar. Stríð í Úkraínu, auk kór­ónu­veirunnar, hefur leitt til skorts á hrá­vöru og hægt á fram­leiðslu­línum með miklum áhrifum á heims­markað og auk­inni verð­bólgu í okkar helstu við­skipta­löndum. Þá hefur Seðla­bank­inn, vegna hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði, hárrar verð­bólgu og þenslu inn­an­lands, verið í hækk­un­ar­ferli stýri­vaxta og allt hefur þetta áhrif.“

Reykja­vík­ur­borg seg­ist hafa brugð­ist við erf­iðri stöðu með sam­drætti í fjár­fest­ingum en gert er ráð fyrir að þær verði 25 millj­arðar króna í stað fyr­ir­hug­aðra 32,4 millj­arða króna, í árs­lok. „Ný fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2023- 2027 gerir jafn­framt ráð fyrir sam­drætti í fjár­fest­ingum miðað við fyrri áætl­anir ásamt hag­ræð­ing­ar­að­gerðum. Þá hefur fjár­mála­stefna borg­ar­innar verið end­ur­skoðuð með hlið­sjón af fjár­hags­legri stöðu og efna­hags­legu ytra umhverfi sam­hliða fram­lagn­ingu fjár­hags­á­ætl­unar 2023- 2027.“

Skuldaviðmið tekin úr sambandi til 2025

Sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum ber sveit­ar­stjórn að sjá til þess að rekstri, fjár­fest­ingum og ráð­stöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveit­ar­fé­lagið muni til fram­tíðar geta sinnt skyldu­bundnum verk­efnum sín­um.

Til að full­nægja þess­ari skyldu er sveit­ar­fé­lögum gert að fylgja ákveðnum fjár­mála­regl­um. Þær fela í fyrsta lagi í sér svo­kallað jafn­vægis­við­mið, sem segir að sam­an­lögð heild­ar­út­gjöld sam­stæðu til rekstrar á hverju þriggja ára tíma­bili megi ekki verða hærri en nemur sam­an­lögðum reglu­legum tekj­um. Í öðrum lagi er svo­kallað skulda­við­mið, sem í felst að heild­ar­skuldir og skuld­bind­ingar sam­stæðu séu ekki hærri en 150 pró­sent af reglu­legum tekj­um.

Síðara við­miðið var hækkað tíma­bundið upp í 200 pró­sent með lögum sem Alþingi setti árið 2020 til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Sú heim­ild er sem stendur í gildi til loka árs 2025. Skulda­við­mið sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar án Orku­veitu Reykja­víkur var komið upp í 93 pró­sent um síð­ustu ára­mót. Síðan þá hafa skuld­irnar auk­ist umtals­vert. Skulda­við­miðið var 73 pró­sent árið 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár