Sigurður Ingi: Ekki unnt að fallast á fyrirhugaða byggð í Skerjafirði að óbreyttu

Inn­við­a­ráð­herra segir að hann muni ekki fall­ast á að farið verði í upp­bygg­ingu á næstum sjö hund­ruð íbúða hverfi í Nýja-Skerja­firði án þess að það verði tryggð að hún hafi ekki nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, segir að ekki sé unnt að fall­ast á áætl­anir Reykja­vík­ur­borgar um fyr­ir­hug­aða byggð í Skerja­firði að óbreyttu. Óásætt­an­legt sé að farið sé í slíkar fram­kvæmdir án þess að full­kannað sé hvort og þá með hvaða hætti verði tryggt að þær hafi ekki nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar. „Ráðherra mun því hvorki geta fall­ist á að farið verði í umræddar fram­kvæmdir í Skerja­firði né aðrar slíkar fram­kvæmdir í næsta nágrenni við flug­völl­inn nema sýnt hafi verið með óyggj­andi hætti fram á að flug­ör­yggi og rekstr­ar­ör­yggi sé ekki stefnt í hættu.“

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Sigurðar Inga við fyr­ir­spurn Þorgríms Sig­munds­sonar, vara­þing­manns Mið­flokks­ins, um hvort ráð­herr­ann ætli sér að koma í veg fyrir „byggð í Nýja-Skerja­firði eins og þarf til að verja Reykja­vík­ur­flug­völl?“

Verðandi borgarstjóri Framsóknar vonast eftir hverfinu

Í svari sínu ítrekar Sigurður Ingi því fyrri afstöðu ráðu­neyt­is­ins, sem var gerð opin­ber í bréfi til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur í júní þar sem sagði að fram­kvæmdir við byggð­ina dragi veru­lega úr rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar.

[adspot]Krafðist hann þess að fram­kvæmdum við upp­bygg­ingu hverf­is­ins, þar sem 690 íbúðir eiga að rísa, yrði frestað. Í því bréfi kom einnig fram að ráðu­neytið hefði skipað starfs­hóp sér­fræð­ingar sem skila eigi nið­ur­stöðum 1. októ­ber næst­kom­andi.

Í frétt RÚV um bréfið, sem birt var 24. júní, var rætt við Einar Þor­steins­son, odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík og sam­flokks­mann Sigurðar Inga, sem situr nú í meiri­hluta­stjórn í Reykja­vík.

Einar gegndi þá hlut­verki stað­geng­ils borg­ar­stjóra og verður auk þess borg­ar­stjóri frá og með byrjun árs 2024. Í frétt­inni sagð­ist Einar von­ast til þess að fram­kvæmdir við upp­bygg­ingu hverf­is­ins yrðu ekki blásnar af. „Ég vona það verði hægt að byggja þarna fal­legt hverfi, sem þjónar þessum hópum sem eru í sárri neyð eftir hús­næði og um leið að tryggja rekstr­ar­ör­yggi flug­vall­ar­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár