Icelandair Group hagnaðist um 7,7 milljarða króna á þremur mánuðum

Eftir gríð­ar­legan tap­rekstur frá árinu 2018 hefur orðið við­snún­ingur hjá Icelandair. Félagið hefur sýnt hagnað upp á 1,6 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins og tvö­fald­aði far­þega­fjölda sinn á þriðja árs­fjórð­ungi milli ára.

Hagnaður Icelandair Group á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun júlí og lauk í lok sept­em­ber, var 7,7 millj­arðar króna. Það þýðir að félagið sýndi hagnað á fyrstu níu mán­uðum árs­ins upp á 1,6 millj­arð króna.

í til­kynn­ingu frá félag­inu kemur fram að far­þega­tekjur hafi numið 54,1 millj­arði króna á síð­asta árs­fjórð­ungi og að þær hafi aldrei verið hærri. Félagið jók flug­fram­boð sitt í sem nemur 82 pró­sent af fram­boði árs­ins 2019 og sæta­nýt­ing þess var sú besta frá upp­hafi. Fjöldi far­þega, sem var 1,4 millj­ónir, var tvö­falt fleiri en á sama tíma í fyrra.

Sjóð­staða Icelandair Group er nú sú besta frá stofnun félags­ins í lok þriðja árs­fjórð­ungs.

Í til­kynn­ingu segir Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair Group, að bók­un­ar­staða félags­ins á fjórða árs­fjórð­ungi sé sterk en að það sé þó und­ir­búið undir mót­vind í vetur. „Rekstr­ar­um­hverfið verður áfram krefj­andi með hækk­andi vöxtum og kostn­aði sem lík­legt er að hafi áhrif á eft­ir­spurn. Við erum þó sann­færð um að það eru áfram mikil tæki­færi fyrir Ísland sem áfanga­stað. Icelandair byggir á sterkum grunni, með sterka lausa­fjár­stöðu sem og öfl­ugt leiða­kerfi og sveigj­an­leika sem gerir okkur kleift að hreyfa okkur hratt og aðlaga þjón­ustu okkar og starf­semi að aðstæðum hverju sinni.“

Töpuðu næstum 80 milljörðum á fjórum árum

Icelandair Group hefur tapað gríð­ar­legum fjár­munum á und­an­förnum árum. Félagið tap­aði 13,7 millj­örðum króna í fyrra, 51 millj­arði króna árið 2020, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­arðar króna. Samtals nam tapið á þeim árum 79,4 millj­örðum króna.

Icelandair Group fór í nokkrar hluta­fjár­­­­aukn­ingar eftir að kór­ón­u­veiru­far­ald­­­­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­­­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­­­­em­ber 2020, en það hefur átt í miklum rekstr­­­­­ar­­­­­vanda um ára­bil sem jókst veru­­­­­lega þegar kór­ón­u­veiru­far­ald­­­­­ur­inn reið yfir.

[adspot]Icelandair Group gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­­­­­­­fé­lag­inu í fyrra­sum­­­­­­­ar. Sam­­­­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­­­­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­­­­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capital á 14,96 pró­­­­sent hlut í Icelandair Group og er lang stærsti eig­andi félags­­­­ins. Aðrir stórir eig­endur eru íslenskir líf­eyr­is­­­sjóð­­­ir. Til við­­bótar hafa verið sóttir nokkrir millj­­arðar króna og alls nemur umfang þess fjár sem Icelandair Group hefur sótt sér 33 millj­­örðum króna.

Þrátt fyrir mik­inn tap­­­­rekstur hefur hluta­bréfa­verð í Icelandair Group rúm­­­­lega tvö­­­­fald­­­­ast frá því að hluta­bréfa­út­­­­­­­boðið í sept­­­­em­ber 2020 fór fram.

Inn­leiddu hvata­kerfi fyrir lyk­il­fólk

Ekk­ert eitt fyr­ir­tæki fékk meiri fyr­ir­greiðslu úr rík­­­is­­­sjóði vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­­ur­s­ins en Icelandair Group. Þá hefur Icelandair Group end­­­ur­­­samið, af mik­illi hörku, við helstu stétt­­­ar­­­fé­lög starfs­­­manna sinna. Sagði meðal ann­­­ars 95 pró­­­sent flug­­­freyja upp á meðan að á kjara­við­ræðum við þær stóð. Eftir að þær kol­­­­felldu kjara­­­­samn­ing var talað um að ráða fólk úr öðru stétt­­­­ar­­­­fé­lagi.

Þrátt fyrir mik­inn tap­rekstur og rík­is­stuðn­ing ákvað stjórn Icelandair Group að setja á fót hvata­kerfi fyrir fram­kvæmda­stjórn og lyk­il­starfs­menn félags­ins fyrr á þessu ári, og var til­laga hennar þar um sam­þykkt á aðal­fundi. Mark­miðið með inn­­­­­­­leið­ing­u ­hvata­­­­kerf­is­ins var meðal ann­­­­ars sagt vera að draga úr líkum á að hóp­ur­inn yfir­­­­­­­gefi Icelandair Group með litlum fyr­ir­vara.

[adspot]Í kerf­inu felst að hóp­­­­ur­inn mun geta fengið allt af 25 pró­­­­sent af árs­­­­launum sínum í bónus í formi kaup­réttar á hlutum í Icelandair Group. Fyr­ir­hugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerf­is­ins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tíma­bili. Miðað við mark­aðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir millj­­­­arðar króna. Hægt verður að inn­­­­­­­leysa umrædda kaup­rétti að þremur árum liðn­­­­­­­um.

Áður hafði Kjarn­inn greint frá því að laun og hlunn­indi for­stjóra Icelandair Group hefðu hækkað um 48 pró­sent milli 2020 og 2021. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um ástæður þessa sagði að breyt­ing­una mætti „lang­­­­­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­­­­­stjóri á sig 30 pró­­­­­­sent launa­­­­­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­­­­­reikn­ingur félags­­­­­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­­­­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­­­­­um. Með­­­­­­al­­­­­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­­­­­un­ina í árs­­­­­­reikn­ingn­­­­­­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár