PLAY að ráðast í hlutafjáraukningu sem átti alls ekki að ráðast í fyrir nokkrum mánuðum

Stærstu hlut­hafar PLAY eru að leggja félag­inu til 2,3 millj­arða króna. Í mars sögðu stjórn­endur að engin hluta­fjár­aukn­ing væri áformuð og að rekstr­ar­af­koman á seinni hluta 2022 yrði jákvæð. Hvorugt gekk eftir.

Stjórn PLAY hefur safnað bind­andi áskrift­ar­lof­orðum að nýju hlutafé í félag­inu með samn­ingum við 20 stærstu hlut­hafa félags­ins. Alls hafa þeir skuld­bundið sig til að leggja félag­inu til 2,3 millj­arða króna. Við það mun útgefið hlutafé í PLAY hækka um rúm 22 pró­sent. Á sama tíma munu aðrir hlut­hafar PLAY, sem er skráð á First North mark­að­inn, þynn­ast niður.

Til­kynn­ingin um aukn­ingu á hlutafé kemur í kjöl­far þess að PLAY birti upp­gjör sitt fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins 2022. Þar kom fram að áfram­hald­andi tap, um 430 millj­ónir króna, var á rekstri félags­ins á þriðja árs­fjórð­ungi þrátt fyrir að það hafi í fyrsta sinn skilað rekstr­ar­hagn­aði á tíma­bil­inu. Alls hefur PLAY tapað 4,2 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022.

Það bæt­ist við tap upp á 22,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, rúm­lega 2,9 millj­örðum króna miðað við gengi í lok síð­asta árs, á árinu 2021. Frá byrjun þess árs hefur PLAY því tapað 7,1 millj­arði króna.

[adspot]Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem PLAY birti þegar upp­gjörið var kunn­gjört sagði: „Ekki er fyr­ir­séð að áður útgefin spá um jákvæða rekstr­ar­nið­ur­stöðu af síð­ari hluta árs­ins stand­ist vegna krefj­andi ytri aðstæðna á mörk­uðum, sem höfðu mikil áhrif á fjár­hags­lega frammi­stöðu í rekstr­inum.“

Það er í and­stöðu við það sem stjórn­endur PLAY boð­uðu í mars á þessu ári, þegar upp­gjör árs­ins 2021 var kynnt, en þá sögð­ust þeir gera ráð fyrir rekstr­ar­hagn­aði á síð­ari hluta árs­ins 2022. Í til­kynn­ingu vegna hluta­fjár­aukn­ing­ar­innar er haft eftir Birgi Jónssyni, for­stjóra PLAY, að ytra mark­aðsum­hverfi hafi reynst þyngra í vöfum en stjórn­endur félags­ins hefðu von­ast til.

Gengur hratt á handbært fé

Ástæða þess að áætl­anir stjórn­enda PLAY eru ekki að ganga eftir eru nokkrar, að þeirra eigin mati. Í fyrsta lagi var almenn eft­ir­spurn frá far­þegum til Íslands minni síð­sum­ars en þeir bjugg­ust við „þar sem mörg hótel voru upp­bókuð og bíla­leigu­bílar sömu­leiðis.“ Þá hafi hlið­ar­tekjur einnig verið minni en þeir væntu en þar „skipti mestu aukin eft­ir­spurn eftir hand­far­angri í stað inn­rit­aðs far­ang­urs. Ástæða þeirra breyt­inga var ótti far­þega við erf­ið­leika á flug­völlum víða um heim.“

Þá hélt hátt olíu­verð áfram að leika félagið grátt, en flug­véla­elds­neyti var 56 pró­sent af öllum flug­kostn­aði PLAY á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. PLAY hefur ekki verið með samn­inga til að verja sig fyrir sveiflum í heims­mark­aðs­verði á olíu og félagið gaf það út í vor að það ætl­aði ekki að taka upp olíu­varnir fyrr en meiri fyr­ir­sjá­an­leiki á mark­aði næst. PLAY ætl­aði að mæta þess­ari stöðu með auk­inni ráð­deild í kostn­aði og til­komu sér­staks olíu­gjalds ofan á miða­verð líkt og margir stærstu sam­keppn­is­að­ilar félags­ins höfðu inn­leitt. Það virð­ist þó ekki hafa dugað til.

Í til­kynn­ingu PLAY, sem send var út sam­hliða birt­ingi á árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2021 þann 16. mars síð­ast­lið­inni, sagði að engin áform væru uppi um hluta­fjár­aukn­ingu þar sem lausa­fjár­staða félags­ins væri sterk, bók­un­ar­staðan góð og fyr­ir­tækið bæri engar vaxta­ber­andi skuld­ir. Eigið fé PLAY var um 67 millj­ónir Banda­ríkja­dala, 8,7 millj­arðar króna, um síð­ustu ára­mót. Handbært fé þann 30. sept­em­ber var 29,6 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 4,4 millj­arðar króna, með bundnu fé. Það var 51,7 millj­ónir Banda­ríkja­dala, tæp­lega 7,7 millj­arðar króna á núvirði, um síð­ustu ára­mót. Eig­in­fjár­hlut­fall PLAY var komið niður í 12,1 pró­sent fyrir rúmum mán­uði síðan en var 32,9 pró­sent í lok árs 2021.

Hlutabréfaverðið helmingast á rúmu ári

PLAY, skráði sig á First North mark­að­inn í fyrra. Í hluta­fjár­­út­­­boði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar voru seldir hlutir fyrir 4,3 millj­­arða króna. Eft­ir­­spurn var átt­­föld en alls bár­ust til­­­boð upp á 33,8 millj­­arða króna. Útboðs­­­gengið hjá PLAY nam 20 krónum á hlut fyrir til­­­­­boð yfir 20 millj­­­ónum króna og 18 krónum á hlut fyrir til­­­­­boð undir 20 millj­­­ón­um króna.

Sú hluta­fjár­aukn­ing sem nú er fyrir hendi er því til að sækja upp­hæð sem nemur rúm­lega helm­ingi þess sem upp­haf­lega var sótt.

Á fyrsta við­­skipta­degi með bréf félags­­ins eftir skrán­ingu hækk­­aði virði þeirra um 23 til 37 pró­­sent og dagsloka­­gengið þann dag, 9. júlí í fyrra, var 24,6 krónur á hlut. Í októ­ber náði hluta­bréfa­verðið því að verða 29,2 krónur á hlut. Síðan þá hefur það hríð­­fallið og var 15,2 króna á hlut í lok dags í gær. Virðið hefur því næstum helm­ing­ast á rúmu ári. Mark­aðsvirðið er um 10,7 millj­­arðar króna sem er rúm­lega tíu millj­­örðum króna minna en í októ­ber.

Tveir stærstu einka­fjár­fest­arnir í PLAY eru Fiski­sund ehf., félag sem Einar Örn Ólafsson stjórn­ar­for­maður PLAY fer fyrir, með 8,6 pró­sent hlut og fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, stærsti eig­andi Símans og stærsti einka­fjár­festir­inn í Arion banka, með 6,4 pró­sent hlut. Þá á Eign­ar­halds­fé­lagið FEA, sem Skúli Skúlason stýrir og átti um tíma allt hlutafé í PLAY, enn 4,01 pró­sent hlut. Aðrir stórir hlut­hafar eru Birta líf­eyr­is­sjóður með 8,52 pró­sent hlut og ílf­eyr­is­sjóð­ur­inn Lífsverk með 4,34 pró­sent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár