Dagur: Hvassahraun virðist „ein öruggasta staðsetningin“ fyrir innviði á Reykjanesskaga

Samkvæmt nýlegri skýrslu frá Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands, um eld­gosavá í Sveit­ar­fé­lag­inu Vogum, yrði mögu­legt flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauni í hverf­andi hættu vegna eldsum­brota á Reykja­nesskaga.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri dróg fram nýlega skýrslu Jarðvísindastofnunar HÍ, sem unnin var fyrir sveitarfélagið Voga, í umræðum um framtíð Reykjavíkurflugvallar í vikunni.
Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri dróg fram nýlega skýrslu Jarð­vís­inda­stofn­unar HÍ, sem unnin var fyrir sveit­ar­fé­lagið Voga, í umræðum um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar í vik­unni. Mynd: Bára Huld Beck

Í skýrslu sem Jarð­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands vann fyrir Sveit­ar­fé­lagið Voga fyrr á þessu ári, er lagt mat á eld­gosavá í sveit­ar­fé­lag­inu með til­liti til jarð­hrær­inga þeirra sem urðu á Reykja­nesi í fyrra. Fyr­ir­hugað mögu­legt flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauni liggur á þeim svæðum innan Voga þar sem einna minnst hætta þykir á vá vegna eld­gosa.

Skýrslan var ekki unnin sem inn­legg í flug­vall­ar­málin að neinu leyti, heldur fékk bæj­ar­stjórn Voga Jarð­vís­inda­stofn­un­ina til þess að vinna skýrsl­una fyrir sig í tengslum við umfjöllun sveit­ar­stjórn­ar­innar þar um Suð­ur­nesja­línu 2, sem Landsnet vill leggja um sveit­ar­fé­lagið í lofti, en sveit­ar­stjórnin vill að fari í jörð. Nálgast má skýrsl­una hér.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur vís­aði hins vegar til þess­arar skýrslu, sem kynnt var í bæj­ar­stjórn Voga 31. ágúst, í umræðu um Reykja­vík­ur­flug­völl sem fram fór í borg­ar­stjórn Reykja­víkur á þriðju­dag, en borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks köll­uðu eftir umræð­unni um flug­völl­inn.

„Það er allt sem bendir til þess, miðað við þessa grein­ingu, að Hvassa­hraun sé þarna á einu örugg­asta svæð­inu á öllum Reykja­nesskag­anum,“ sagði Dagur á fundi borg­ar­stjórnar, en minnti á sama tíma á að Veð­ur­stofan væri að vinna að sinni eigin grein­ingu á fýsi­leika flug­vall­ar­stæð­is­ins í Hvassa­hrauni.

[adspot]

Dagur sagði að út frá grein­ingum Jarð­vís­inda­stofn­unar væri það „algjör­lega ótíma­bært“ að „afskrifa þann mögu­leika að vera með ein­hverja inn­viði á Reykja­nesskaga, hvað þá Hvassa­hraun, sem virð­ist sam­kvæmt þeim gögnum sem við búum yfir vera ein örugg­asta stað­setn­ingin fyrir öryggi inn­viða á öllum skag­anum.“

Skýrslan sem borg­ar­stjóri vís­aði til var sem áður segir unnin af sér­fræð­ingum Jarð­vís­inda­stofn­unar HÍ, en á meðal höf­unda eru eld­fjalla­fræð­ing­arnir Ármann Hösk­ulds­son og Þor­valdur Þórð­ar­son.

Hvassahraunssvæðið í tveimur lægstu hættuflokkum

Í skýrsl­unni er lagt mat á elds­upp­kom­unæmi, mis­gengi og líkur á mögu­legu hraun­flæði innan Sveit­ar­fé­lags­ins Voga, bæði miðað við hraun­rennsli í litlu gosi eins og því sem varð í Fagra­dals­fjalli í fyrra, með hraun­rennsli upp á 10 rúmmetra á sek­úndu og svo með­al­stóru hraun­gosi á íslenska vísu, með um 300 rúmmetra hraun­rennsli á sek­úndu.

Höfundar skýrsl­unnar settu, í kjöl­far grein­inga sinna á þessum þáttum, fram til­lögur að flokkun hættu­svæða innan sveit­ar­fé­lags­ins Voga.

Alls er svæð­inu skipt upp í fimm flokka með til­liti til hættu og fellur fyr­ir­hugað flug­vall­ar­svæði í Hvassa­hrauni innan tveggja lægstu flokk­ana, flokka 1 og 2 (græn svæði og gul svæði). Grænu svæðin eru „ekki hættu­svæði“ og svæði sem ekki eru líkur á að hraun flæði inn. Gulu svæðin eru hins vegar skil­greind sem „svæði í lág­marks hættu“ með líkur á hraun­flæði „í lág­marki“ og til­tekið í skýrsl­unni að um sé að ræða svæði sem „getur verið byggt“.

Eins og sjá má á mynd­inni hér að ofan eru þó svæði sem flokkuð eru á hærra hættu­stigi ekki langt undan.

Gögn þurfi að ráða ákvörðunum

Einar Þor­steins­son for­maður borg­ar­ráðs og odd­viti Fram­sóknar í Reykja­vík sagði í ræðu sinni á borg­ar­stjórn­ar­fundi að hver maður sæi að það hefði skap­ast óvissa um stað­setn­ingu mögu­legs flug­vallar í Hvassa­hrauni vegna jarð­hrær­ing­anna á Reykja­nesskaga.

„Starfs­hópur Veð­ur­stof­unnar vinnur núna að því að meta fýsi­leika þeirrar stað­setn­ingar og á meðan sú skýrsla liggur ekki fyrir er erfitt fyrir okkur stjórn­mála­menn­ina að hafa end­an­lega skoðun á mál­inu,“ sagði Einar.

Hann bætti því við að það hefði mynd­ast „ákveðin stemn­ing núna í eld­gos­inu“ um að mögu­leik­inn á flug­velli í Hvassa­hrauni væri aug­ljós­lega út af borð­inu“ en að það væru þó „ýmis gögn“ sem bentu til þess, rétt eins og borg­ar­stjóri hefði bent á, að Hvassa­hraun væri samt „á grænu“.

„En ég ætla ekki að úttala mig um þetta, við verðum bara að treysta sér­fræð­ing­unum um þetta,“ sagði Einar, sem sagði að ef svo færi að Hvassa­hraun yrði „ein­hvern veg­inn strikað út af list­anum yfir væn­lega flug­vall­ar­kosti“ þyrfti að halda áfram með vinn­una, rifja upp kost­ina sem Rögnu­nefnd­inni svoköll­uðu var falið að skoða eða skoða aðra mögu­leika.

Bessa­staða­nes, Hólms­heiði, Löngu­sker?

Hinir kost­irnir sem fjallað var um í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar, sem var sam­eig­in­legur stýri­hópur Reykja­víkur, rík­is­ins og Icelandair Group, voru Bessa­staða­nes, Hólms­heiði og Löngu­sker, auk þess sem fjallað var útfærslur á flug­vell­inum í Vatns­mýri í breyttri mynd.

Hvassa­hraun var að mati stýri­hóps­ins sá flug­vall­ar­kostur sem hafði mesta þró­un­ar­mögu­leika til fram­tíð­ar, í sam­an­burði við hina, sem þó voru allir sagðir geta rúmað þá starf­semi sem væri í Vatns­mýri.

Varð­andi Hvassa­hraunið voru þó ýmis atriði sem Rögnu­nefndi taldi að skoða þyrfti bet­ur, þar á meðal mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir vegna sjúkra­flutn­inga. Einnig sagði að taka þyrfti með í reikn­ing­inn nálægð fyr­ir­hug­aðs flug­vallar við Kefla­vík­ur­flug­völl, með til­liti til loft­rým­is, flug­ferla og rekst­urs.

Í umfjöllun um Hvassa­hraunið sagði í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar að í skýrslu sem sér­fræð­ingar hefðu verið látnir vinna um nátt­úruvá á svæð­inu hefði komið fram að hraun sem myndu ógna flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauns­landi myndu koma upp í Krýsu­vík­ur­kerf­inu.

„Miklar líkur eru á að aldir líði áður en Krýsu­vík­ur­kerfið rumskar næst. Búast má við að næsta goss­keið á Reykja­nesskaga hefj­ist í Brenni­steins­fjöll­um. Það gæti orðið eftir um eina öld. Hraun þaðan er ekki lík­legt til að ógna flug­vall­ar­stæð­inu í Hvassa­hrauni. Mjög litlar líkur eru á að sprungur og mis­gengi verði til vand­ræða á flug­vall­ar­stæð­inu næstu ald­ir. Miðað við tíma­bil goss­keiða í þeim er langt í það næsta, jafn­vel yfir 300 ár,“ sagði í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­inn­ar, með vísan í skýrslu sér­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár