PLAY tapaði 3,6 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins

Flug­fé­lagið Play hefur tapað 6,5 millj­örðum króna frá byrjun síð­asta árs. Starf­semin komst fyrst í fullan rekstur í júlí og félagið spáir þvi að það sýni jákvæða rekstr­ar­af­komu á síð­ari hluta yfir­stand­andi árs.

Flug­fé­lagið PLAY, sem skráð er á First North-mark­að­inn, tap­aði 14,3 millj­ónum Banda­ríkja­daga, um tveimur millj­örðum króna, á öðrum árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs ef miðað er við gengi Banda­ríkja­dals í dag. Samtals nemur tap PLAY á fyrri hluta árs­ins 2022 25,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala, um 3,6 millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi. ÞEgar við bæt­ist 2,9 millj­arða króna tap á síð­asta ári, miðað við gengi Banda­ríkja­dals í lok þess árs, þá hefur félagið alls tapað 6,5 millj­örðum króna frá byrjun árs 2021.

Í til­kynn­ingu frá PLAY sem send var út í dag vegna upp­gjörs ann­ars árs­fjórð­ungs kemur fram að rekstr­ar­nið­ur­staðan hafi verið við­búin þar sem félagið hafði enn ekki náð til­ætl­aðri stærð­ar­hag­kvæmni á öðrum árs­fjórð­ungi, sem stendur frá byrjun apríl til loka júní­mán­aðar. „Á öðrum árs­fjórð­ungi var helsta áherslan á að skala starf­sem­ina upp í aðdrag­anda sum­ará­ætl­un­ar­innar og tengiflugs­leiða­kerf­is­ins en það var ekki fyrr en í byrjun þriðja árs­fjórð­ungs sem allt tengiflugs­leiða­kerfið var farið af stað með sex flug­vélar í notkun. Í júlí var starf­semin komin í fullan rekstur eftir að félagið hafði rutt sér til rúms á fjölda nýrra mark­aða með afger­andi hætti.“

PLAY gerir ráð fyrir að far­þegar félags­ins verði um 800 þús­und á þessu ári og að veltan verði um 20 millj­arðar króna, en 2022 er fyrsta heila starfsár félags­ins. Spár PLAY sýni fram á jákvæða rekstr­ar­af­komu á síð­ari hluta yfir­stand­andi árs.

PLAYflýgur nú til 25 áfanga­staða.

Eigið fé PLAY var um 67 millj­ónir Banda­ríkja­dala um síð­ustu ára­mót. Það var um 42,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um sex millj­arðar króna á núver­andi gengi, um mitt þetta ár og hafði því dreg­ist saman um rúman þriðj­ung.

[adspot]Í til­kynn­ingu félags­ins segir að fjár­hags­staða PLAY sé áfram sterk. Handbært fé í lok júní hafi verið 39,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, tæp­lega 5,6 millj­arðar króna, og eig­in­fjár­hlut­fallið 13,4 pró­sent. Félagið hafi engar ytri vaxta­ber­andi skuldir.

Fjár­hags­staða PLAY sé eftir sem áður sterk. Handbært fé þann 31. mars var 42,12 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Eig­in­fjár­hlut­fall var 22% og félagið er með engar ytri vaxta­ber­andi skuldir.

Markaðsvirði fallið um rúma sex milljarða

PLAY, skráði sig á First North mark­að­inn í fyrra. Í hluta­fjár­­út­­­boði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar voru seldir hlutir fyrir 4,3 millj­­arða króna.

[links]Eft­ir­­spurn var átt­­föld en alls bár­ust til­­­boð upp á 33,8 millj­­arða króna. Útboðs­­­gengið hjá PLAY nam 20 krónum á hlut fyrir til­­­­­boð yfir 20 millj­­­ónum króna og 18 krónum á hlut fyrir til­­­­­boð undir 20 millj­­­ón­um króna.

Á fyrsta við­­skipta­degi með bréf félags­­ins eftir skrán­ingu hækk­­aði virði þeirra um 23 til 37 pró­­sent og dagsloka­­gengið þann dag, 9. júlí í fyrra, var 24,6 krónur á hlut. Í októ­ber náði hluta­bréfa­verðið því að verða 29,2 krónur á hlut. Síðan þá hefur það hríð­­fallið og fór um tíma niður í 15,6 krónur á hlut í júní síð­ast­liðnum. Bréfin hafa þó tekið aðeins við sér síð­ari hluta sum­ars og gengið var 20,3 króna á hlut í lok dags í dag. Virðið hefur því dreg­ist saman um 30 pró­sent frá því í haust.

Mark­aðsvirðið er um 14,3 millj­­arðar króna nú sem er 6,2 millj­­örðum króna minna en í októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár