Flugið nær fyrri styrk

Júlí var met­mán­uður í far­þega­flutn­ingum hjá Play og Icelandair þok­ast nær þeim far­þega­tölum sem sáust fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur. Far­þega­fjöldi um Kefla­vík­ur­flug­völl var meiri í júlí síð­ast­liðnum en í sama mán­uði árið 2019.

Fleiri farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí síðastliðinum en í sama mánuði árið 2019.
Fleiri far­þegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríks­sonar í júlí síð­ast­lið­inum en í sama mán­uði árið 2019. Mynd: ISAVIA

Flug­fé­lagið Play Air hefur aldrei flutt jafn marga far­þega og í síð­asta mán­uði en fjöld­inn nam 110 þús­undum í mán­uð­inum. Fjöldi far­þega sem flogið hafa með flug­fé­lag­inu hefur vaxið í hverjum mán­uði það sem af er ári en í júní flugu 88 þús­und með Play. Flug­fé­lagið tók sína sjöttu þotu í notkun í síð­asta mán­uði en í flota félags­ins eru nú þrjár Airbus A321neo og þrjár Airbus A320neo vélar í rekstri. Stefnt er að því að bæta fjórum þotum í flota félags­ins í vetur sem mun færa fjölda Airbus þota í flota félags­ins upp í tíu vorið 2023.

Flug­fé­lagið tók til starfa í júlí á síð­asta ári og flutti sam­tals um rúm­lega 101 þús­und far­þega á fyrstu sex starfs­mán­uðum félags­ins. Því flugu fleiri með hinu nýja flug­fé­lagi í síð­asta mán­uði heldur en á síð­asta ári. Á síð­asta ári var sæta­nýt­ing Play rúm 53 pró­sent en sæta­nýt­ing félags­ins hefur vaxið jafnt og þétt á þessu ári. Í júlí var sæta­nýt­ingin 88 pró­sent, sam­an­borið við 79 pró­sent í júní, og hefur hún aldrei verið eins góð.

Icelandair nálgast sömu umsvif og fyrir faraldur

Sæta­nýt­ing Icelandair var einnig góð í júlí, 89 pró­sent. Í til­kynn­ingu frá Icelandair kemur fram að hún hafi aldrei verið hærri í júlí­mán­uði. Í mán­uð­inum flutti Icelandair 504 þús­und far­þega í milli­landa­flugi og er það í fyrsta sinn frá því í fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur sem far­þega­fjöldi félags­ins í einum mán­uði fer yfir hálfa milljón. Fjöldi far­þega í milli­landa­flugi í júní var 407 þús­und.

Icelandair kemst þar af leið­andi nálægt því að ná sömu far­þega­tölum og fyrir far­aldur en far­þega­fjöld­inn í júlí síð­ast­liðnum var 89 pró­sent af því sem hann var í sama mán­uði árið 2019. Í júlí á síð­asta ári flutti flug­fé­lagið aftur á móti 195 þús­und far­þega í milli­landa­flugi.

Í til­kynn­ingu frá Icelandair er haft eftir Boga Nils Bogasyni for­stjóra að góð sæta­nýt­ing sé eft­ir­tekt­ar­verð. „Eft­ir­spurn er og hefur verið mikil og ljóst er að mikil upp­söfnuð ferða­þörf er til staðar,“ segir Bogi Nils.

Framkvæmdir við nýja austurálmu standa yfir á Keflavíkurflugvelli

Nýjar far­þega­tölur frá Kefla­vík­ur­flug­velli, gefnar út af Isavia, sýna einnig fram á bata í ferða­þjón­ust­unni. Í júlí síð­ast­liðnum fóru rúm­lega 852 þús­und far­þegar um flug­völl­inn og voru það fleiri far­þegar en fóru um flug­völl­inn í sama mán­uði árið 2019.

Í til­kynn­ingu Isavia er haft eftir Guðmundi Daða Rún­ars­syni að nú sé mik­il­vægt að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hafi verið í upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli til að mæta eft­ir­spurn­inni sem fari vax­andi.

„Fram­kvæmdir hafa staðið yfir á Kefla­vík­ur­flug­velli meðal ann­ars vegna bygg­ingu 1200 metra akbrautar fyrir flug­vélar og bygg­ingar á nýrri aust­ur­álmu sem er rúm­lega 20.000 fer­metrar að stærð sem mun bæta upp­lifun far­þega og flug­fé­laga frá 2024. Á sama tíma hafa bæði Icelandair og Play til­kynnt stækkun flug­flota á næstu miss­erum og því mikil þörf á að fram­kvæmdir á flug­vell­inum haldi áfram,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár