Vill skoða aðra kosti í skýrslu Rögnunefndar ef Hvassahraun þykir ófýsilegt

Einar Þor­steins­son for­maður borg­ar­ráðs segir að ef svo fari að hug­myndir um flug­völl í Hvassa­hrauni verði slegnar út af borð­inu myndi hann strax vilja ráð­ast í vinnu við að skoða aðra flug­vall­ar­kosti sem fjallað var um í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar.

Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs og verðandi borgarstjóri, síðar á kjörtímabilinu.
Einar Þor­steins­son er for­maður borg­ar­ráðs og verð­andi borg­ar­stjóri, síðar á kjör­tíma­bil­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Einar Þor­steins­son, for­maður borg­ar­ráðs og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík, segir að ef svo fari að hug­myndir um flug­völl í Hvassa­hrauni verði slegnar út af borð­inu vilji hann strax hefja vinnu við að skoða aðra val­kosti sem fjallað var um í skýrslu svo­kall­aðrar Rögnu­nefndar, um flug­vall­ar­kosti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, frá árinu 2015.

Þetta kemur fram í umfjöllun um stöðu flug­mála í ljósi jarð­hrær­ing­anna á Reykja­nesi, sem birt­ist á vef Túrista í dag.

„Hvassa­hraun var á sínum tíma tal­inn álit­leg­asti kost­ur­inn fyrir nýjan flug­völl og Veð­ur­stofan skilar skýrslu sinni um þann kost í haust. Ég tel rétt að bíða eftir þeim nið­ur­stöðum áður en við gefum út miklar yfir­lýs­ingar. Ef nið­ur­staðan verður sú að Hvassa­hraun sé ekki lengur álit­legur kostur þá myndi ég vilja að strax hæf­ist vinna við að kanna aðra kosti sem nefndir voru í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar,“ er haft eftir Einari í umfjöllun mið­ils­ins.

[adspot]

Í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar, sem var sam­eig­in­legur stýri­hópur Reykja­vík­ur­borgar, rík­is­ins og Icelandair Group, sagði um Hvassa­hraun að hraun­rennsli væri „ólík­legt næstu aldir“ á fyr­ir­hug­uðu flug­vall­ar­stæði og að „mjög litlar líkur“ væru á „vand­ræðum vegna sprungu­virkni næstu aldir“.

Nú virð­ist allt benda til þess að nýtt gos­tíma­bil sé hafið á Reykja­nesskaga, sem varað gæti þar til sá sem þetta ritar og allir sem þetta lesa verða komnir undir græna torfu. Það breytir stöð­unni, eins og ráða­menn hafa tjáð sig um að und­an­förnu.

Bessastaðanes, Hólmsheiði og Löngusker

Hinir kost­irnir sem fjallað var um í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar voru Bessa­staða­nes, Hólms­heiði og Löngu­sker, auk þess sem fjallað var útfærslur á flug­vell­inum í Vatns­mýri í breyttri mynd.

Hvassa­hraun var að mati stýri­hóps­ins sá flug­vall­ar­kostur sem hafði mesta þró­un­ar­mögu­leika til fram­tíðar, í sam­an­burði við hina, sem þó voru allir sagðir geta rúmað þá starf­semi sem væri í Vatns­mýri.

Varðandi Hvassa­hraunið voru þó ýmis atriði sem Rögnu­nefndi taldi að skoða þyrfti betur, þar á meðal mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir vegna sjúkra­flutn­inga. Einnig sagði að taka þyrfti með í reikn­ing­inn nálægð fyr­ir­hug­aðs flug­vallar við Kefla­vík­ur­flug­völl, með til­liti til loft­rýmis, flug­ferla og rekst­urs.

Í umfjöllun um Hvassa­hraunið sagði í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar að í skýrslu sem sér­fræð­ingar hefðu verið látnir vinna um nátt­úruvá á svæð­inu hefði komið fram að hraun sem myndu ógna flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauns­landi myndu koma upp í Krýsu­vík­ur­kerf­inu.

„Miklar líkur eru á að aldir líði áður en Krýsu­vík­ur­kerfið rumskar næst. Búast má við að næsta goss­keið á Reykja­nesskaga hefj­ist í Brenni­steins­fjöllum. Það gæti orðið eftir um eina öld. Hraun þaðan er ekki lík­legt til að ógna flug­vall­ar­stæð­inu í Hvassa­hrauni. Mjög litlar líkur eru á að sprungur og mis­gengi verði til vand­ræða á flug­vall­ar­stæð­inu næstu aldir. Miðað við tíma­bil goss­keiða í þeim er langt í það næsta, jafn­vel yfir 300 ár,“ sagði í skýrslu Rögnu­nefnd­ar­innar, með vísan í skýrslu sér­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár