Félag leikskólakennara segir „Tupperware píramída hvatningu“ ólíklega til árangurs

Félag leik­skóla­kenn­ara segir að verið sé að taka inn sífellt yngri börn á leik­skóla án þess að hugsa málið til enda. Sveit­ar­fé­lög verði að fara að taka varn­að­ar­orð félags­ins um of hraðan vöxt leik­skóla­stigs­ins alvar­lega.

Félag leikskólakennara segir að sveitarfélög landsins verði að fara að taka varnaðarorð um of hraðan vöxt leikskólastigsins alvarlega.
Félag leik­skóla­kenn­ara segir að sveit­ar­fé­lög lands­ins verði að fara að taka varn­að­ar­orð um of hraðan vöxt leik­skóla­stigs­ins alvar­lega. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Félag leik­skóla­kenn­ara segir að sú til­laga „að búa til Tupperware píramída hvatn­ingu vegna ráðn­inga starfs­fólks í leik­skóla“ sé langt því frá lík­leg til þess að ráð­ast á rót mönn­un­ar­vanda í leik­skólum.

Þetta kemur fram í Facebook færslu frá félag­inu, þar sem vísað er til fréttar Kjarnans frá því fyrr í dag, en þar sagði frá aðgerðum sem til stendur að ráð­ast í til að fjölga starfs­mönnum á leik­skólum í Reykja­vík­ur­borg.[links]

Borg­ar­ráð sam­þykkti í gær að veita alls 20 millj­ónum auka­lega til skóla- og frí­stunda­sviðs til þess að bæta mönnun á leik­skólum, en ein aðgerð­anna sem skóla- og frí­stunda­sviðið lagði til var sú að hvetja starfs­menn leik­skóla borg­ar­innar til að fá vini og ætt­ingja til að ráða sig í vinnu á leik­skóla, með 75 þús­und króna launa­auka ef ráðn­ing­ar­sam­band kæm­ist á.

Þetta hefur vakið nokkra athygli – og Félagi leik­skóla­kenn­ara líst ekki vel á áformin.

Í færslu félags­ins segir að stærsta verk­efni sveit­ar­fé­laga sé að fjölga leik­skóla­kenn­urum og hafi lengi verið. „Leik­skóla­stigið hefur þró­ast hratt sem skóla­stig. Ákvarð­anir sam­fé­lags­ins um að taka sífellt inn yngri og yngri börn án þess að hugsa málið fylli­lega til enda hefur aukið á vand­ann, aukið mönn­un­ar­þörf og hægt á hlut­falls­legri fjölgun leik­skóla­kenn­ara þrátt fyrir mikla fjölgun í leik­skóla­kenn­ara­námi und­an­farin ár,“ segir í færslu félags­ins.

Vöxtur leikskólastigsins of hraður

Í færsl­unni segir enn fremur að starfs­fólki við upp­eldi og menntun í leik­skólum hafi fjölgað um 3.000 í 6.000 á árunum 1998 til 2019.

[adspot]

„Félag leik­skóla­kenn­ara þreyt­ist ekki að benda á að of hraður vöxtur leik­skóla­stigs­ins er helsta ástæða þess að ekki hefur tek­ist að fjölga leik­skóla­kenn­urum hlut­falls­lega á þessu tíma­bili. Sveit­ar­fé­lögin verða að fara að taka þau varn­að­ar­orð alvar­lega,“ segir í færslu félags­ins.

Reykja­vík­ur­borg er um þessar mundir með verk­efni í gangi sem kallað er Brúum bilið, en það felst fyrst og fremst í upp­bygg­ingu nýrra leik­skóla. Mark­miðið er að hægt verði að bjóða öllum börnum 12 mán­aða og eldri leik­skóla­vist í höf­uð­borg­inni. Í til­lögum frá skóla- og frí­stunda­sviði borg­ar­innar sem voru til umræðu í borg­ar­ráði í gær sagði að gert væri ráð fyrir mik­illi fjölgun leik­skóla­plássa næstu árin – og að það fæli í sér að fjölga þyrfti starfs­mönnum á leik­skólum um 250-300 næstu 3-4 árin.

Það væri því „mat mannauðs­þjón­ustu og leik­skóla­skrif­stofu skóla- og frí­stunda­sviðs og mannauðs- og starfs­um­hverf­is­sviðs borg­ar­innar að gera þurfi meira en í með­al­ári til að styðja leik­skóla í ráðn­ingar- og mannauðs­málum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár