Þær íbúðir sem Félagsbústaðir, félag utan um félagslegar leiguíbúðir í eigu Reykjavíkurborgar, á voru metnar á 126,5 milljarða króna samkvæmt nýbirtum ársreikningi borgarinnar. Eigið fé félagsins er nú um 67,3 milljarðar króna.
Virði íbúðanna, sem eru rúmlega þrjú þúsund talsins, hækkaði um 20,5 milljarða króna á síðasta ári, sem er í takti við þær gríðarlegu hækkanir sem hafa orðið á íbúðarverði á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði. Samkvæmt nýjustu tölum frá Þjóðskrá hækkaði vísitala íbúðarverðs á svæðinu um 22,2 prósent frá mars 2021 og fram í mars 2022.
Hækkunin á eignum Félagsbústaða endurspeglar hækkun á fasteignamati á tímabilinu febrúar 2020 til febrúar 2021 umfram vísitöluhækkun febrúar 2020 til áramóta 2020 og hækkun vísitölu frá febrúar 2021 og til áramóta 2021.
[adspot]Þetta er langhæsta matsbreytingin á fjárfestingaeignum Félagsbústaða sem nokkru sinni hefur átt sér stað á einu ári. Fyrra metið var sett árið 2016 þegar verðbreyting á þeim fasteignum sem Félagsbústaði á og ætlaðar eru til útleigu hækkuðu um 10,9 milljarða króna. Árið 2017 hækkuðu eignirnar um 8,5 milljarða króna, ári síðar um þrjá milljarða og 2019 hækkuðu eignirnar um 4,8 milljarða króna. Þær hækkuðu svo um 1,8 milljarð króna árið 2020. Samanlagt hækkuðu þær því um 18 milljarða króna á fjórum árum. Í fyrra, á einu ári, hækkuðu þær um 2,5 milljarði króna umfram það sem þær höfðu hækkað fjögur árin á undan.
Halda á 3.012 íbúðum
Í Reykjavík er 78 prósent af öllu félagslegu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, þótt íbúar höfuðborgarinnar séu 56 prósent íbúa á svæðinu. Íbúðir Félagsbústaða eru 5,1 prósent af öllum íbúðum í Reykjavík.
[links]Alls halda Félagsbústaðir á 3.012 íbúðum. Almennar íbúðir eru 2.182, 447 eru svo útbúnar fyrir fatlaða og 383 eru fyrir aldraða. Að öllu meðtöldu er 22 félagsleg íbúð á hverja 1.000 íbúa Reykjavíkur – en þeir voru 135.590 talsins um síðust áramót. Heildarfjöldi félagslegra íbúða í Reykjavík við árslok 2017 var sagður 2.513 og hefur þeim því fjölgað um 499 síðan þá.
Í könnun sem var gerð í fyrra kom fram að 84 prósent leigjenda óhagnaðardrifinna leigufélaga á borð við Félagsbústaði eru ánægðir með að leigja þar. Ánægjan hjá þeim sem leigja hjá einkareknu leigufélögunum á Íslandi er hins vegar mun minni, en á meðal leigjenda þeirra segjast 64 prósent vera ánægð með núverandi húsnæði.
Töluverður munur er á því að leigja af einkaaðila og því að leigja af hinu opinbera. Í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem birt var í október 2021 kom fram að það kosti að meðaltali 168 þúsund krónur á mánuði að leigja af einkaaðila en 126 þúsund krónur á mánuði að leigja íbúð í eigu ríkis eða sveitarfélaga.
Því er þriðjungi dýrara að leigja af einkaaðila en af opinberum aðila.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir