Tekjur vegna fasteignaskatta í Reykjavík stóðu nánast í stað milli ára

Eftir mikla tekju­aukn­ingu vegna inn­heimtu fast­eigna­skatta á árunum 2017, 2018 og 2019 hafa tekjur höf­uð­borg­ar­innar staðið nokkurn veg­inn í stað síð­ustu ár. Þær eru samt sem áður umtals­verðar, eða rúm­lega 44 millj­arðar króna á tveimur árum.

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna inn­heimtra fast­eigna­skatta námu 22,4 millj­örðum króna í fyrra og voru í sam­ræmi við gerða fjár­hags­á­ætlun. Þær hækk­uðu alls 368 millj­ónir króna milli ára og hafa sam­an­lagt verið 44,4 millj­arðar króna tveimur árum, 2020 og 2021.

Þetta kemur fram í skýrslu fjár­mála- og áhættu­stýr­inga­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sem fylgdi með árs­reikn­ingi henn­ar.

Það þarf að leita langt aftur til að finna jafn litla hækkun á inn­heimtum fast­eigna­sköttum og á síð­ustu tveimur árum, en tekju­stofn­inn hækk­aði um 2,9 millj­arða króna milli 2018 og 2019 og um þrjá millj­arða króna milli 2017 og 2018.

Það var 2,9 millj­örðum krónum meira en borgin inn­heimti í slíka skatta árið áður og 5,9 millj­örðum krónum meira en árið 2017, þegar tekjur hennar vegna þeirra námu námu 15,1 millj­arði króna.

Miklar hækk­anir á fasteignaverði skýra auknar tekjur

Sveit­­­ar­­­fé­lög lands­ins eru með tvo meg­in­­­tekju­­­stofna. Ann­­­ars vegar rukka þau útsvar, sem er beinn skattur á tekjur sem rennur til þess sveit­­­ar­­­fé­lags sem við­kom­andi býr í. Hins vegar rukka þau fast­­­eigna­skatt.

[adspot]Slík gjöld eru aðal­­­­­lega tvenns kon­­­ar. Ann­­­ars vegar er fast­­­eigna­skattur og hins vegar lóð­­­ar­­­leiga. Auk þess þurfa íbúar að greiða sorp­­­hirð­u­­­gjald og gjald vegna end­­­ur­vinnslu­­­stöðva sem hluta af fast­­­eigna­­­gjöldum sín­­­um.

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna fast­eigna­skatta næstum tvö­föld­uð­ust frá árinu 2013 og fram til loka árs 2019, en á tíma­bil­inu fóru þær úr 11,6 millj­örðum króna í 21,1 millj­arð króna.

Ástæðan er sú að fast­eigna­verð í höf­uð­borg­inni hækk­aði mikið á umræddu tíma­bili. Á íbúð­ar­hús­næði hækk­aði það til að mynda um 81 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­in­u. Frá mars í fyrra hefur íbúða­verð áfram hækkað stöðugt á svæð­inu, eða alls um 22,2 pró­sent.

[links]Fast­­eigna­skattur á íbúð­­ar­hús­næði var lækk­­aður um tíu pró­­sent á árinu 2017 úr 0,20 í 0,18 pró­­sent. Þannig er hann enn. Auk þess voru afslættir aldr­aðra og öryrkja af slíkum gjöldum aukn­­ir.

Á meðal þeirra aðgerða til að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp kom vegna efna­hags­legra áhrifa útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um, og borg­ar­ráð sam­þykkti í lok mars 2020, var frestur á greiðslu allt að þriggja gjald­daga fast­­­eigna­skatta á árinu 2020. Það úrræði hafði áhrif á tekjur vegna fast­eigna­skatta á því ári.

Borg­ar­ráð ákvað á sama tíma ákveðið að flýta áformum sínum um að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði úr 1,65 í 1,60 pró­sent, en sú breyt­ing tók þó ekki gildi fyrr en í byrjun árs í fyrra, og hafði því nei­kvæð áhrif á tekjur vegna þeirra á árinu 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár