Reykjavík reiknaði með 3,3 milljarða tapi en hagnaðist þess í stað um 23,4 milljarða

Rekstur þess hluta Reykja­vík­ur­borgar sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum gekk mun betur í fyrra en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Miklar hækk­anir á hús­næð­is­verði leiddu svo til þess að bók­fært virði félags­legra íbúða jókst um 20,5 millj­arða króna á einu ári.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar vegna rekstr­ar­árs­ins 2021 var gert ráð fyrir að sam­stæða hennar, bæði A- og B-hluti rekstr­ar­ins, myndi skila 3,3 millj­arða króna tapi. Nið­ur­staðan í rekstr­inum reynd­ist allt önnur, eða 23,4 millj­arða króna hagn­aður.

Þetta er nið­ur­staða sem er afar frá­brugðin því sem var árið áður, en þá gerði borgin ráð fyrir að hagn­ast um 11,9 millj­arða króna en tap­aði á end­anum 2,8 millj­örðum króna. Heims­far­aldur kór­ónu­veiru lit­aði það upp­gjör veru­lega.

Í árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar, sem birtur var í dag, kemur fram að sá hluti rekstrar hennar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, svo­kall­aður A-hluti, hafi verið rek­inn í 3,8 millj­arða króna tapi. Það er umtals­vert betri nið­ur­staða en fjár­hags­á­ætlun gerði ráð fyrir, en í henni var reiknað með 12 millj­arða króna tapi á þessum hluta rekst­urs­ins. Tap A-hluta höf­uð­borg­ar­innar var tveimur millj­örðum króna minna í fyrra en árið 2020.

Stærsta frá­vikið frá áætl­un­inni er að skatt­tekjur voru ein­fald­lega um 6,3 millj­örðum krónum hærri en reiknað hafði verið með á árinu 2021, og alls 110,5 millj­arðar króna. Alls voru tekjur A-hluta borg­ar­innar 142,3 millj­arðar króna, sem var 7,7 millj­örðum krónum meira en áætlun gerði ráð fyrir og heilum 14,6 millj­örðum krónum hærri en þær voru árið 2020. Rekstr­ar­gjöld voru um hálfum millj­arði króna lægri en gert var ráð fyrir í fjár­hags­á­ætlun en hækk­uðu samt um 9,6 millj­arða króna milli ára.

[adspot]Ástæða þess að rekstr­ar­gjöldin voru lægri er sú að reiknað hafði verið með að borgin þyrfti að borga 3,5 millj­arða króna vegna hækkun líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Engin þörf reynd­ist á því fram­lagi vegna þess að ávöxtun eigna Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar var langt umfram það sem reiknað hafði verið með.

Hækkun á fasteignaverði skilaði 20,5 milljörðum

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­inn­ar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­bú­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­ar­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­borg­­ar­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Rekstur þessa hluta var langt yfir áætlun, eða jákvæður um 19,6 millj­arða króna. Áætlun hafð igerð ráð fyrir að hann yrði nei­kvæður um 8,6 millj­arða króna. Þar munar mestu um að mats­breyt­ingar fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða, sem halda utan um 3.012 félags­legar leigu­í­búðir í eigu borg­ar­innar, voru langt umfram áætlun, enda fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 22 pró­sent síð­ustu tólf mán­uði. Fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir að virði íbúð­anna myndi aukast um 1,1 millj­arð króna í fyrra en raunin varð 20,5 millj­arða króna hækkun.

Í Reykja­vík er 78 pró­sent af öllu félags­legu hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þótt íbúar höf­uð­borg­ar­innar séu 56 pró­sent íbúa á svæð­in­u.

Þá voru jákvæð áhrif af gang­virð­is­breyt­ingum inn­byggðra afleiða í raf­orku­sölu­samn­ingum Orku­veitu Reykja­víkur umtals­verð, en þau voru 6,6 millj­arðar króna á árinu 2021.

Segir niðurstöðuna staðfesta ábyrga fjármálastjórn

Í til­kynn­ingu vegna birt­ingar árs­reikn­ings­ins, sem var lagður fyrir borg­ar­ráð í dag, er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra að nið­ur­staðan sé mun sterk­ari en áætl­anir gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir mik­inn auka kostnað vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sér­stak­lega í skólum og vel­ferð­ar­þjón­ust­unni.

Hann seg­ist stoltur af því hvernig þessi tvö ár, 2020 og 2021, gengu í þjón­ustu við borg­ar­búa. „Við brugð­umst einnig við heims­far­aldr­inum með því að auka fjár­fest­ingar í stað þess að draga saman seglin. Þar erum við að fjár­festa í innviðum hverf­anna okkar og lífs­gæðum fyrir borg­ar­búa, með grænum áherslum í sam­ræmi við Græna planið. Þessi árs­reikn­ingur stað­festir því ábyrga fjár­mála­stjórn, öflug og rétt við­brögð við erf­iðum aðstæðum, góða frammi­stöðu starfs­fólks og stjórn­enda, og sterka stöðu borg­ar­sjóðs og sam­stæð­unnar í heild. Það er gott vega­nesti inn í fram­tíð­ina og fyrir þá miklu upp­bygg­ingu sem framundan er.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár