Smáhýsi fyrir heimilislausa í Laugardalnum þokast nær

Áform um smá­hýsi fyrir heim­il­is­lausa á borg­ar­landi milli Suð­ur­lands­brautar og Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins hafa verið sam­þykkt í skipu­lags- og sam­göngu­ráði. Íþrótta­fé­lög, fast­eigna­fé­lagið Reitir og fleiri lögð­ust gegn þess­ari stað­setn­ingu smá­hýsanna.

Sambærilegum smáhýsum hefur þegar verið komið upp í Gufunesi.
Sam­bæri­legum smá­hýsum hefur þegar verið komið upp í Gufunesi. Mynd: Reykjavíkurborg

Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti á fundi sínum á mið­viku­dag breyt­ingu á deiliskipu­lagi í aust­ur­hluta Laug­ar­dals, sem felur í sér að afmörkuð er lóð undir allt að fimm smá­hýsi fyrir heim­il­is­lausa Reyk­vík­inga, skjól­stæð­inga vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar.

Úrræðið á að vera tíma­bundið og víkj­andi í skipu­lagi og því ekki að hafa áhrif á lang­tíma­notk­un­ar­mögu­leika svæð­is­ins.

Svæðið sem um ræðir er á milli Suð­ur­lands­brautar og Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðs­ins, stein­snar frá Glæsibæ. Þar er í dag mal­ar­bílaplan og tún á borg­ar­landi. Málinu hefur nú verið vísað áfram til borg­ar­ráðs. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks í skipu­lags- og sam­göngu­ráði sátu hjá við afgreiðsl­una.

Skipu­lags­full­trúi Reykja­vík­ur­borgar lagði til að til­lagan yrði sam­þykkt óbreytt, í umsögn sinni sem dag­sett er 19. febr­úar og má sjá hér, ásamt hluta af þeim umsögnum sem bár­ust um málið er það var til umsagnar síð­asta vor.

Íþróttafélög sögðust óttast um öryggi barna

Málið mætti tölu­verðri and­stöðu íþrótta­fé­laga í Laug­ar­dalnum. Í sam­eig­in­legri athuga­semd full­trúa Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Þróttar, Glímu­fé­lags­ins Ármanns, list­hlaupa­deildar Skauta­fé­lags Reykja­víkur, Tennis- og bad­mint­on­fé­lags Reykja­víkur og borð­tennis­deildar Víkings sagði að breyt­ing­arnar væru til þess fallnar að „ógna öryggi barna á leið í íþrótta- og tóm­stunda­starf“ og gætu leitt til þess að færri for­eldrar treystu sér til að senda börn sín ein á íþrótta­æf­ingar, þar sem öryggi þeirra væri ekki tryggt. Því yrði að skutla þeim.

„Bíla­um­ferð um dal­inn mun þá óhjá­kvæmi­lega aukast og jafn­vel mun ein­hver hluti barna ekki geta iðkað sína íþrótt,“ sögðu full­trúar íþrótta­fé­lag­anna. Þau sögðu smá­hýsin verð­ugt verk­efni, en þó mætti draga í efa að stærsta fjöl­skyldu- og íþrótta­svæði lands­ins væri rétti stað­ur­inn fyrir húsin.

Hvað með Geldinganesið, Vesturbæinn eða Breiðholt?

Íþrótta­fé­lög voru ekki þau einu sem settu sig upp á móti mál­inu, en alls bár­ust 69 umsagnir og athuga­semdir við fyr­ir­hug­aða deiliskipu­lags­breyt­ingu, flestar frá íbúum í Laug­ar­dalnum, sem margir stungu upp á öðrum stað­setn­ingum.

Samkvæmt umsögn skipu­lags­full­trúa, sem setti einnig fram svör við inn­komnum athuga­semdum, var m.a. stungið upp Geld­inga­nesi, Graf­ar­vogi, mið­borg, Vesturbæ, Breið­holti og Sunda­hafn­ar­svæð­inu í inn­sendum umsögnum.

Skipu­lags­full­trúi tekur fram að hann hafi verið opinn fyrir til­lögum að stað­setn­ingum sem upp­fylli þau skil­yrði sem nauð­syn­leg eru fyrir slíkt smá­hýsi, en bréf­rit­arar hafi þó ein­göngu nefnt aðra borg­ar­hluta, án þess að til­greina nán­ari stað­setn­ingar.

„Tekið er fram að allir borg­ar­hlutar eru – og hafa verið – til skoð­unar,“ segir í umsögn skipu­lags­full­trúa. Sam­bæri­leg smá­hýsi fyrir heim­il­is­lausa hafa nýlega verið tekin í notkun í Gufunesi. Verið er að skipu­leggja fleiri smá­hýsi á öðrum stöðum í borg­inni, til dæmis uppi á Stór­höfða. Fyrr í þessum mán­uði fjall­aði Frétta­blaðið um að rekstr­ar­að­ilar sem mót­mæla áformum um þrjú smá­hýsi þar hefðu reynt að fá deiliskipu­lag borg­ar­innar sem heim­ilar bygg­ingu þeirra fellt úr gildi. Án árang­urs.

Reitir hótuðu að hætta við að byggja upp Orkureitinn

Fast­eigna­fé­lagið Reitir hót­aði að falla frá upp­bygg­ing­ar­á­formum sínum á svoköll­uðum Orkureit handan Suð­ur­lands­brautar yrðu smá­hýsin byggð á þessum stað. Á reitnum eru áform um bygg­ingu íbúða sem gætu orðið heim­ili 1.000 manns.

[adspot]

Í umsögn fast­eigna­fé­lags­ins segir að upp­bygg­ing smá­hýsanna fimm myndi setja göngu­teng­ingu Orku­reits­ins yfir í Laug­ar­dal „í upp­nám“ og að smá­hýsin gætu jafn­framt haft veru­lega nei­kvæð áhrif á ímynd og sölu­mögu­leika íbúð­anna sem Reitir ætla að byggja.

„Verði deiliskipu­lagið sam­þykkt með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum, áskilur lóð­ar­hafi sér rétt til að end­ur­skoða upp­bygg­ing­ar­á­form á Orku­reitnum. Rétt er að minna á að stefna borg­ar­yf­ir­valda í skipu­lags­málum er sú að þétta byggð með­fram svoköll­uðum þró­unarás og fyr­ir­hug­aðri legu borg­ar­línu. Að mati Reita væri borgin með umræddri skipu­lags­á­kvörðun að vinna gegn þeirri stefnu, verði nið­ur­staðan á þá leið að lóð­ar­hafi hætti alfarið við upp­bygg­ing­ar­á­form sín og haldi áfram fast­eigna­rekstri núver­andi bygg­inga á lóð­inni eins og verið hefur,“ segir í umsögn Reita.

Skipu­lags­full­trúi svarar þessu sér­stak­lega í umsögn sinni og bendir á að núver­andi göngu­teng­ingar yfir Suð­ur­lands­braut­ina og niður í Laug­ar­dal verði enn til staðar. Einnig er Reitum bent á að þeir sem telji sig verða fyrir tjóni vegna skipu­lags­á­ætl­ana og geti sýnt fram á það tjón geti átt rétt á bótum úr sveit­ar­sjóði.

Vona að hverfið taki vel á móti nýjum íbúum

Full­trúar meiri­hlut­ans í skipu­lags- og sam­göng­ur­ráði létu bóka á fund­inum á mið­viku­dag að umrædd smá­hýsi væru hluti af hug­mynda­fræð­inni „Húsnæði fyrst“ sem er á vegum Vel­ferð­ar­sviðs og væru hugsuð til að hjálpa fólki sem hefði verið í heim­il­is­leysi og hefði miklar þjón­ustu­þarfir.

„Hafa ber í huga að þó þessi hús séu tíma­bundin í stað­setn­ingu sinni þá eru þau heim­ili fólks, ekki dval­ar­heim­ili eða lokuð stofnun, og þurfa að vera nálægt þeirri þjón­ustu og sam­fé­lags­innviðum sem borg­ar­búar þurfa að nýta. Ekki er auð­velt ná sátt um stað­setn­ingu þeirra í íbúða­byggð eða bland­aðri byggð, og því þarf að leita á staði sem eru í námunda við sömu inn­viði á öðrum skipu­lags­svæðum. Hér er um að ræða opið svæði, en sam­kvæmt gild­andi aðal­skipu­lagi er heim­ild til að koma fyrir slíkum búsetu­úr­ræðum á slíku svæði. Þó ber að hafa í huga að þau eru víkj­andi og hafa ekki áhrif á lang­tíma­notk­un­ar­mögu­leika svæð­is­ins. Full­trúar meiri­hlut­ans telja að nálægð við úti­vist­ar­svæði, almenn­ings­sam­göngur og sam­fé­lags­inn­viði muni hafa jákvæð áhrif á þau sem þar munu koma til með að búa og vona að hverfið taki vel á móti þeim,“ segir í bókun full­trúa borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans í skipu­lags- og sam­göngu­ráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár