Samstæða Reykjavíkur skilaði tæplega tólf milljarða hagnaði á fyrri hluta árs

Sá hluti rekstrar höf­uð­borg­ar­innar sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum skil­aði 7,3 millj­arða króna tapi á fyrri hluta árs. Mats­breyt­ingar á hús­næði Félags­bú­staða, hærra álverð og tekju­færsla geng­is­munar hjá Orku­veit­unni skil­aði hins vegar miklum hagn­aði.

Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 7,3 millj­arða króna tapi á fyrri hluta árs­ins 2021. Það er aðeins betri nið­ur­staða en áætlun gerði ráð fyrir, en hún hafði reiknað með tæp­lega átta millj­arða króna tapi á tíma­bil­inu. Afkoman var því 672 millj­ónum krónum betri en stefnt hafði verið að, aðal­lega vegna þess að útsvars­tekjur voru rúm­lega 3,1 millj­arði krónum meiri en áætlun hafði gert ráð fyrir. Á móti voru launa­út­gjöld 2,6 millj­örðum krónum yfir fjár­heim­ildum, að hluta til vegna aðgerða sem rekja má til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar sem lagður var fyrir borg­ar­ráð í dag.

Matsbreytingar, hærra álverð og gengishagnaður

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­innar, B-hlut­inn, skil­aði hins vegar miklu betri afkomu en reiknað hafði verið með, eða alls 13,1 millj­arði króna. Hann nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­ur, Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

[adspot]Fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir að sá hluti rekstr­ar­ins yrði rek­inn í 5,7 millj­arða króna hagn­aði á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en reyndin varð sú að hagn­aður af rekstri hans var 18,8 millj­arðar króna. Betri nið­ur­stöðu má einkum rekja til mats­breyt­ingu fjár­fest­inga­eigna hjá Félags­bú­stöðum, áhrifa hækk­aðs álverðs og tekju­færslu geng­is­munar vegna styrk­ingar krón­unnar frá ára­mótum hjá Orku­veit­unni.

Sam­an­lagt nam því hagn­aður A- og B-hluta Reykja­vík­ur­borgar alls 11,6 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.. Áætlun hafði gert ráð fyrir tapi upp á 2,3 millj­arða króna. Því nemur við­snún­ing­ur­inn frá áætlun að veru­leika alls 13,8 millj­örðum króna.

Eignir sam­stæð­unnar voru metnar á 745,4 millj­arða króna í lok júní síð­ast­lið­ins og hækk­uðu um 15 millj­arða króna frá ára­mótum. Skuldir hækk­uðu að sama skapi um 11,3 millj­arða króna og stóðu í 397,1 millj­örðum króna. Eig­in­fjár­hlut­fall Reykja­vík­ur­borgar er nú 46,7 pró­sent en var 47 pró­sent í lok árs 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár