Óska eftir að starfsemi vöggustofa í Reykjavík verði rannsökuð

Hópur manna sem vistaður var á vöggu­stofum og á fleiri opin­berum upp­eld­is­stofn­unum hefur óskað eftir fundi með borg­ar­stjóra. „Það er mik­il­vægt fyrir eft­ir­lif­andi börn að við­ur­kennt sé að vistun þeirra á vöggu­stofum borg­ar­innar olli þeim tjóni.“

Hópur manna óskar eftir því að borg­ar­stjórn skipi teymi sér­fræð­inga til rann­saka starf­semi Vöggu­stof­unnar að Hlíð­ar­enda og Vöggu­stofu Thor­vald­sens­fé­lags­ins og afleið­inga hennar í víðum skiln­ingi. Skoða þurfi „af hverju mann­skemm­andi upp­eld­is­stefna varð fyrir val­inu og við lýði eftir að skað­semi hennar var ljós“.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá hópnum, en hann skipa Árni H. Krist­jáns­son, Fjölnir Geir Bragason, Hrafn Jök­uls­son, Tómas V. Alberts­son og Viðar Egg­erts­son. Allir voru þeir vistaðir á vöggu­stofum og flestir á fleiri opin­berum upp­eld­is­stofn­unum.

Munu þeir eiga fund með með borg­ar­stjóra, Degi B. Egg­erts­syni, mið­viku­dag­inn næst­kom­andi á skrif­stofu borg­ar­stjóra í Ráðhúsi Reykja­víkur og ræða málið við hann.

Mikilvægt að viðurkenna að vistun barna hafi ollið þeim tjóni

Þeir vilja að kannað verði hversu mörg börn voru vistuð á vöggu­stof­unum á starfs­tíma þeirra; hvernig þeim heils­að­ist eftir vist­ina og hvernig þeim gekk að fóta sig í líf­inu.

„Þetta er afar brýnt atriði því nú þegar liggja fyrir vitn­is­burðir skjól­stæð­inga vöggu­stof­anna um slæma and­lega heilsu og erf­ið­leika á lífs­leið­inni. Það er mik­il­vægt fyrir eft­ir­lif­andi börn að við­ur­kennt sé að vistun þeirra á vöggu­stofum borg­ar­innar olli þeim tjóni. Einnig er brýnt að rann­saka hvernig börnum var ráð­stafað í fóstur eða til ætt­leið­inga, for­sendur, fjölda þeirra og afdrif,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Málið liggur enn í þagnargildi

Þá kemur fram að Vöggu­stofan að Hlíð­ar­enda og Vöggu­stofa Thor­vald­sens­fé­lags­ins hafi verið reknar af Reykja­vík­ur­borg sem bar ábyrgð á starf­sem­inni. Ljóst sé að með­ferð á börnum sem vistuð voru á stofn­un­unum olli þeim og fjöl­skyldum þeirra mis­miklum skaða.

„Dr. Sigurjón Björns­son sýndi fram á að oft var skaði barn­anna var­an­legur vegna þess rofs sem var til­finn­inga­legum þroska þeirra. Þrátt fyrir háværa gagn­rýni á starfs­hátt­unum þá brást borg­ar­stjórn lítt eða ekk­ert við. Löngu síðar eða árið 1993 komst starf­semi vöggu­stofa aftur í hámæli í kjöl­far frum­flutn­ings útvarps­þáttar Viðars Egg­erts­sonar, „Eins og dýr í búri“. Þátt­ur­inn hefur verið end­ur­fluttur nokkrum sinnum og jafnan vakið athygli. Það hefur þó ekki orðið til þess að hreyfa við borg­ar­stjórn og málið liggur því enn í þagn­ar­gildi á þeim vett­vangi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Benda þeir á að dæmi séu um að fóstur og ætt­leið­ingar barna frá vöggu­stof­unum hafi verið á vafasömum for­sendum. Það hafi verið á almanna­vit­orði að þangað skyldu barn­laus hjón leita eftir börnum. Enn fremur hafi mæður barn­anna yfir­leitt verið í erf­iðri félags­legri stöðu, eins og ungar ein­stæðar mæður eða ein­fald­lega fátækar. Auk þess hafi þessar mæður átt það sam­merkt að hafa veikt bak­land. Því hafi þær brotnað undan þrýst­ingi félags­mála­yf­ir­valda og afsalað sér börnum sínum.

Hægt er að lesa for­sögu máls­ins og yfir­lýs­ing­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár