Dagur með bók um „Nýju Reykjavík“ og sviptir hulu af því sem gerðist bakvið tjöldin

Borg­ar­stjóri fer yfir atburða­rás síð­ustu ára í borg­arpóli­tík­inni í bók sem hann hefur skrifað. Þar mun hann einnig greina frá nýjum áformum Reykja­vík­ur­borgar sem liggi loft­inu, en eru á fárra vit­orði. Búist er við því að hann verði í fram­boði í vor.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, hefur ritað bók sem kall­ast „Nýja Reykja­vík – umbreyt­ingar í ungri borg“. Hún kemur út í aðdrag­anda jóla.

Greint er frá þessu í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir að í bók­inni fjalli Dagur um „þau umskipti sem hann hefur séð á borg­ar­líf­inu á und­an­förnum ára­tugum og munu verða á kom­andi árum.


Samhliða því að fjalla um þróun nýju Reykja­víkur rekur hann atburða­rás­ina í borg­arpóli­tík­inni, sem var væg­ast sagt lit­rík og er frá­sögnin mjög per­sónu­leg í þeim köflum.“

Í frétt blaðs­ins er haft eftir Degi að hul­unni verði svipt af ýmsu „sem gerð­ist á bak við tjöldin sem og metn­að­ar­fullum áformum sem liggja í loft­inu, en eru á fárra vit­orði.“

Búist við því að Dagur leiði áfram Samfylkinguna

Næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í maí á næsta ári. Lang­flestir borg­ar­full­trúar hafa þegar gefið það út að þeir muni sækj­ast eftir end­ur­kjöri en búist er við odd­vitaslag hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, þar sem Hildur Björns­dóttir og mögu­lega fleiri munu gera atlögu að sæti Eyþórs Arnalds, sem hann hyggst sækj­ast eftir að nýju. Þar mun fara fram próf­kjör. Góður gangur Fram­sókn­ar­flokks­ins í síð­ustu þing­kosn­ingum í Reykja­vík, þar sem flokk­ur­inn fékk 11,5 pró­sent atkvæða í Reykja­vík suður og 12,3 pró­sent í Reykja­vík norður, hafa sett byr í segl þess flokks fyrir kosn­ing­arnar og margir eru að máta sig við að leiða það fram­boð, Framsókn beið afhroð í kosn­ing­unum 2018 þegar flokk­ur­inn fékk ein­ungis 3,2 pró­sent atkvæða og engan borg­ar­full­trúa.

[adspot]Dagur hefur enn ekki gefið út hvort hann ætli að sækj­ast eftir end­ur­kjöri, en heim­ildir Kjarnans herma að hann muni gera það. Útgáfa bók­ar­innar sé liður í kosn­inga­bar­áttu hans. Í Frétta­blað­inu er boðað helg­ar­við­tal við Dag sem birt­ist í laug­ar­dags­út­gáfu þess. Vænta má þess að þar verði hann spurður út í áform sín fyrir kom­andi kosn­ingar.

Dagur hefur setið í borg­ar­stjórn lengur en nokkur annar sem þar situr nú, eða frá árinu 2002, fyrst fyrir Reykja­vík­ur­list­ann en síðan fyrir Sam­fylk­ing­una. Hann hefur gegnt emb­ætti borg­ar­stjóra frá árinu 2014 en var áður borg­ar­stjóri í hund­rað daga, frá októ­ber 2007 til jan­úar 2008. Eina skiptið á ferli Dags sem hann hefur setið í minni­hluta er kjör­tíma­bilið 2006 til 2010, að und­an­skildum áður­nefndum 100 dögum, en miklar svipt­ingar voru í borg­ar­stjórn á þessum árum og alls fjórir meiri­hlutar mynd­aðir.

Langt síðan síðasta könnun var gerð

Langt er síðan könnun var gerð á fylgi flokka í Reykja­vík­ur­borg, sem er næst stærsta stjórn­vald lands­ins. Í síð­ustu birtu könnun á fylgi flokka þar, sem Gallup gerði og var birt 4. mars síð­ast­lið­inn, kom fram að Sam­fylk­ingin mæld­ist með mest fylgi allra flokka í borg­inni. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins mæld­ist með 26,4 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni sem er rétt yfir kjör­fylgi hans, en Sam­fylk­ingin fékk 25,9 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. Það er mun sterk­ari staða en hjá Sam­fylk­ing­unni á lands­vísu, en hún fékk 9,9 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber og tap­aði fylgi milli kosn­inga.

[links]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir síð­ustu kosn­ingar með 30,8 pró­sent fylgi, hefur tapað fylgi á kjör­tíma­bil­inu sam­kvæmt þeirri könnun. Fylgi hans mæld­ist 25,2 pró­sent í mars eða 5,6 pró­sentu­stigum minna en 2018.

Allir flokk­arnir fjórir – Sam­fylk­ing, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn – sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík undir for­ystu Dags höfðu sam­kvæmt könn­un­inni bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Píratar höfðu bætt við sig 2,8 pró­sentu­stigum og mæld­ust þriðji stærsti flokkur borg­ar­innar í mars með 10,5 pró­sent fylgi. Við­reisn stóð nokkurn veg­inn í stað og mæld­ist með 8,9 pró­sent stuðn­ing. En mesta breyt­ingin voru á fylgi Vinstri grænna, sem biðu afhroð í kosn­ing­unum 2018 og fengu þá aðeins 4,6 pró­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins mæld­ist 8,9 pró­sent í mars.

Ef nið­ur­staða könn­unar Gallup yrði það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum myndi það þýða að Vinstri græn myndu bæta við sig einum borg­ar­full­trúa á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks og þar með styrkja meiri­hlut­ann um einn borg­ar­full­trúa, og fara með hann upp í 13 af 23.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti sömu­leiðis end­ur­komu í borg­ar­stjórn með einn borg­ar­full­trúa á kostnað Flokks fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár