A-hluti Reykjavíkurborgar verður rekinn í 18,9 milljarða halla á árunum 2020 til 2022

Spár og áætl­anir gera ráð fyrir að sam­stæða Reykja­vík­ur­borgar verði rekin í afgangi á næsta ári sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun. Sá hluti borg­ar­innar sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum verður hins vegar rek­inn í tapi.

Meirihluti borgarstjórnar í Reykjavíkur samanstendur af Samfylkingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. Þau hafa setið að völdum frá 2018.
Meiri­hluti borg­ar­stjórnar í Reykja­víkur sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum. Þau hafa setið að völdum frá 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Stefnt er að því að reka sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar með 8,6 millj­arða króna afgangi á næsta ári sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir árið 2022 sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag. Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekj­um, svo­kall­aður A-hluti, verður hins vegar að óbreyttu rek­inn með 3,4 millj­arða króna halla. Sá halli bæt­ist við 9,7 millj­arða króna halla á A-hlut­anum í ár sam­kvæmt útkomu­spá og 5,8 millj­arða króna halla á honum í fyrra.

Sam­an­lagt er því gert ráð fyrir að A-hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar verði rek­inn í 18,9 millj­arða króna halla á árunum 2020 til 2022.

Þetta kemur fram í fjár­hagsa­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir næsta ár sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í dag.

Samstæða borg­ar­innar mun hins vegar skila alls 23,2 millj­arða króna hagn­aði á tíma­bil­inu gangi spár og áætl­anir eftir. Þar skiptir máli að hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­inn­ar, B-hlut­inn, á að skila miklum hagn­aði á árunum 2021 og 2022. Hann nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­­­ur, Faxa­fló­a­hafnir sf., Félags­­­bú­­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­­ar­­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­­borg­­ar­­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg vegna fram­lagn­ingu fjár­hags­á­ætl­un­ar­innar segir að góðan afgang megi einkum rekja til Orku­veitu Reykja­víkur og Félags­bú­staða hf. vegna mats­breyt­inga fjár­fest­inga­eigna félags­ins.

66 milljarða hagnaður á fjórum árum

Í fimm ára áætlun borg­ar­innar sem var líka lögð fram í dag er gert ráð fyrir að afkoma sam­stæð­unnar batni á tíma­bil­inu 2023 til 2026. Gert er ráð fyrir að hagn­aður sam­stæð­unnar verði sam­tals 66,2 millj­arðar króna á því fjög­urra ára tíma­bili.

[adspot]Þar er gert ráð fyrir að A-hlut­inn, sá sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum, skili afgangi strax á árinu 2023 og að hann verði tveir millj­arðar króna. Rekstr­ar­hagn­að­ur­inn fari svo batn­andi í kjöl­farið og verði sam­tals 20,5 millj­arðar króna á árunum 2024 til 2026.

Í aðgerð­ar­á­ætlun sem lögð er fram til að ná þessum árangri segir að það eigi að ná eins pró­sents hag­ræð­ingu á ári á launa­kostnað í gegnum aðhalds­að­gerðir og staf­ræna umbreyt­ingu á tíma­bil­inu 2022-2025. Þá verði ein­ungis verð­bættar samn­ings­bundnar skuld­bind­ingar og hag­ræð­ingu náð í rekstri með mið­lægum inn­kaupum og aðhalds­að­gerðum á tíma­bil­inu 2022-2025. Halda á áfram með vinnu­mark­aðs­að­gerðir fram eftir næsta ári með það að mark­miði að skapa störf fyrir ein­stak­linga sem eru á fjár­hags­að­stoð eða atvinnu­leys­is­bótum og stuðla að bættri nýt­ingu hús­næðis með auk­inni samnýt­ingu.

Borgin vill auk þess tryggja óhindrað fram­boð íbúða og hús­næðis með skipu­legri þróun nýrra hverfa sem eigi að laða að íbúa og efla tekju­stofna. Þá verður leitað samn­inga við ríkið um leið­rétt­ingu á fram­lögum vegna lög­bund­inna verk­efna, einkum vegna þjón­ustu við fatlað fólk, og fjár­magns­skipan fyr­ir­tækja borg­ar­innar verður end­ur­skoðuð. Að lokum er til­tekið að ráð­ast eigi í aðgerðir til að bæta skatt­skil í sam­starfi við ríkið.

Kosið verður til borg­ar­stjórnar næsta vor. Því er ekki víst að núver­andi meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna, sem leggur fram áætl­un­ina til næstu fimm ára, verði með umboð til að fylgja henni eftir.

Dagur segir að vaxið verði út úr Covid

Í til­kynn­ingu borg­ar­innar segir að síð­ustu 20 mán­uðir eigi sér enga hlið­stæðu í íslensku efna­hags­lífi. „Kór­óna­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft áhrif á starf­semi fyr­ir­tækja í nær öllum atvinnu­greinum sem leiddi til fjölda upp­sagna auk þess að stór partur af vinnu­afli fór á hluta­bóta­leið­ina. Aukið atvinnu­leysi hefur að mestu verið vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á þjón­ustu­greinar og mun bati í atvinnustigi að mestu fylgja auknum fjölda ferða­manna næstu árin. Þrátt fyrir að enn sé óvissa um fram­gang far­ald­urs­ins eru vonir bundnar við að hann sé í rénun. Sé litið til Reykja­víkur þá hefur almennt atvinnu­leysi auk­ist mikið und­an­farin 2 ár en hefur þó minnkað jafnt og þétt frá því í febr­úar 2021. Með­al­at­vinnu­leysi var 9 pró­sent árið 2020 en mæld­ist 5,8 pró­sent í sept­em­ber 2021. Þrátt fyrir spá um að hag­vöxtur glæð­ist á þessu og næstu árum verður atvinnu­leysi þó áfram nokkuð hátt sögu­lega séð.“

[links]Hin nei­kvæða nið­ur­staða A-hluta megi rekja til efna­hag­skrepp­unnar og magnaukn­inga einkum í vel­ferð­ar­þjón­ustu vegna auk­inna skuld­bind­inga af hálfu rík­is­ins sem lagðar eru á sveit­ar­fé­lög með laga­setn­ingu og reglu­gerðum án þess að tekju­stofnar séu styrktir.

Þar er haft eftir Degi B. Egg­erts­syni, borg­ar­stjóra Reykja­víkur, að borgin muni vaxa út úr þeim vanda sem Covid skilji eftir sig. „Nið­ur­stöður eru í sam­ræmi við Græna planið sem lagt var fram í fyrra og er sýn borg­ar­innar til skamms og lengri tíma. Grænum fjár­fest­ingum hefur verið flýtt, við bætum sér­stak­lega við við­haldsfé í skóla- og frí­stunda­húsæði. Verður 25-30 millj­örðum varið til þeirra næstu 5-7 ár. Það dugir til að vinna upp það við­hald sem sparað var á árunum eftir hrun. Grunn­skól­inn verður einnig betur fjár­magn­aður á grunni nýs úthlut­un­ar­lík­ans og vel­ferð­ar­svið fær fjár­muni til að mæta áskor­unum og auk­inni þjón­ustu. Borgin er að sækja fram og næsti ára­tugur verður ára­tugur Reykja­víkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár