Reykjavíkurborg ætlaði að hagnast um 11,9 milljarða en tapaði á endanum 2,8 milljörðum

Heims­far­aldur kór­ónu­veiru hafði veru­leg áhrif á rekstr­ar­nið­ur­stöðu Reykja­vík­ur­borgar í fyrra. Sá hluti rekstr­ar­ins sem er fjár­magn­aður með skatt­tekjum skil­aði 5,8 millj­arða króna tapi. Eignir höf­uð­borg­ar­innar uxu þó meira en skuldir hennar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Sá hluti rekstrar Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum, svo­kall­aður A-hluti, skil­aði 5,8 millj­arða króna tapi í fyrra.

Áætlun hafði gert ráð fyrir því að afkoma af rekstri hans yrði jákvæð um 1,5 millj­arða króna. Því var afkoma A-hlut­ans 7,3 millj­örðum króna undir áætlun.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar sem lagður var fyrir borg­ar­ráð í dag.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna þessa segir að rekstr­ar­nið­ur­staða A-hlut­ans skýrist einkum af áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Sala bygg­ing­ar­réttar var ofá­ætluð um 3,2 millj­arða króna, skatt­tekjur voru 2,7 millj­örðum króna undir áætlun, launa­kostn­aður var 1,7 millj­arði króna yfir áætlun og annar ósund­ur­lið­aður rekstr­ar­kostn­aður var tæp­lega 1,2 millj­örðum króna yfir áætlun.

Samdráttur í tekjum hjá fyrirtækjum í eigu borgarinnar

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­innar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­vík­ur, Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Afl­vaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

[adspot]Rekstur þess hluta var líka tölu­vert undir áætlun í fyrra, en hann var þó jákvæður um alls þrjá millj­arða króna. Sömu skýr­ingar eru gefnar á þeirri stöðu, áhrif far­ald­urs­ins höfðu nei­kvæð áhrif á til dæmis tekjur Faxa­flóa­hafna, Strætó bs og Sorpu. Þá hafði veik­ing krón­unnar umtals­verð áhrif á erlend lán Orku­veitu.

Sam­an­lagt nam því tap A- og B-hluta Reykja­vík­ur­borgar alls 2,8 millj­örðum króna í fyrra. Áætlun hafði gert ráð fyrir hagn­aði upp á 11,9 millj­arða króna. Því nemur við­snún­ing­ur­inn frá áætlun að veru­leika alls 14,7 millj­örðum króna.

Eignir sam­stæð­unnar voru metnar á 730,4 millj­arða króna í lok síð­ast árs og hækk­uðu um 41,5 millj­arða króna í fyrra. Skuldir hækk­uðu að sama skapi um 40,9 millj­arða króna og stóðu í 385,8 millj­örðum króna um ára­mót. Eig­in­fjár­hlut­fall Reykja­vík­ur­borgar er nú 47,2 pró­sent en var 49,9 pró­sent í lok árs 2019.

Var líka undir áætlun 2019

Afkoma borg­ar­innar var líka tölu­vert frá áætl­unum árið 2019, áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. á var A-hlut­inn rek­inn með tæp­lega 1,4 millj­arða króna hagn­aði en áætlun hafði gert ráð fyrir hagn­aði upp á 3,6 millj­arða króna. Því var afkoma A-hlut­ans þá um 2,2 millj­örðum króna undir áætlun.

Meiri bók­færður hagn­aður var af rekstri B-hlut­ans en áætl­anir gerðu ráð fyrir árið 2019. Þar skiptir mestu að mats­breyt­ingar fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða skil­uðu 3,5 millj­örðum króna hærri tekju­færslu en fjár­hags­á­ætlun hafði reiknað með.

Þetta skil­aði því að sam­an­lögð rekstr­ar­nið­ur­staða borg­ar­innar var 792 millj­ónum krónum lak­ari en í fjár­hags­á­ætlun sem gerð hafði verið fyrir árið 2019, eða 11,2 millj­arðar króna.

Einn bendir á græna planið, hinn á skuldasöfnun

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, segir í til­kynn­ingu að Reykja­vík­ur­borg hafi sett fram öfl­uga end­ur­reisn­ar­á­ætlun, Græna planið, til að mæta sam­drætt­inum vegna COVID-19. „Það er okkar leið til að snúa vörn í sókn. Borgin stendur sem betur fer vel að vígi til að glíma við efna­hag­skrepp­una en óvissan er engu að síður tölu­verð. Við sjáum nú von­andi fram á bjart­ari tíma og að hjólin fari að snú­ast af fullum krafti.“

[links]Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, ein­blínir á skulda­söfnun í til­kynn­ingu sem hann hefur sent frá sér vegna upp­gjörs­ins, en flokkur hans er langstærstur þeirra sem mynda minni­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur. „Enn er bætt í skuld­setn­ing­una og engin til­raun gerð til að ná jafn­vægi í rekstri. Á sama tíma og fyr­ir­tækin í borg­inni eru í vanda hefur borgin stækkað báknið gríð­ar­lega enda eru tekin lán fyrir rekstri borg­ar­innar og fjár­fest­ingum. Reykja­vík­ur­borg er með skatta í botni og glímir því ekki við tekju­vanda, enda hafa allir helstu tekju­liðir hennar hækkað um því sem nemur heilum sex millj­örðum á síð­asta ári þrátt fyrir dýpstu kreppu lýð­veld­is­sög­unnar. Vandi borg­ar­innar er því fyrst og fremst útgjalda­vandi en því miður sér ekki fyrir end­ann á honum í áætl­unum borg­ar­stjóra. Vandinn er sá að meiri­hluta­flokk­arnir stuðl­uðu að skulda­söfnun borg­ar­innar í mesta tekju­góð­æri Íslands­sög­unnar en hirtu ekki um að hag­ræða þrátt fyrir fyr­ir­heit um annað í meiri­hluta­sátt­mál­anum. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins reyndu ítrekað að benda á þá stað­reynd þegar borgin var í miklum færum til þess að greiða niður skuldir en á það var ekki hlustað.“

Hann vill fjölga hag­stæðum lóðum í útjaðri borg­ar­innar, selja Mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða og ráð­ast í það sem hann kallar nútíma­væð­ingu í rekstri borg­ar­innar til að snúa stöð­unni við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár