Borgarfulltrúi vill ráðningarbann hjá Reykjavíkurborg

Reykja­vík­ur­borg ætlar að verja millj­arði króna til að búa til ný störf fyrir fólk sem ann­ars þyrfti fjár­hags­að­stoð eða færi á atvinnu­leys­is­bætur. Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, vill ráðn­ing­ar­bann í borg­inni.

Hildur Björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Reykja­vík, vill að ráðn­ing­ar­bann verði sett á Reykja­vík­ur­borg til tveggja ára. Þetta kemur fram í grein sem hún skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Þar segir hún að sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2021, sem birt var í fyrra­dag, sé gert ráð fyrir að fimmti hver vinn­andi borg­ar­búi verði borg­ar­starfs­maður og að starfs­fólki borg­ar­innar muni fjölga um 622 á tveggja ára tíma­bili.

Hildur segir að sam­kvæmt fjölda­tölum Hag­stof­unnar séu nú 65.562 starf­andi ein­stak­lingar með lög­heim­ili í Reykja­vík. Þar af muni 12.250 starfa hjá Reykja­vík­ur­borg í árs­lok 2021. Það sé ósjálf­bært að ætla 19 pró­sent af vinn­andi fólki að verða laun­þegar hjá Reykja­vík­ur­borg. „Fjölgun opin­berra starfs­manna er rangt við­bragð við auknu atvinnu­leysi. Mik­il­væg­asta atvinnu­skap­andi aðgerðin verður alltaf sveigj­an­legra reglu­verk, lægri álögur og mynd­ar­legri stuðn­ingur við atvinnu­líf. Þannig sköpum við skil­yrði til verð­mæta­sköp­unar - verjum störf og sköpum tæki­færi til við­spyrnu.“

Ætla að skapa störf fyrir þá sem færu annars á bætur

Í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar vegna árs­ins 2021 er gert ráð fyrir að A-hluti hennar, sá hluti rekst­urs­ins sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum, verði rek­inn með 11,3 millj­arða króna halla á næsta ári. Tap á rekstri borg­ar­innar er áætlað 7,2 millj­arðar króna í ár og 2,9 millj­arðar króna árið 2022. Því er við­búið að A-hluti borg­ar­innar verði rek­inn í 21,4 millj­arða króna tapi á þriggja ára tíma­bili. Til sam­an­burðar skil­aði A-hlut­inn 13,7 millj­arð króna hagn­aði frá byrjun árs 2016 og út síð­asta ár.

COVID-19 spilar þar vit­an­lega stærsta hlut­verkið enda spáð mesta sam­drætti á Íslandi í heila öld á yfir­stand­andi ári. Áætlað tekju­fall borg­ar­innar vegna far­ald­urs­ins er 12,5 millj­arðar króna í ár. Áætlanir borg­ar­innar gera ráð fyrir að tekju­stofnar hennar verði áfram veikir á næstu tveimur árum og að útsvars­tekjur nái ekki fyrri styrk fyrr en á árinu 2025.

[adspot]Til að bregð­ast við þeirri stöðu sem er uppi ætlar borgin að ráð­ast í umfangs­mikla við­spyrnu­á­ætlun sem felur í sér að heild­ar­fjár­fest­ing sam­stæðu hennar, A- og B-hluta, á næstu þremur árum verður 175 millj­örðum króna.

Í til­kynn­ingu frá borg­inni vegna fram­lagn­ingu áætl­un­ar­innar var haft eftir Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra að efna­hags­sam­drætti og tekju­falli yrði mætt með lán­tökum en borgin myndi nýta styrk sinn og vaxa út úr sam­drætt­inum á nokkrum árum. „Við leggjum fram sókn­ar­á­ætlun til skamm­tíma og ábyrga græna sýn um sjálf­bærni á öllum sviðum til lengri tíma. Græna planið er efna­hags­leg, umhverf­is­leg og sam­fé­lags­leg sókn­ar­á­ætlun út úr kór­ónu­veiru­krepp­unni og þannig getum við bæði staðið vörð um störfin, skapað ný störf og búið til sam­fé­lag þar sem allir geta verið virkir þátt­tak­endur.“

Þau störf sem á að skapa eru ætluð fyrir fólk sem ann­ars færi á fjár­hags­að­stoð eða atvinnu­leys­is­bætur. Millj­arði króna verður varið í að búa til ný störf fyrir atvinnu­lausa, stuðn­ings­úr­ræði og virkni fyrir fólk á fjár­hags­að­stoð á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár