58 milljarða króna halli á rekstri hins opinbera í byrjun árs

Áhrif COVID-19 á fjár­mál hins opin­bera, sem koma meðal ann­ars fram í útgjöldum vegna aðgerða á vinnu­mark­aði, valda því að hið opin­bera var rekið með miklum halla á fyrsta árs­fjórð­ungi.

Mikill halli er á rekstri hins opinbera, meðal annars vegna aðgerða sem ráðist var í til að sporna við áhrifum faraldursins.
Mikill halli er á rekstri hins opin­bera, meðal ann­ars vegna aðgerða sem ráð­ist var í til að sporna við áhrifum far­ald­urs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Opinber gjöld voru 58 millj­örðum krónum meiri en skatt­tekjur á fyrsta fjórð­ungi árs­ins. Þessi halli jafn­gildir 8,2 pró­sentum af lands­fram­leiðslu fyrir sama tíma­bil. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu um rekstur hins opin­bera, sem birt­ust í dag.

Samkvæmt töl­unum kemur nær allur hall­inn, eða 49 millj­arðar króna, frá rík­is­sjóði, en halli sveit­ar­fé­laga á sama tíma nam 8,4 millj­örðum króna og hall­inn á almanna­trygg­inga­kerf­inu nam 900 millj­ónum króna.

Ef miðað er við sama árs­fjórð­ung í fyrra sést að skattar á tekjur og hagnað hafa auk­ist tölu­vert, eða um 18 millj­arða króna. Skattar á vörur og þjón­ustu voru líka um 7,6 millj­örðum krónum meiri, en heilt yfir juk­ust tekjur hins opin­bera um 13 pró­sent frá fyrsta árs­fjórð­ungi 2020.

Heild­ar­út­gjöld hins opin­bera juk­ust hins vegar enn meira, eða um 14 pró­sent, á sama tíma­bili. Þar stafar aukn­ingin fyrst og fremst af auknum félags­legum til­færslum til­færslum til heim­ila og hærri launa­greiðslna.

Í til­kynn­ingu Hagstofu segir að áhrif COVID-19 á fjár­mál hins opin­bera séu enn mikil og beri upp­gjör í rekstri hins opin­bera á síð­asta árs­fjórð­ungi þess merki. Áhrifin komi meðal ann­ars fram í útgjöldum Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs vegna auk­ins atvinnu­leysis, vegna greiðslu launa í sótt­kví, sér­staks íþrótta- og tóm­stunda­styrks til barna og sér­stakra aðgerða í vinnu­mark­aðs­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár