Dagur ekki búinn að taka ákvörðun um hvort hann verði í framboði

Síðasta könnun sem gerð var á fylgi flokka í Reykja­vík­ur­borg sýndi að allir flokkar sem mynda meiri­hlut­ann í borg­inni myndu bæta við sig fylgi. Flokkur borg­ar­stjóra hefur mælst stærstur en hann er óviss um hvort hann verði í fram­boði á næsta ári.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, þegar nýr meirihluti í borginni var kynntur árið 2018.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, þegar nýr meiri­hluti í borg­inni var kynntur árið 2018. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í höf­uð­borg­inni, hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann verði í fram­boði í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum sem fram fara á næsta ári.

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag segir Dagur að hann muni taka þá ákvörðun þegar nær dragi kosn­ingum. „Ég hef verið borg­ar­stjóri í sjö ár. Að taka við því emb­ætti var í raun alveg nýr starfs­vett­vangur – í svo mörg horn er að líta við stjórn þessa stóra fyr­ir­tækis sem veltir á annað hund­rað millj­örðum króna á ári og starfs­menn­irnir eru meira en tíu þús­und. Þróun borg­ar­innar á hug minn allan. Borgin er síbreyti­leg í eðli sínu og sömu­leiðis það að vera borgar-stjóri. Það eru mörg stór og jákvæð umbreyt­ing­ar­verk­efni fram undan. Mikla­braut og Sæbraut fara í stokk og umhverfi þeirra stór­batnar. Borg­ar­línan verður að veru­leika og við erum að end­ur­lífga gamla hverfa­kjarna um alla borg. Borg­ar­sam­fé­lagið mót­ast með virkri þátt­töku almenn­ings og Reykja­vík er borg fjöl­breyti­leik­ans og gleð­innar. Slíkt sjáum við vel nú þegar sólin skín og veiran er að baki.“

Samfylkingin mældist stærst í könnun í mars

Í síð­ustu birtu könnun á fylgi flokka í Reykja­vík­ur­borg, sem Gallup gerði og var birt 4. mars síð­ast­lið­inn, kom fram að Sam­fylk­ingin mæld­ist með mest fylgi allra flokka í borg­inni. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins mælist með 26,4 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni sem er rétt yfir kjör­fylgi hans, en Sam­fylk­ingin fékk 25,9 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018. Það er mun sterk­ari staða en hjá Sam­fylk­ing­unni á lands­vísu þar sem fylgi flokks­ins mælist nú reglu­lega milli 12-13 pró­sent, eða á sömu slóðum og það sem Sam­fylk­ingin fékk í síð­ustu þing­kosn­ing­unum.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir síð­ustu kosn­ingar með 30,8 pró­sent fylgi, hefur tapað miklu fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Fylgi hans mæld­ist 25,2 pró­sent í mars eða 5,6 pró­sentu­stigum minna en 2018.

[links]Allir flokk­arnir fjórir – Sam­fylk­ing, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn – sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Píratar hafa bætt við sig 2,8 pró­sentu­stigum og mæld­ust þriðji stærsti flokkur borg­ar­innar í mars með 10,5 pró­sent fylgi. Viðreisn stóð nokkurn veg­inn í stað og mæld­ist með 8,9 pró­sent stuðn­ing. En mesta breyt­ingin voru á fylgi Vinstri grænna, sem biðu afhroð í kosn­ing­unum 2018 og fengu þá aðeins 4,6 pró­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins mæld­ist 8,9 pró­sent í mars.

Ef nið­ur­staða könn­unar Gallup yrði það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum myndi það þýða að Vinstri græn myndu bæta við sig einum borg­ar­full­trúa á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks og þar með styrkja meiri­hlut­ann um einn borg­ar­full­trúa, og fara með hann upp í 13 af 23.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti sömu­leiðis end­ur­komu í borg­ar­stjórn með einn borg­ar­full­trúa á kostnað Flokks fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár