Bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ óttast að Borgarlínan færi glæpi út í úthverfin

Oddviti Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ vísar til Reykja­víkur sem höf­uð­borgar „sem ræður ekki við glæpi og vill kerfi sem dreifir þeim betur um höf­uð­borg­ar­svæðið“ – og á þar við hina fyr­ir­hug­uðu Borg­ar­línu.

Kannski munu glæpamenn nýta sér Borgarlínuna. Eða bara halda áfram að nota einkabílinn.
Kannski munu glæpa­menn nýta sér Borg­ar­lín­una. Eða bara halda áfram að nota einka­bíl­inn. Mynd: Borgarlína

Sveinn Óskar Sig­urðs­son, bæj­ar­full­trúi og odd­viti Mið­flokks­ins í Mos­fellsbæ og full­trúi bæj­ar­ins í svæð­is­skipu­lags­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir að „hættan með til­komu Borg­ar­línu“ sé „að glæpir eiga auð­veld­ara með að dreifast út í úthverfin, meng­unin, hávað­inn og annar óáran.“

Þessi ummæli lét Sveinn Óskar falla í færslu í opnum umræðu­hóp um Borg­ar­línu á Facebook fyrr í dag, í sam­hengi við frétt af vef Vísis um ítrekuð slags­mál og hópslags­mál í mið­borg Reykja­víkur.

Í sömu færslu sagði bæj­ar­full­trú­inn að ein­hæft rek­star­fyr­ir­komu­lag í mið­borg­inni, „þétt­ing byggðar“ og „flótti úr flóru versl­unar“ hefði „gert fjöl­breytni mann­lífs og öryggi á svæð­inu að engu“.

„Sú stefna sem rekin er í Reykja­vík­ur­borg er að gera höf­uð­borg Íslands að allt öðru en Íslend­ingar vilja, þ.e. frið­sama og frjósama borg í sátt við fólk, við­skipta­að­ila, menn­ingu og umhverfi. Það að flytja inn óeirða­menn­ingu að utan, sóða­skap og þétt­leika er hrein­lega ekki að falla vel að Reykja­vík. Innviðir eru hættir að ráða við þetta fyr­ir­komu­lag,“ skrif­aði bæj­ar­full­trú­inn.

Vísaði í rannsókn frá Cleveland í Bandaríkjunum

Í færslu sinni vísar bæj­ar­full­trú­inn einnig til Reykja­víkur sem höf­uð­borgar „sem ræður ekki við glæpi og vill kerfi sem dreifir þeim betur um höf­uð­borg­ar­svæðið“.

Varðandi meinta teng­ingu glæpa og Borg­ar­línu, sem kemur eflaust mörgum spánskt fyrir sjónir, vísar Sveinn Óskar í færslu sinni til greinar sem birt var í banda­ríska fræða­tíma­rit­inu Journal of Economics and Politics árið 2015, en um er að ræða útgáfu fag­fé­lags hag- og stjórn­mála­fræð­inga í Ohio-ríki.

[adspot]

Rann­sóknin sem vísað er til er verð­launa­rit­gerð eftir hag­fræði­nema við Háskól­ann í Akron, sem gerði rann­sókn á áhrifum lagn­ingar nýrrar strætó­leiðar út í úthverfi í borg­inni Cleveland árið 2008 á mælda glæpa­tíðni.

Nið­ur­stöð­urnar gáfu til kynna að glæpa­tíðni á svæðum í kringum nýju strætó­leið­ina hefði auk­ist um 1,4 pró­sent í kjöl­far þess að vagn­arnir byrj­uðu að ganga.

Í úrdrætti grein­ar­innar segir að almenn­ings­sam­göngur geti „gefið glæpa­mönnum auð­veld­ari aðgang að mögu­legum skot­mörkum og minnkað lík­urnar á því að þeir náist“.

Þess er þó einnig getið að almenn­ings­sam­göngur geti „gefið tekju­lægri ein­stak­lingum betra aðgengi að áreið­an­legum sam­göngum, sem minnkar lík­urnar á því að þeir ein­stak­ling­arnir taki þátt í glæp­a­starf­semi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarlínan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár