Telur markmið um breyttar ferðavenjur með borgarlínu „nokkuð metnaðarlaust“

Í verk- og mats­lýs­ingu á fyrstu lotu borg­ar­línu er reiknað með að um 58 pró­sent ferða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2040 verði farnar á einka­bílum. Á sama tíma­bili er reiknað með að íbúum fjölgi um 40 pró­sent. Miðað við þetta mun umferð­ar­þungi aukast.

Borgarlínan mun liggja um sérakreinar og fá forgang á umferðarljósum til að greiða fyrir umferð og lágmarka tafir.
Borg­ar­línan mun liggja um sér­a­kreinar og fá for­gang á umferð­ar­ljósum til að greiða fyrir umferð og lág­marka tafir. Mynd: Af vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu

Það er álit Land­verndar að borg­ar­línan sé á heild­ina litið jákvæð fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið til þess að draga úr loft­mengun og þörf­inni á því að brjóta nýtt land undir byggð og umferð­ar­mann­virki. Hins vegar finnst stjórn sam­tak­anna það mark­mið að 58 pró­sent ferða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði árið 2040 farnar á einka­bílum „nokkuð metn­að­ar­laust“ með til­liti til þess að spáð er íbúum svæð­is­ins muni fjölga um 40 pró­sent eða um að minnsta kosti 70 þús­und á tíma­bil­inu. „Að fara úr 75 pró­sent ferða [...] sem farnar eru í einka­bíl og í 58 pró­sent er sam­dráttur um 22 pró­sent. Miðað við þetta mun umferða­þungi lík­lega aukast mikið á tíma­bil­inu miðað við það sem nú er með til­heyr­andi svifryks­mengun, losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, hávaða­mengun og öðrum óbeinni lýð­heilsu­á­hrifum af umferð einka­bíla og pláss­frekum umferð­ar­mann­virkjum.“

Stjórn Land­verndar telur því að ganga þurfi lengra í mark­miðum um að draga úr umferð­ar­þunga þannig að hann, hið minnsta, auk­ist ekki frá því sem nú er. Telur stjórn sam­tak­anna rétt­ara að setja mark­mið um heild­ar­fjölda ferða með einka­bíl en ekki hlut­fall ferða þannig að það sé ljóst hvert mark­miðið er og vænt­an­leg áhrif af aðgerð­inni.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Land­verndar um til­lögu að verk- og mats­lýs­ingu aðal­skipu­lags­breyt­inga í Reykja­vík og Kópavogi sem aug­lýst er í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

[adspot]

Í lýs­ing­unni er farið yfir áherslur í fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lag­anna tveggja vegna fyrstu lotu borg­ar­línu sem til stendur að liggi milli Ártúns­höfða í Reykja­vík og Hamra­borgar í Kópavogi sam­kvæmt því sem fram kemur í sam­göngusátt­mála rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem skrifað var undir í sept­em­ber 2019, og til­lögu að upp­færðri sam­göngu­á­ætlun 2020-2034. Und­ir­bún­ingur og fram­kvæmdir fyrstu lotu taka til tíma­bils­ins 2020-2023 í aðgerð­ar­á­ætlun til­lögu að sam­göngu­á­ætlun. Aðrar lotur koma síðar, í sam­ræmi við fram­kvæmda­á­ætlun sátt­mál­ans og verða sam­bæri­legar aðal­skipu­lags­breyt­ingar gerðar fyrir þær þegar þar að kemur.

Borg­ar­línan er hrað­vagna­kerfi sem verður „hryggjar­stykki almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir í verk- og mats­lýs­ing­unni. „Borg­ar­línan verður drif­kraft­ur­inn í að þróa höf­uð­borg­ar­svæðið í átt að sjálf­bæru kolefn­is­hlut­lausu borg­ar­sam­fé­lagi þar sem ungir sem aldnir fá raun­hæft val um vist­væna ferða­máta með aðgengi­legum almenn­ings­sam­göngum, hjóla- og göngu­stígum. Hún verður þunga­miðjan og umhverfis hana munu byggj­ast ný og sjálf­bær hverfi.“

[links]Borg­ar­línan mun liggja um sér­a­kreinar og fá for­gang á umferð­ar­ljósum til að greiða fyrir umferð og lág­marka tafir. Hún verður knúin vist­vænum inn­lendum orku­gjafa. Tíðni verða á að verða mikil. Algeng tíðni vagna á anna­tímum verður 5-7 mín­útur en þar sem þörf er á meiri afkasta­getu getur hún farið í um 2 mín­útur.

Stefnt er að því að bið­stöðvar verði yfir­byggðar og vand­aðar, með far­miða­sjálf­sölum og upp­lýs­inga­skiltum sem sýna í raun­tíma hvenær næsti vagn kemur.

Fyrsta lota borg­ar­lín­unnar, milli Ártúns og Hamra­borgar, verður alls um 13 kíló­metrar og á henni 25 stoppi­stöðvar. Samkvæmt fyrstu hug­myndum mun hún liggja frá Ártúns­höfða, yfir Elliða­árnar, fylgja Suð­ur­lands­braut, Lauga­vegi, Hverf­is­götu, þaðan um mið­bæ­inn, BSÍ, Land­spít­ala, Vatns­mýr­ar­veg að Háskól­anum í Reykja­vík, um fyr­ir­hug­aða Foss­vogs­brú, Bakka­braut og Borg­ar­holts­braut að Hamra­borg.

Stokkar á Miklubraut og yfir Elliðaárvoga

Engar breyt­ingar verða gerðar á stofn­vega­kerfi innan Kópavogs í þess­ari fyrstu lotu en gera þarf breyt­ingar á stofn­brautum í Reykja­vík, m.a. að gera stokk á Miklu­braut við Snorra­braut til að tengja Land­spít­al­ann við borg­ar­lín­una sem og stokk, sem kall­aður er Sæbraut­ar­stokkur, yfir Elliða­ár­voga.

„Stokka­lausnir greiða götu borg­ar­línu, þar sem hún þarf að þvera stofn­brautir og bæta almennt skil­yrði fyrir vist­væna ferða­máta,“ segir í lýs­ing­unni „Þá er megin mark­mið með gerð stokka að bæta umhverf­is­gæði í aðliggj­andi byggð og tengja betur saman hverfi sem eru aðskilin með umferð­ar­þungum stofn­brautum.“

Umsagn­ar­frestur við verk- mats­lýs­ing­una er til 9. júní.

Í fram­hald­inu er stefnt að því að kynna drög að aðal­skipu­lags­breyt­ingum í Kópavogi og Reykja­vík í haust. Á fyrstu mán­uðum næsta árs á að aug­lýsa til­lög­urnar og að ári er stefnt að því að skipu­lags­breyt­ing­arnar verði sam­þykktar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarlínan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár