Kjósendur Miðflokks, Flokks fólksins og Framsóknar helst á móti Borgarlínu

Kjós­endur Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Pírata eru hlynnt­astir Borg­ar­línu.

83,9 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og 83 pró­sent kjós­enda Við­reisnar eru hlynnt Borg­ar­lín­unni. 4,4 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og 3,7 pró­sent kjós­enda Við­reisnar eru and­víg. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Mask­ínu um nýja rann­sókn á þeirra veg­um.

[links]Kjós­endur Pírata eru einnig jákvæðir gagn­vart Borg­ar­lín­unni, þar sem 79,9 pró­sent þeirra eru hlynntir henni en ein­ungis 2,5 pró­sent and­víg.

Mið­flokk­ur­inn er sá flokkur sem flestir kjós­endur eru and­vígir, það eru 73,9 pró­sent þeirra en ein­ungis 9,1 pró­sent hlynnt. Næst á eftir kemur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 56,4 pró­sent kjós­enda and­víg og svo Flokkur fólks­ins með 40,2 pró­sent kjós­enda and­víg.

[adspot]Hlutfall við­horfs kjós­enda Vinstri grænna eru hér um bil and­stætt við­horfi kjós­enda Mið­flokks­ins, þar sem 73,5 pró­sent þeirra eru hlynnt Borg­ar­lín­unni en ein­ungis 5,5 pró­sent and­víg.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins skipt­ast um það bil í þriðj­unga þegar kemur að við­horfi til Borg­ar­lín­unnar. 33,2 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru hlynnt, 31 pró­sent hlynnt í með­al­lagi og 35,8 pró­sent eru and­víg Borg­ar­lín­unni.

Aldrei hafa fleiri Íslend­ingar verið hlynntir Borg­ar­lín­unni frá því mæl­ingar hófust í byrjun árs 2018. Nú eru 54 pró­sent Íslend­inga hlynnt Borg­ar­lín­unni en um 22 pró­sent and­víg. Konur eru jafn­framt hlynnt­ari henni en karlar og eru háskóla­mennt­aðir jákvæð­ari en þeir sem hafa grunn­skóla­próf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarlínan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár