Stuðningur við Borgarlínu aldrei mælst meiri

54 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt Borg­ar­lín­unni en um 22 pró­sent and­víg.

Borgarlínan
Borg­ar­línan Mynd: Aðsend.

Íbúar Vest­ur­bæjar, mið­borg­ar­innar og Sel­tjarn­ar­ness eru hlynnt­astir Borg­ar­lín­unni. Konur og háskóla­mennt­aðir eru hlynnt­ari en karlar og fólk með grunn­skóla­próf.

Aldrei hafa fleiri Íslend­ingar verið hlynntir Borg­ar­lín­unni frá því mæl­ingar hófust í byrjun árs 2018. Nú eru 54 pró­sent Íslend­inga hlynnt Borg­ar­lín­unni en um 22 pró­sent and­víg. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Maskínu um nýja rann­sókn á þeirra vegum.

[adspot]Athygl­is­vert er að konur eru hlynnt­ari Borg­ar­lín­unni en karlar, eða 57,6 pró­sent á móti 51,2 pró­sentum karla. 28 pró­sent karla eru and­víg Borg­ar­lín­unni en ein­ungis 16 pró­sent kvenna.

69,6 pró­sent fólks á aldr­inum 30 til 39 eru hlynnt Borg­ar­lín­unni á móti 45 pró­sentum fólks 60 ára og eldri. Fólk á aldr­inum 30 til 39 ára er hlynnt­ara Borg­ar­lín­unni en fólk á aldr­inum 18 til 29 ára. Þó eru 57,7 pró­sent þess ald­urs­flokks hlynnt Borg­ar­lín­unni.

Þegar borið er saman menntun þeirra sem hlynntir eru Borg­ar­lín­unni eru 63 pró­sent háskóla­mennt­aðra hlynnt henni og 17 pró­sent and­víg. Þeir sem hafa grunn­skóla­próf eru þeir and­víg­ustu Borg­ar­lín­unni, það er 28,4 pró­sent þeirra eru and­vígir.

Íbúar miðborgar, Vesturbæjar og Seltjarnarness jákvæðastir

77 pró­sent íbúa mið­borg­ar­innar, Vest­ur­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness eru hlynnt Borg­ar­lín­unni. Auk þess eru 62 pró­sent íbúar Hlíða, Laug­ar­dals, Háa­leitis og Bústaða henni hlynnt. Garð­bæ­ingar eru einnig afar hlynntir Borg­ar­lín­unni, eða 71 pró­sent þeirra.

57 pró­sent Mos­fell­inga, Hafn­firð­inga og íbúa Kjal­ar­ness eru hlynnt Borg­ar­lín­unni. 56 pró­sent Breið­holts og Árbæjar eru hlynnt Borg­ar­lín­unni en 26 pró­sent þeirra and­víg og um svipað hlut­fall er að ræða í Graf­ar­vogi, Graf­ar­holti og Úlf­árs­dal.

Einungis 47 pró­sent Kópa­vogs­búa eru hlynnt Borg­ar­lín­unni, 27 pró­sent þeirra eru hlynnt í með­al­lagi og 26 pró­sent and­víg.

Alls svör­uðu 884 könn­un­inni og fór hún fram 7. til 24. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár