Davíð Þorláksson ráðinn til að stýra Betri samgöngum

Opinbera hluta­fé­lagið Betri sam­göngur, sem á að hrinda fram­kvæmdum í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins af stað, hefur ráðið Davíð Þor­láks­son sem fram­kvæmda­stjóra.

Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna.
Davíð Þor­láks­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna. Mynd: Aðsend

Davíð Þor­láks­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri opin­bera hluta­fé­lags­ins Betri sam­gangna, sem stofnað var af rík­inu og sex sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að hrinda fram­kvæmdum við sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í fram­kvæmd.

Davíð hefur verið for­stöðu­maður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins frá árinu 2017, en var þar áður yfir­lög­fræð­ingur Icelandair Group frá 2009-2017. Þá starf­aði hann einnig sem fram­kvæmda­stjóri fast­eigna­fé­lag­anna Lindar­vatns frá 2015-2017 og Hljóma­lindar­reits frá 2016-2017, svo eitt­hvað sé nefnt.

Hann lauk em­bættis­prófi í lög­fræði frá Há­skóla Ís­lands árið 2006 og varð hér­aðs­dóms­lög­maður 2009. Hann er með MBA gráðu frá London Business School og varð lög­giltur verð­bréfa­miðl­ari 2017.

Hann hefur sinnt ýmsum stjórnar- og félags­störfum og er í dag for­maður stjórnar hjá bæði VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóði og Ungum frum­kvöðlum. Einnig hefur Davíð verið for­maður stýri­hóps mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um mál­tækni fyrir íslensku og setið í stjórn Lána­sjóðs íslenskra náms­manna og Kanadísk-íslenska við­skipta­ráðs­ins auk þess að hafa setið í ráð­gjafa­nefndum EES og EFTA 2005-2007.

Þá var hann for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna á árunum 2011-2013.

„Borgar línan sig?“

Davíð hefur verið reglu­legur pistla­höf­undur bæði á Frétta­blað­inu og Við­skipta­blað­inu und­an­farin ár og þar hefur hann stundum skrifað um bættar almenn­ings­sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Borg­ar­línu­verk­efnið.

„Þeir sem fara flestra sinna ferða á bíl, og sjá ekki fyrir sér að það muni breyt­ast, ættu að vilja að allir hafi raun­veru­legt val um sam­göngu­máta. Því fleiri sem eru í Strætó, gang­andi eða hjólandi því færri eru á göt­unum að tefja fyrir bíl­unum. Það er líka ódýr­ast fyrir skatt­greið­endur og lík­leg­ast til að stytta ferða­tíma. Þess vegna marg­borgar línan sig fyrir alla,“ skrif­aði Davíð í pistli í Við­skipta­blaðið árið 2018.

Hann hefur sinnt ýmsum stjórnar- og félags­störfum og er í dag for­maður stjórnar hjá bæði VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóði og Ungum frum­kvöðlum. Einnig hefur Davíð verið for­maður stýri­hóps mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um mál­tækni fyrir íslensku og setið í stjórn Lána­sjóðs íslenskra náms­manna og Kanadísk-íslenska við­skipta­ráðs­ins auk þess að hafa setið í ráð­gjafa­nefndum EES og EFTA 2005-2007. Þá var hann for­maður Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna á árunum 2011-2013.

Um 120 milljarðar áætlaðir í framkvæmdir á næstu 15 árum

Félagið Betri sam­göngur var stofnað í byrjun októ­ber á liðnu ári og hefur sem áður segir þann til­gang að hrinda umfangs­miklum sam­göngu­fram­kvæmdum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fram­kvæmd. Ríkið á 75 pró­sent hlut í félag­inu en sveit­ar­fé­lögin sex 25 pró­sent.

Alls stendur til að verja 120 millj­örðum króna í að bæta sam­göngur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með bættum almenn­ings­sam­göngum, Borg­ar­línu, og stofn­vega­fram­kvæmdum á næstu 15 árum, sam­kvæmt sam­göngusátt­mál­anum sem und­ir­rit­aður var í sept­em­ber 2019.

Fram kemur í til­kynn­ingu frá Betri sam­göngum að Vinnvinn ráðn­ingar og ráð­gjöf hafi haft umsjón með ráðn­ing­ar­ferl­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár