Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar ráðinn til Betri samgangna

Þor­steinn R. Her­manns­son hefur verið ráð­inn til Betri sam­gangna ohf. sem for­stöðu­maður sam­gangna, til eins árs frá 1. sept­em­ber. Hann fer í leyfi frá starfi sínu hjá borg­inni á meðan.

Þorsteinn R. Hermannsson samgöngustjóri Reykjavíkurborgar hefur verið ráðinn til Betri samgangna ohf.
Þor­steinn R. Her­manns­son sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borgar hefur verið ráð­inn til Betri sam­gangna ohf. Mynd: Aðsend

Þor­steinn R. Her­manns­son, sem hefur verið sam­göngu­stjóri Reykja­vík­ur­borgar frá árinu 2016, hefur verið ráð­inn for­stöðu­maður sam­gangna hjá Betri sam­göngum ohf. til eins árs frá 1. sept­em­ber. Hann fer í leyfi frá starfi sínu hjá borg­inni á meðan.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Betri sam­göngum verður hlut­verk Þor­steins að vera opin­bera hluta­fé­lag­inu til ráð­gjafar um sam­göngu­mál, vinna að und­ir­bún­ingi verk­efna Sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og fylgja því eftir að mark­mið hans um greið­ari sam­göngur, fjöl­breytta ferða­máta og aukið umferð­ar­ör­yggi náist, í sam­starfi við Vega­gerð­ina og sveit­ar­fé­lögin.

Sam­göngusátt­mál­inn var und­ir­rit­aður af rík­inu og sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2019 og er Betri sam­göngum ætlað að hrinda honum í fram­kvæmd á næstu 13 árum, með 120 millj­arða króna fjár­fest­ingu í öllum ferða­mátum.

Þor­steinn lauk meistara­gráðu í bygg­ing­ar­verk­fræði með sér­hæf­ingu í sam­göngu­verk­fræði frá Uni­versity of Washington í Seattle árið 2005 og hafði áður lokið B.Sc. gráðu í umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði frá Háskóla Íslands.

Eftir útskrift starf­aði hann hjá Mannviti og for­verum þess sem sviðs­stjóri umferðar- og skipu­lags­sviðs og fag­stjóri sam­gangna. Einnig var hann verk­fræð­ingur sam­göngu­á­ætl­unar í sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráðu­neyt­inu frá 2010 til 2012.

Davíð Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna, segir í frétta­til­kynn­ingu að það sé mik­ill fengur fyrir félagið að fá Þorstein til starfa.

„Hann hefur verið einn fremsti sam­göngu­verk­fræð­ingur lands­ins um ára­bil. Þor­steinn mun verða lyk­il­maður í upp­bygg­ingu okkar nýja fyr­ir­tækis, sem mun stýra stærstu fjár­fest­ingu í sam­göngu­innviðum sem um getur á Íslandi,“ er haft eftir Davíð, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár