Heppilegasta leið Borgarlínu frá Hamraborg í Smáralind liggi um íþróttasvæði Breiðabliks

Samkvæmt minn­is­blaði frá verk­efna­stofu Borg­ar­línu er heppi­legra að Borg­ar­lína fari um Hafn­ar­fjarð­ar­veg og Fífu­hvamms­veg en að leið hennar komi til með liggja um Digra­nes­veg og Dalveg.

Á þessari mynd sjást valkostirnir tveir sem hafa verið rýndir að beiðni Kópavogsbæjar.
Á þess­ari mynd sjást val­kost­irnir tveir sem hafa verið rýndir að beiðni Kópa­vogs­bæjar. Mynd: Úr tillögu að aðalskipulagi Kópavogs

Verk­efna­stofa Borg­ar­línu rýndi í haust í kosti og galla tveggja mis­mun­andi leiða sem varða legu Borg­ar­línu á milli Hamra­borgar og Smára­lindar. Ein­dregin nið­ur­staða þeirrar vinnu var sú að betra sé að borg­ar­línu­leiðin á þessu svæði í Kópavogi komi til með að liggja um Hafn­ar­fjarð­ar­veg og Fífu­hvamms­veg í stað þess að liggja um Digra­nes­veg og Dalveg.

Þetta kemur fram í minn­is­blaði verk­efna­stofu Borg­ar­línu um fram­kvæmd­ina, sem lagt var fram á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar Kópa­vogs­bæjar í síð­ustu viku, en það var unnið að beiðni umhverf­is­sviðs Kópa­vogs­bæjar.

Í minn­is­blað­inu segir að allt frá því að byrjað var að greina mögu­lega legu Borg­ar­línu í Kópavogi hafi þessir tveir val­kostir helst þótt koma til greina. Hafn­ar­fjarð­ar­vegur og Fífu­hvamms­vegur þóttu einnig fýsi­legri kostu í fyrri sam­an­burði, sem Strætó hafði látið vinna.

Umræddur kafli er hluti af annarri lotu Borg­ar­línu, en frum­drög að þeirri lotu eru á fyrstu stigum hönn­un­ar­vinnu, sam­kvæmt því sem fram kemur í minn­is­blað­inu.

Meira pláss fyrir sérrými og stór skiptistöð við Fífuna

Helstu kostir þess að láta Borg­ar­línu aka um Hafn­ar­fjarð­ar­veg og Fífu­hvamms­veg eru sagðir þeir að það samnýti borg­ar­línu­fram­kvæd­mir á Hafn­ar­fjarð­ar­vegi, samnýti fram­kvæmdir við stofn­stíg á hjól­reiða á Fífu­hvamms­vegi, rými í götu­snið­inu sé gott fyrir sér­rými Borg­ar­línu, hjóla­stíga og gang­stéttar og að hægt yrði að tryggja sér­rýmið alla leið, sem myndi skila sér í styttri ferða­tíma á milli Hamra­borg og Smára­linda.

Þá er bein teng­ing við Fífuna sögð kostur, en þar meg­in­mið­stöð íþrótta­fé­lags­ins Breiða­bliks stað­sett og oft blásið til mann­margra við­burða. Einnig segir að þessi val­kostur tengi Garðabæ og Hafn­ar­fjörð betur við Smára­lind, með skipti­stöð í Fífunni.

Það er einnig talið þessum val­kosti til tekna að hægt yrði að setja upp svo­kallað „commuter“- bíla­stæði við Fífuna, eða bíla­stæði þar sem hægt væri að skilja bíl­inn eftir og hag­nýta sér svo almenn­ings­sam­göngur í fram­hald­inu.

Betri tenging við MK ef farið væri um Digranesveg

Það eru þannig taldir upp fjöl­margir kostir við að fara Hafn­ar­fjarð­ar­veg­inn og Fífu­hvamms­veg­inn í stað Digra­nes­vegar og Dalvegar, en einnig eru gallar dregnir fram. Bæði eru fram­kvæmdir sagðar flóknar við Hamra­borg og í botni Kópa­vogs­dals, auk þess sem göngu­leið frá borg­ar­línu­stöð að Mennta­skól­anum í Kópavogi (MK) yrði lengri ef þessi leið yrði fyrir val­inu.

[adspot]

Verk­efna­stofan seg­ist þó telja að sá galli sé „hverf­andi“ þar sem göngu­leiðin frá Hamra­borg að MK sé um 600 metrar og að áform séu uppi um að bæta umhverfi bæði gang­andi og hjólandi til aust­urs frá Hamra­borg. Aukið aðgengi örflæði­tækja eins og raf­hlaupa­hjóla muni hjálpa við að stytta þá leið fyrir stóran hóp.

„Tenging milli Hamra­borgar og Fífunnar verður áskorun en undan henni verður ekki kom­ist þar sem hún er hluti af leið Borg­ar­línu suður til Hafn­ar­fjarðar. Það verk­efni er hægt að leysa og mun það verða megin við­fangs­efni í frum­draga­vinnu fyrir lotu 2,“ segir einnig í nið­ur­stöðukafla minn­is­blaðs­ins frá verk­efna­stof­unni.

Þröngt um Digranesveginn

Sem áður segir er það dregið fram sem kostur þegar horft er á þann val­kost að leggja Borg­ar­línu eftir Digra­nes­vegi og Dalvegi að vagnar gætu þá stoppað við MK, en einnig er það sagt kostur að sú lega myndi mynda skýran ás eftir öllum Digra­nes­hálsi, á Borg­ar­holts­braut og Digra­nes­vegi sem skil­greindar séu sem bæj­ar­götur í til­lögu að aðal­skipu­lagi Kópavogs.

Gall­arnir eru þó þeir að á þessum slóðum eru þrengsli í götu­sniði og að sé nægt rými fyrir fullt sér­rými, hjóla­stíga og gang­stéttar. Þá væru fram­kvæmdir á Dalvegi fyr­ir­sjá­an­lega flóknar, auk þess sem erf­iðar beygjur séu á þess­ari leið sem kalli á skerð­ingu á lóðum. Einnig myndi ferða­tími far­þega Borg­ar­línu á milli Smára­lindar og Hamra­borgar líða fyrir það að fara Dalveg og Digra­nes­veg í stað þess að halda niður í Fífu og þaðan upp í Hamra­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár