Efast um að „þverklofinn Sjálfstæðisflokkur” sé stjórntækur til að leiða borgina

Borg­ar­stjóri telur að í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum verði kosið um hvort „Nýja Reykja­vík” verði að veru­leika eða hvort snúa eigi borg­inni til baka í gráa og gamla átt undir for­ystu þess sem hann kallar þver­k­lof­inn Sjálf­stæð­is­flokk.

Borgarstjóri fjallaði um ólíka sýn flokkanna varðandi framtíð borgarinnar í ræðu sinni á Reykjavíkurþingi Samfylkingarinnar
Borg­ar­stjóri fjall­aði um ólíka sýn flokk­anna varð­andi fram­tíð borg­ar­innar í ræðu sinni á Reykja­vík­ur­þingi Sam­fylk­ing­ar­innar Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir átak­an­legt að eng­inn fram­bjóð­andi í nýaf­stöðnu próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík hafi lýst stuðn­ingi við þá nýju, grænu og spenn­andi Reykja­vík sem nú sé að taka á sig mynd, og að á meðan svo sé efist hann um að „þver­k­lof­inn Sjálf­stæð­is­flokkur” sé stjórn­tækur til að leiða borg­ina á næstu árum. Hildur Björns­dóttir, nýkjör­inn odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni, segir flokk­inn hafa sína eigin stefnu.

Þetta kemur fram í færslum Dags og Hildar á Facebook, en þau þegar farin að skjóta föstum skotum hvort á annað í gegnum sam­fé­lags- og fjöl­miðla nú í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna.

Í umfjöllun um nið­ur­stöður könn­unar um við­horf til borg­ar­línu og þétt­ingu byggðar eftir stuðn­ingi við flokka, sem birt­ist í Frétta­blað­inu í morgun, sakar Hildur borg­ar­stjóra um að hafa skapað menn­ing­ar­stríð þar sem fólki sé skipt í fylk­ingar eftir því hvernig það velji að lifa sínu lífi og að meiri­hluta­flokk­unum hafi „al­gjör­lega mis­tek­ist að skapa sátt um fram­tíðar sam­göngur og skipu­lag í borg­inni sem hefur leitt til van­trausts og ó­á­nægju”.

Þessu er Dagur ósam­mála og segir í fyrr­nefndri færslu á Facebook að meiri­hluta­flokk­arnir í borg­ar­stjórn séu sann­ar­lega sam­stíga í þessum efnum, sem og nágranna­sveit­ar­fé­lögin, sem öllum sé stjórnað af Sjálf­stæð­is­flokknum, og rík­is­stjórnin sem eigi heiður og aðild að sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Segir Dagur að klofn­ing­ur­inn sem Hildur talar um sé fyrst og fremst innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Borg­ar­stjóri fjall­aði einnig um ólíka sýn flokk­anna varð­andi fram­tíð borg­ar­innar í ræðu sinni á Reykja­vík­ur­þingi Sam­fylk­ing­ar­innar, þar sem hann sagði að í hans huga væri aug­ljóst að í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum verði kosið um „Nýju Reykja­vík” og hvort hún eigi að vera fyrir alla, með jöfnu aðgengi að skemmti­legri borg hágæða­þjón­ustu fyrir alla hópa sam­fé­lags­ins, eða hvort klof­inn Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái tæki­færi til að snúa borg­inni til baka í gráa og gamla átt.

Þannig hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lagt til að selja eigi félags­legar íbúðir í stað þess að fjölga þeim, dreifa eigi byggð, sem Dagur segir muni auka umferð og taf­ar­tíma og grafa undan almenn­ings­sam­göngum og draga úr mark­miðum í lofts­lags­málum. Þá vilji Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mis­læg gatna­mót inni í miðri borg í stað þess að setja umferð­ina undir yfir­borðið í stokk og setja þannig mann­líf, græn svæði og borg­ar­torg í for­gang í nýju og betra borg­ar­skipu­lagi.

Húsnæðissáttmáli fyrir höfuðborgarsvæðið

Þá kall­aði Dagur í ræðu sinni eftir hús­næð­is­sátt­mála fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið og sagði það ekki ganga lengur að Reykja­vík dragi ein vagn­inn í íbúða­upp­bygg­ingu og hús­næð­is­málum fyrir tekju­lága. „Við höfum líka fjölgað félags­legu hús­næði fyrir þá sem hafa minna á milli hand­anna en því miður aðrir ekki. Þar þurfum við að fá ríkið og nágranna­sveit­ar­fé­lögin með okkur eins og við gerðum í sam­göngu­mál­unum,“ sagði Dagur í ræðu sinni og bætti við að með slíkum hús­næð­is­sátt­mála mætti tryggja nægt fram­boð af fjöl­breyttu hús­næði og íbúðum fyrir alla. Þá þurfi ríkið að koma að borð­inu með mun mark­viss­ari hús­næð­is­stuðn­ingi, ekki aðeins í átökum eða til skamms tíma, heldur stór­huga, jafnt og þétt og til lengri tíma.

„Heild­stæður hús­næð­is­sátt­máli til lengri tíma er það sem sam­fé­lagið þarf. Reykja­vík hafði frum­kvæði að sam­göngusátt­mál­anum sem er gríð­ar­lega mik­il­vægur fyrir inn­viða­upp­bygg­ingu. Nú þurfum við sömu sam­stöðu, sam­eig­in­lega fram­tíð­ar­sýn og vinnu­brögð til að gera brag­ar­bót á hús­næð­is­mál­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár