Pawel pælir í lestarkerfi – „Það myndi nú stundum ekki drepa okkur að hugsa stórt“

„En hvað um neð­an­jarð­ar­lestir?“ spyr Pawel Bartoszek, vara­borg­ar­full­trúi Við­reisnar. „Auðvitað yrðu sjálf­virkar neð­an­jarð­ar­lestir frá­bærar í landi grænnar orku, dýrs vinnu­afls og mis­jafnrar veðr­áttu.“

Pawel Bartoszek, varaborgarfullrúi Viðreisnar.
Pawel Bartoszek, vara­borg­ar­full­rúi Við­reisnar.

Á sama tíma og neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfum í heim­inum hefur fjölgað um 90 á tveimur ára­tugum snýst umræðan í Reykja­vík um hvort sér­stakar akreinar fyrir almenn­ings­vagna á hjólum eigi að liggja hægra megin á göt­unni eða vera fyrir miðju, „hvort flott­ari strætó­stöðvar kosti of mikið, hvort vagn­arnir trufli aðra umferð og hvort rekst­ur­inn verði okkur ofviða. Allt lög­mætar spurn­ingar, en auð­séð er að í alþjóð­legu sam­hengi er Borg­ar­línu­hug­myndin kurt­eis og hóf­stillt. En hvað með neð­an­jarð­ar­lestir?“

Pawel Bartoszek, vara­borg­ar­full­trúi Við­reisnar, veltir þessu fyrir sér í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Tilefnið er dvöl hans í borg­inni Brescia á Norður-Ítalíu í sumar. Í borg­inni búa um 200 þús­und manns og þar er að finna nýjasta neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfi Evrópu, tekið í notkun árið 2013.

„Borgin er þannig svipuð að íbúa­tölu og flat­ar­máli og höf­uð­borg­ar­svæðið og þótt þétt­býlið í kring sé vit­an­lega eitt­hvað stærra þá er Brescia samt mun nær því að vera eins og Reykja­vík heldur en að vera ein­hver London eða París,“ skrifar Pawel. Þar sé að finna fjórtán kíló­metra langa neð­an­jarð­ar­lest­ar­línu með 17 stöðvum.

[adspot]

„Auðvitað yrðu sjálf­virkar neð­an­jarð­ar­lestir frá­bærar í landi grænnar orku, dýrs vinnu­afls og mis­jafnrar veðr­áttu,“ heldur hann áfram. Fólk gæti komið sér á næstu stöð og ferð­ast í hlýju og þæg­indum alla leið til vinnu eða skóla án þess á hafa áhyggjur af því að illa búnir smá­bílar tefji ferða­lagið í fyrsta snjó. „Ef ein­hver hefði verið nægi­lega hug­aður (eða sturl­aður) til að byggja neð­an­jarð­ar­lestir í Reykja­vík þá myndi fólk nota þær, vilja búa nálægt þeim, krefj­ast þess að þær gengju allan sól­ar­hring­inn og allar kosn­inga­bar­áttur snú­ast um hver myndi lofa því að lestin kæmi í sem flest hverfi sem fyrst.“

[links]Neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfið í Brescia kost­aði á sínum tíma um 900 millj­ónir evra, sem er um 130 millj­arðar króna. Það er svipuð upp­hæð og lögð er í sam­göngusátt­mál­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, bendir Pawel á. „Sam­göngusátt­mál­inn er bæði grænn og grár. Um helm­ingur fjár­muna hans fer í Borg­ar­línu en hinn helm­ingur í akvegi. Það er ákveðið jafn­vægi og auð­vitað skref í rétta átt. En við þurfum að halda áfram og við höfum varla val um annað en að verða enn grænni í fram­tíð­inni.“

Á atvinnu­svæði höf­uð­borg­ar­innar, suð­vest­ur­horn­inu, búa nú þegar um 300 þús­und manns. Þeim á bara eftir að fjölga. „Eigum við að leysa sam­göngur þessa svæðis ein­ungis með tví­breiðum vegum þar sem bannað er að hjóla og nið­ur­greiddum stræt­is­vögnum milli bens­ín­stöðva bæj­ar­fé­lag­anna á tveggja tíma fresti? Þurfum við ekki að hugsa þetta aðeins metn­að­ar­fyllra?“

Rómantík eða praktík?

Á fyrstu tveimur ára­tugum ald­ar­innar hefur neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfum í heim­inum fjölgað um 90 og eru orðin um 200 tals­ins. „Þannig að þrátt fyrir það sem sumir halda eru lestir ekki ein­hver úrelt tækni sem allar borgir eru að hverfa frá,“ skrifar Pawel. „Af og til hafa mögu­leikar á lestum á Íslandi verið rýndir af mis­miklum þunga og svarið hefur hingað til verið að lestir borgi sig ekki. En eftir því sem tækni fleygir fram og íbúum fjölgar kann að koma að því að svarið breyt­ist.“ Kannski sé draum­ur­inn um lest að ein­hverju leyti byggður á róm­an­tík „en þegar maður lendir í Keflavík, labbar fram hjá bíla­leigu­röð­inni, keyrir út af risa­bíla­stæði og brunar heim á bens­ín­bíl á tví­breiðum vegi, sam­ferða nán­ast öllum í sömu vél þá er eitt­hvað sem hvíslar að manni: „Það myndi nú stundum ekki drepa okkur að hugsa stórt“.“

Lest til Keflavíkur

Land­vernd hefur einnig nýverið bent á að vegna mik­illar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við ferðir fólks til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli ætti „alvar­lega“ að taka lest­ar­sam­göngur á þess­ari leið til skoð­unar. „Alvar­lega ætti að skoða að koma á raf­magns­lest frá Reykja­vík til Kefla­víkur sem myndi draga úr umferð einka­bíla og flug­rúta með til­heyr­andi beinni losun en einnig tölu­vert minna sliti á vegum sem einnig er upp­spretta los­unar og svifryks,“ sagði í umsögn sam­tak­anna um drög að stefnu og aðgerð­ar­á­ætlun um orku­skipti í flugi. Land­vernd bendir á að í þeim löndum sem við berum okkur saman við sé lögð áhersla á góðar almenn­ings­sam­göngur til og frá flug­völlum. „Hér á landi virð­ist meiri áhersla vera lögð á að gæta hags­muna einka­fyr­ir­tækja með hagn­að­ar­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi. Að mati Land­verndar ætti að skoða þennan þátt los­unar tengdu flugi mun betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár