Ríkið fjármagnar 87,5 prósent samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins

Hlutur rík­is­ins í fjár­mögnun Borg­ar­línu og ann­arra upp­bygg­ing­ar­verk­efna sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins nemur 87,5 pró­sentum. Upp­reiknað m.v. bygg­inga­vísi­tölu í júlí er hlutur rík­is­ins í kostn­að­ar­á­ætlun Borg­ar­línu 51,7 millj­arðar króna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er sem fyrr forvitinn um fjárfestingu hins opinbera í hágæða almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins er sem fyrr for­vit­inn um fjár­fest­ingu hins opin­bera í hágæða almenn­ings­sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Miðað við verð­lag í júlí síð­ast­liðnum er útlit fyrir að kostn­aður rík­is­ins vegna lagn­ingu Borg­ar­línu sam­kvæmt sam­göngusátt­mála rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verði 51,7 millj­arðar króna, sam­kvæmt skrif­legu svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­manni Mið­flokks­ins.

Sig­mundur Davíð lagði fram þing­lega fyr­ir­spurn um það hversu stóran hluta heild­ar­kostn­aðar vegna „svo­kall­aðrar borg­ar­línu“ ríkið myndi greiða þegar öllum áföngum verk­efn­is­ins yrði lokið og fékk það svar frá ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar að stofn­kostn­aður við þau verk­efnið sem ríkið og sveit­ar­fé­lög hefðu sam­mælst um að fjár­magna varð­andi Borg­ar­lín­una hefði á verð­lagi árs­ins 2019 verið áætl­aður 49,6 millj­arðar króna.

Með gerð sam­göngusátt­mál­ans var einnig ákveðið að setja 52,2 millj­arða króna í stofn­vega­fram­kvæmdir, 8,2 millj­arða í göngu- og hjóla­stíga, göngu­brýr og und­ir­göng og 7,2 millj­arða í bætta umferð­ar­stýr­ingu og sér­tækar örygg­is­að­gerðir. Alls fjall­aði heild­ar­á­ætl­unin um 120 millj­arða króna fjár­fest­ingu í bættum sam­göngu­innviðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fram til árs­ins 2033.

[adspot]

Í skrif­legu svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að sam­kvæmt fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­komu­lagi aðila sem kynnt var árið 2019 muni hlutur rík­is­ins verða 87,5 pró­sent af stofn­kostn­aði við fram­kvæmd sátt­mál­ans, þar með talið Borg­ar­lín­una.

„Næmi því hlutur rík­is­ins í þeirri fram­kvæmd um 43.400 millj. kr. á verð­lagi árs­ins 2019. Það sam­svarar lið­lega 51.700 millj. kr. á verð­lagi í júlí 2022 miðað við bygg­ing­ar­vísi­tölu,“ segir í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs.

Þegar fjár­mögnun sam­göngusátt­mál­ans var kynnt var boðað að ríkið myndi leggja 45 millj­arða til, sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 15 millj­arða og að svo yrðu 60 millj­arðar fjár­magn­aðir sér­stak­lega, meðal ann­ars með sölu Keldna­lands­ins og gjöldum á umferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ekki er þó búið að útfæra slíkar hug­myndir, en þær eru á hendi rík­is­ins og telja því inn í fram­lag rík­is­ins til sam­göngusátt­mál­ans.

Borgarlína byggist upp í áföngum næsta rúma áratuginn

Fyrsta lota Borg­ar­línu er í hönn­un­ar­ferli, en í þeirri lotu á að leggja borg­ar­línu­leið frá Ártún­höfða niður í mið­borg Reykja­vík­ur­borgar og þaðan í gegnum Vatns­mýri, yfir nýja brú yfir á Kárnes og upp að Hamra­borg í Kópavogi.

Fyrr í sumar voru tíma­á­ætl­anir verks­ins end­ur­skoð­að­aðar, og nú miða áætl­anir við að fram­kvæmda­lok fyrstu lotu verk­efn­is­ins verði tví­skipt og ljúki á árunum 2026 og 2027.

Er skýrsla með frum­drögum fyrstu lot­unnar var kynnt í upp­hafi síð­asta árs var reiknað með því að hægt yrði að taka fyrstu borg­ar­línu­leið­irnar í notkun árið 2025, sam­hliða heild­stæðri inn­leið­ingu nýs leiða­nets Strætó. Áður hafði verið svo jafn­vel verið rætt um að fyrsta lotan gæti verið tekin í notkun árið fyrir árs­lok 2024. Tíma­lín­unni hefur því seinkað nokkuð frá því sem lagt var upp með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár