Búast við lýðheilsulegum ávinningi af Borgarlínu

Þrátt fyrir að enn séu fjögur ár hið minnsta í að fyrsti áfangi Borg­ar­línu verði klár­aður að fullu er þegar búið að vinna svo­kallað lýð­heilsu­mat á væntum áhrifum fram­kvæmd­ar­innar á borg­ar­búa. Nið­ur­stöð­urnar benda til marg­vís­legs ávinn­ings.

Vænt áhrif Borgarlínu á lýðheilsu eru tekin til skoðunar í nýju lýðheilsumati sem kynnt var fyrir borgarfulltrúum í liðinni viku.
Vænt áhrif Borg­ar­línu á lýð­heilsu eru tekin til skoð­unar í nýju lýð­heilsum­ati sem kynnt var fyrir borg­ar­full­trúum í lið­inni viku. Mynd: Borgarlínan

Nið­ur­stöður lýð­heilsu­m­ats á fyrsta áfanga Borg­ar­línu benda til þess að lýð­heilsu­legur ávinn­ingur af betri almenn­ings­sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og auk­inni notkun þeirra geti verið marg­vís­legur, ef rétt er haldið á spöð­unum.

Lýð­heilsum­atið var kynnt fyrir borg­ar­ráði Reykja­víkur í lið­inni viku, en það var unnið fyrir Reykja­vík­ur­borg í sam­starfi við Betri sam­göngur, með styrk frá Lýð­heilsu­sjóði.

Þetta er fyrsta svo­kall­aða fram­sýna lýð­heilsum­atið sem fram­kvæmt er á Íslandi, sem þýðir að í fyrsta sinn er verið að gera til­raun til þess að meta lík­leg áhrif fram­kvæmdar eða áætl­ana sem eru í bígerð á lýð­heilsu.

Við gerð lýð­heilsu­m­ats­ins var horft var til þess hvernig fyrsti áfangi Borg­ar­línu gæti snert ólíka hópa. Skoðað var hvernig Borg­ar­lína gæti nýst hinum almenna full­orðna íbúa í Reykja­vík, börnum og ung­mennum, fötl­uðu fólki, eldri borg­urum, íbúum af erlendum upp­runa, auk þess sem skoðað var með sér­tækum hætti hvernig Borg­ar­lína gæti haft áhrif á starfs­fólk og nem­endur við HÍ og HR og starfs­menn Land­spít­ala.

Við matið var byggt á fyr­ir­liggj­andi þekk­ingu um áhrif almenn­ings­sam­gangna á lýð­heilsu, auk þess sem rýni­hópur sér­fræð­inga úr ólíkum áttum var skip­aður og við­töl einnig tekin við fatl­aða ein­stak­linga, íbúa af erlendum upp­runa og eldri borg­ara, auk ann­arra hags­muna­að­ila „til að fá sem breið­ustu mynd og fjöl­breyttar raddir að borð­inu“.

[adspot]

Mark­miðið með þess­ari vinnu var að benda á þætti sem geta hámarkað lýð­heilsu­legan ávinn­ing Borg­ar­línu og lág­markað nei­kvæð áhrif.

Í nið­ur­stöðukafla mats­ins segir að ljóst sé að aukin notkun á almenn­ings­sam­göngum hafi jákvæð áhrif á lík­am­lega heilsu og and­lega sömu­leiðis, en rann­sóknir hafi sýnt að virkur ferða­máti og notkun á almenn­ings­sam­göngum geti dregið úr ein­kennum kvíða, streitu og þung­lyndis.

Aukin ganga gæti komið í veg fyrir ótímabær dauðsföll

Hvað lík­am­legu heils­una varðar er einnig dregið fram að sú aukna ganga fólks sem fylgi auk­inni notkun almenn­ings­sam­gangna gæti haft í för með sér fækkun ótíma­bærra dauðs­falla.

Við það mat var stuðst við svo­kall­aða HEAT-reikni­vél (Health Economic Assess­ment Tool) frá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unni (WHO) og þær gefnu for­sendur að með fjölgun ferða með almenn­ings­sam­göngum úr 35 þús­und dag­legum ferðum árið 2019 upp í 53 þús­und dag­legar ferðir á fyrsta rekstr­ar­ári Borg­ar­línu muni íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að með­al­tali ganga í 2,3 mín­útur á dag til og frá almenn­ings­sam­göngum í stað 1,5 mín­útna áður.

„Við þessa aukn­ingu er, m.v. nið­ur­stöður reikni­vél­ar­innar, komið í veg fyrir 3 ótíma­bær dauðs­föll á fimm árum. Óháð öðrum áhrifa­þáttum, aðeins við þessa auknu göngu,“ segir í skýrsl­unni og það látið fylgja sög­unni að þessi þrjú ótíma­bæru dauðs­föll séu „verð­lögð“ á 1,8 millj­arða króna.

Einnig sýna nið­ur­stöður lýð­heilsu­m­ats­ins að góðar og aðgengi­legar sam­göngur sé mik­il­vægar upp á félags­lega sam­heldni og jöfnuð, að því leyti að þær geti komið í veg fyrir ein­angrun hópa á borð við eldri borg­ara, fatl­aðs fólks og íbúa af erlendum upp­runa.

Óvissa um hvernig myndi ganga að fá fólk til að breyta venjum

Fram kom við matið að umræðu­hópar voru óvissir um hvernig hvernig myndi ganga að fá fólk til þess að breyta sam­göngu­venjum sínum, þar sem sam­göngu­menn­ing væru mjög bílmiðuð á Íslandi. Hins vegar væri bæði vitað og áætlað að ákveðið hlut­fall sam­fé­lags­ins hefði áhuga á og myndi breyta sam­göngu­venjum sínum.

Því væri mik­il­vægt að hafa „nægt rými í huga við hönnun á stærri Borg­ar­línu­stöðvum fyrir fjöl­breytta þjón­ustu líkt og verslun, veit­inga­staði, lík­ams­rækt, póst­box og jafn­vel á sumum svæðum að huga að nálægð við leik- og grunn­skóla“ enda hefði komið fram í ferða­venjukönn­unum háskól­anna og Land­spít­ala að að helsta ástæða þess að fólk nýtti ekki almenn­ings­sam­göngur væri sú að það þyrfti að sinna öðrum erindum í ferð­inni.

Í lýð­heilsum­at­inu eru helstu nið­ur­stöð­urnar settar fram í formi ráð­legg­inga til þeirra sem koma að hönnun, fram­kvæmd og rekstri Borg­ar­lín­unnar. Á meðal þess sem þar segir er að mik­il­vægt sé að huga vel að aðgengi­leika bið­stöðva, og ekki bara bið­stöðv­anna sjálfra heldur leið­inni sem fólk þarf að feta þangað gang­andi.

Á borg­ar­línu­stöðv­unum sjálfum skipti svo góð upp­lýs­inga­gjöf miklu máli, auk góðrar lýs­ingar og hljóð­vistar. Þá segir einnig að stór skýli sem veiti skjól allt árið um kring séu mik­il­væg og sömu­leiðis að aðgengi vagna verði þrepa­laust.

Til við­bótar er nefnt að mik­ill kostur sé að hafa skanna til stað­fest­ingar greiðslu far­gjalds við alla inn­ganga í vagn­ana, fyrir fólk sem fer hægar um í vögn­unum eins og eldra fólk og fatlað fólk, auk þess sem þetta væri hent­ugt fyrir fólk með félags­fælni.

Nið­ur­stöður lýð­heilsu­m­ats­ins eru heilt yfir sagðar „end­ur­spegla mik­il­vægi þess að Borg­ar­línan sé fyrst og fremst hugsuð fyrir fólk, til að bæta sam­göngu­mögu­leika ásamt því að auka jöfnuð, sjálf­stæði, bæta lýð­heilsu og lífs­gæði almennt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár