Fyrst til að bjóða Betri samgöngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

Fyrst til að bjóða Betri samgöngum í kaffi
Vega­gerðin Bergþóra Þor­kels­dóttir er for­stjóri Vega­gerð­ar­innar. Mynd: Golli

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar seg­ist verða fyrir von­brigðum með að heyra að sú „klisja sé enn í gangi“ að stofn­unin sé gam­al­dags, en Heim­ildin sett­ist niður með henni og Bryndísi Frið­riks­dóttur, svæð­is­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hjá Vega­gerð­inni, til að ræða mál­efni sam­göngusátt­mál­ans og gefa þeim færi á að bregð­ast við gagn­rýni á Vega­gerð­ina sem fram kom í sam­tölum Heim­ild­ar­innar við fólk sem þekkir til vinnslu þeirra verk­efna sem eru nú í far­vatn­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Bergþóra seg­ist ekki upp­lifa ein­hvers­konar frekjukarla- eða bess­erviss­erakúltúr hjá Vega­gerð­inni, né heldur að stofn­unin eigi erfitt með að fóta sig í borg­ar­um­hverf­inu, en hún hefur verið for­stjóri frá árinu 2018. Bendir hún á að síðan þá hafi nýir fram­kvæmda­stjórar komið inn í allar stöður hjá stofn­un­inni og á sama tíma hafi algjör end­ur­nýjun orðið í yfir­stjórn­inni, fyrir utan að yfir­lög­fræð­ing­ur­inn sitji þar enn. Til við­bótar hafi um 40 pró­sent end­ur­nýjun orðið í starfs­manna­hópnum á sama tíma. 

…

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

Gamaldags Vegagerð sem vill vera aðal
ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.
Sjálfkeyrandi vagnar hafa ekkert í Borgarlínu
Jökull Sólberg Auðunsson
PistillBorgarlína

Jökull Sólberg Auðunsson

Sjálf­keyr­andi vagnar hafa ekk­ert í Borg­ar­línu

Jökull Sólberg ber saman Borg­ar­línu og sjálf­keyr­andi bif­reiðar. „Í mörgum til­fellum er sami hópur afar svart­sýnn á fjár­hags­mat Borg­ar­línu­verk­efn­is­ins og vill veðja á tækni sem er bók­staf­lega ekki til, hvað þá búin að sanna sig við þau skil­yrði sem við gerum kröfu um á næstu árum eftir því sem borgin þétt­ist og fólki fjölgar.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár