Landvernd vill lest til Keflavíkurflugvallar

Mikil losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á sér stað við ferðir fólks til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og „alvar­lega ætti að skoða“ að koma á raf­magns­lest á milli flug­vall­ar­ins og Reykja­víkur, segir Land­vernd.

Bílastæðafjöld við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Bíla­stæða­fjöld við Flugstöð Leifs Eiríks­sonar. Mynd: Af vefsíðu Isavia

„Alvar­lega ætti að skoða að koma á raf­magns­lest frá Reykja­vík til Kefla­víkur sem myndi draga úr umferð einka­bíla og flug­rúta með til­heyr­andi beinni losun en einnig tölu­vert minna sliti á vegum sem einnig er upp­spretta los­unar og svifryks.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Land­verndar um drög að stefnu og aðgerð­ar­á­ætlun um orku­skipti í flugi sem birt voru í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda nýverið. Land­vernd bendir á að enn sé tals­vert í að orku­skipti verði í flugi og því beri að huga að öðrum aðgerðum þar til þar að kemur.

[adspot]

„Það er löngu tíma­bært, og í raun skammar­legt, að Isavia hafi ekki tryggt Strætó gott aðgengi að flug­vall­ar­stæð­inu,“ segir enn­fremur í grein­ar­gerð­inni og er þar vísað í grein­ar­gerð stefnu­drag­anna þar sem segir að mik­il­vægt sé að sam­göngur til og frá flug­velli fylgi þeim orku­skiptum sem stefnt er að í flugi. Skil­greina skuli reglur um vist­vænar sam­göngur til og frá flug­velli sem miða að því að ein­ungis vist­vænum öku­tækjum sé heim­ill aðgangur á nær­svæði flug­stöðv­ar­innar á Kefla­vík­ur­flug­velli. Við vinnu væri hægt að horfa til dæmi erlendis frá, s.s. Noregi. „Meðal þess sem skoða mætti er að opna á aðgengi fyrir umhverf­is­væna stræt­is­vagna að flug­stöð­inni.“

Hagnaðarsjónarmið að leiðarljósi?

Land­vernd bendir á að í þeim löndum sem við berum okkur saman við er lögð áhersla á góðar almenn­ings­sam­göngur til og frá flug­völlum. „Hér á landi virð­ist meiri áhersla vera lögð á að gæta hags­muna einka­fyr­ir­tækja með hagn­að­ar­sjón­ar­mið að leið­ar­ljósi. Að mati Land­verndar ætti að skoða þennan þátt los­unar tengdu flugi mun betur.“

Í febr­úar 2021 sam­þykkti Alþingi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipa starfs­hóp sér­fræð­inga til að móta stefnu og aðgerð­ar­á­ætlun um orku­skipti í flugi á Íslandi.

Samgöngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra skip­aði starfs­hóp­inn í apríl 2021 en hann var skip­aður full­trúum þriggja ráðu­neyta, sem og full­trúum Sam­göngu­stofu og Isavia. Við vinnu starfs­hóps­ins voru haldnir fundir með helstu hags­muna­að­ilum í flugi hér á landi ásamt því sem rætt var við erlenda aðila.

Meðal þess sem lagt er til er að kanna mögu­leika á sam­starfi við fram­leið­endur nýrra flug­véla með það að mark­miði að Íslands verði vett­vangur próf­ana á nýrri tækni í flugi. Þá er einnig lagt til að unnið verði að því að allt inn­an­lands­flug veðri knúið með end­ur­nýj­an­legu elds­neyti fyrir árið 2040. Meðal ann­arra aðgerða er inn­viða­upp­bygg­ing fyrir end­ur­nýj­an­legt elds­neyti á flug­völlum, orku­sparn­aður í loftým­is­stjórnun og að átaks­verk­efni verði skil­greint innan Orku­sjóðs sem teng­ist orku­skiptum í flugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár