Svör ekki komin fram um hvernig tryggt verði að það „lokist ekki á allt hjá okkur“

Það verður nóg um að vera í sam­göngu­fram­kvæmdum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu næstu árin. Vega­gerðin vinnur nú að grein­ingum á því hvernig allir ferða­mátar eigi að kom­ast leiðar sinnar á fram­kvæmda­tím­anum, en hefur engin góð svör við því sem stendur.

Þessi mynd sýnir mismunandi áfanga Borgarlínu og þau þróunarsvæði í Reykjavík og Kópavogi sem eru undir í framkvæmdum á næstu árum.
Þessi mynd sýnir mis­mun­andi áfanga Borg­ar­línu og þau þró­un­ar­svæði í Reykja­vík og Kópavogi sem eru undir í fram­kvæmdum á næstu árum. Mynd: Úr glærukynningu af fundinum á morgun.

Ein af fyrstu fram­kvæmd­unum sem bein­línis tengj­ast Borg­ar­línu og íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ættu að verða varir við verður lík­lega Foss­vogs­brúin, en áformað er að vinna við fyll­ingar við brú­ar­endana í Naut­hóls­vík og á Kárnesi hefj­ist um mitt árið eða í haust og að farið verði í frek­ari fram­kvæmdir við brúnna á næsta ári.

Þetta er á meðal þess sem fram kom í máli Bryn­dísar Frið­riks­dóttur, svæð­is­stjóra höf­uð­borg­ar­svæðis Vega­gerð­ar­innar, sem hélt erindi um stöðu stofn­vega- og borg­ar­línu­verk­efna í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á fundi sem Vega­gerðin og Betri sam­göngur stóðu fyrir í morgun.

Sam­göngusátt­máli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er sann­kallað stór­á­tak í sam­göngu­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu næsta rúma ára­tug, en til upp­rifj­unar þá ætla ríkið og sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borga­svæð­inu að verja alls 120 millj­örðum króna í fram­kvæmdir fram til árs­ins 2033, þar 52,2 millj­örðum í stofn­vega­fram­kvæmdir og 49,6 millj­örðum í inn­viði Borg­ar­línu.

Fram kom í máli Bryn­dísar að borg­ar­línu­verk­efnið væri brátt að byrja í for­hönnun og að verið væri að horfa til þess þessa dag­ana hvernig ætti að skipta fyrsta áfanga þess – í hvaða röð eigi að umbreyta göt­unum þar sem Borg­ar­línan kemur til með að fara um.

Í þeirri ákvarð­ana­töku allri þarf að horfa til þess að ýmsar aðrar fram­kvæmdir verða í gangi á sama tíma, eins og Bryndís benti á. „Á sama tíma og við ætlum að vera að fram­kvæma Borg­ar­lín­una ætlum við líka að vera að fram­kvæma Sæbraut­ar­stokk­inn og gatna­mótin við Bústaða­veg­inn og hluta af Miklu­braut­ar­stokknum, teng­ing­una þarna upp á Snorra­braut, og við þurfum svo­lítið að sjá í gegnum það að það lok­ist ekki bara allt hjá okkur,“ sagði Bryndís.

„Stærsta mark­miðið okkar er að tryggja öryggi veg­far­enda og öryggi þeirra sem eru að vinna að þessum fram­kvæmdum,“ bætti hún við.

Í svari við spurn­ingu eftir að öllum erindum var lokin sagði hún að Vega­gerðin væri ekki komin með „neitt gott svar“ við því hvernig ætti að tryggja að umferð kæm­ist leiðar sinnar um höf­uð­borg­ar­svæðið á meðan þessum miklu fram­kvæmdum stendur. Hins vegar er unnið að grein­ingum í þeim efnum.

Brú fyrir vinstri beygju inn á Bústaðaveg

Bryndís sagði frá stöð­unni á vinnu við hönnun gatna­móta Reykja­nes­brautar og Bústaða­vegi. Hún sagði frá því að verið væri að skoða gamla lausn sem fæli í sér að setja vinstri beygj­una af Reykja­nes­braut inn á Bústaða­veg á brú. Með því móti yrði hægt að hafa hægri beygjur inn og út af Bústaða­veg­inum í frjálsu flæði og beina umferðin á Reykja­nes­braut­inni fengi frítt flæði – umferð­ar­ljósin myndu víkja.

[adspot]

Inn í þessa hönnun alla spilar svo einnig lega Borg­ar­línu með­fram Reykja­nes­braut­inni, en teng­ing Borg­ar­línu frá Mjódd í hinu nýju Voga­byggð er hluti af lotu 3 af fram­kvæmdum við Borg­ar­lín­una. Bæði er til skoð­unar að hafa akleið Borg­ar­lín­unnar fyrir miðju vegar, en einnig er horft til þess að hafa sér­rýmið í jaðri akveg­ar­ins og Elliða­ár­dals­ins.

Vega­gerðin býst við því að geta sýnt frekar á spilin hvað þessi marg­um­ræddu gatna­mót varðar á vor­mán­uðum, sam­kvæmt Bryndísi.

Mikill áhugi frá sveitarfélögum, háskólum, fjárfestum og almenningi

Bryndís sagði frá því í erindi sínu að nærri öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefðu haft mik­inn áhuga á því að flýta und­ir­bún­ingi borg­ar­línu­teng­inga inn til þeirra.

Einnig sagði Bryndís að hið sama gilti um bæði háskóla­sam­fé­lögin hjá HÍ og HR, og að báðir skólar væru mjög metn­að­ar­fullar áætl­anir um stoppi­stöðvar og eig­in­lega umbreyt­ingu á umhverf­inu við skól­ana, með teng­ingum Borg­ar­línu.

„Svo finnum við líka fyrir því að fjár­festar hafa verið að fjár­festa í lóðum á nálægum stöðum við Borg­ar­línu og hafa verið að kalla eftir því að sjá hvernig Borg­ar­línan er hugsuð í gegn þannig að þeir geti farið að und­ir­búa sína upp­bygg­ingu. Svo fáum við líka fyr­ir­spurnir frá íbúum sem vilja fá stoppi­stöð fyrir utan heim­ili sitt, svo áhug­inn er mjög mik­ill,“ sagði Bryndís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár