Fólk og mannlíf í forgangi í framtíðarsýn Háskóla Íslands

Háskóli Ísland og Reykja­vík­ur­borg hafa í sam­ein­ingu dregið upp mynd af svæði HÍ til fram­tíðar með til­liti til legu Borg­ar­línu. Suð­ur­gata breyt­ist úr hrað­braut í borg­ar­götu og gert er ráð fyrir að bíla­stæði fær­ist í mið­læg bíla­stæða­hús.

Teikning af mögulegri framtíðarsýn fyrir svæði Háskóla Íslands.
Teikning af mögu­legri fram­tíð­ar­sýn fyrir svæði Háskóla Íslands. Mynd: Teikning úr skýrslunni/JVST og Juurlink & Geluk

Háskóli Íslands og Reykja­vík­ur­borg hafa frá því síðla á síð­asta ári verið í sam­vinnu um að skapa heild­ar­sýn fyrir háskóla­svæðið og sam­þætt­ingu þess við fyr­ir­hug­aða Borg­ar­línu.

Skýrsla um þetta sam­vinnu­verk­efni var kynnt á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar í vik­unni og er þar sett fram mynd af háskóla­svæði fram­tíðar, þar sem öfl­ugar almenn­ings­sam­göngu­æðar hlykkja sig með­fram gömlum húsum og nýjum og um Suð­ur­götu, sem verður ekki lengur hrað­braut heldur borg­ar­gata með sér­rými fyrir almenn­ings­sam­göngur í miðju.

Í skýrsl­unni er stóra myndin til fram­tíðar dregin upp og teiknað upp hvar stöðvar fyrir Borg­ar­línu gætu verið, en gert er ráð fyrir einni við Þjóð­minja­safnið, annarri á milli VR og Árna­garðs og þeirri þriðju á milli Vís­inda­garða HÍ og Norræna húss­ins. Svo er einnig teiknað upp hvernig teng­ingar gætu verið yfir á heil­brigð­is­vís­inda­svið HÍ, í húsa­kynnum við Land­spít­al­ann.

Sæmund­ar­gata virð­ist heyra sög­unni til í þess­ari heild­ar­sýn til fram­tíðar, eða hið minnsta sá angi hennar sem liggur beint fyrir framan Aðal­bygg­ingu HÍ. Þar er teiknuð upp mynd af stækk­uðu friðlandi Vatns­mýrar og almenn­ings­garði með tjörnum og trjám inni í „skeif­unni“ fyrir framan Aðal­bygg­ing­una, eins og sjá má á skýr­ing­ar­mynd­inni hér að ofan.

Byggt yfir bílana

Athygli vekur að á þeim teikn­ingum sem settar eru fram í skýrsl­unni, sem unnin er af arki­tektum hjá JVST og Juurlink & Geluk, er lítið að sjá af bíla­stæðum á háskóla­svæð­inu og nándar nærri hver ein­asti reitur sem er í dag und­ir­lagður ókeypis bíla­stæðum er tek­inn undir þró­un­ar­reiti eða græn svæði.

[adspot]

Í skýrsl­unni er sett fram sú fram­tíð­ar­sýn hvað varðar bíla á svæði Háskóla Íslands að bíla­stæða­húsum verði komið fyrir á lyk­il­stöðum í hverf­inu, í hæfi­legri göngu­fjar­lægð frá áfanga­stað.

Suðurgatan úr hraðbraut í borgargötu sem sameinar háskólasvæðið

Í skýrsl­unni segir að Suð­ur­gatan verði end­ur­gerð og breytt úr hrað­braut í borg­ar­götu. Gengið er út frá því að gatan fari úr því að vera með tvær akreinir í hvora átt yfir í að vera með eina akrein fyrir almenna umferð í hvora átt og svo sér­rými fyrir Borg­ar­línu fyrir miðju.

„Breyttar for­sendur göt­unnar með auknu vægi grænna sam­gangna og minni áherslu á einka­bíl­inn kalla á sam­þættar lausnir umferðar, borg­ar­skipu­lags, gróð­urs, efn­is­með­ferðar á yfir­borði og hönn­un­ar­skil­mála húsa. Með til­komu Borg­ar­línu verður Suð­ur­gata mik­il­vægt hryggjar­stykki í heild­ar­skipu­lagi HÍ. Suð­ur­gata verður öruggt og aðlað­andi lyk­il­svæði á háskóla­svæð­inu sem stendur undir nafni sem fal­leg borg­ar­gata,“ segir í skýrsl­unni.

Verði eins og best gerist erlendis

Í skýrsl­unni segir að metn­aður skipu­lags­til­lög­unnar sé að „skapa heil­steypt háskóla­svæði sem jafn­ast á við fremstu háskóla­garða erlendis“ og að í stað „sam­an­safns stak­stæðra húsa umkringdum bíla­stæðum er lögð áhersla á að gera svæðið sjálf­bært, grænt og mann­vænt. Fólk og mann­líf verður í for­gangi.“

Hélt því fram að þetta væri ekki stefna Háskóla Íslands

Þegar rætt var um málið á fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs á mið­viku­dag­inn virð­ist hiti hafa hlaupið í umræð­urnar, ef marka má bókun Vigdísar Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins um málið.

Hún full­yrti í bókun sinni að þessar hug­myndir, sner­ust „ekk­ert um Háskóla Íslands heldur ein­ungis um stefnu meiri­hlut­ans í að þrengja að fjöl­skyldu­bílnum og koma hinni svoköll­uðu borg­ar­línu fyrir“ en hið rétta er raunar að þessi skýrsla er áfram­hald vinnu sem hefur staðið yfir árum saman á vegum Háskóla Íslands, um gagn­gera end­ur­hönnun háskóla­svæð­is­ins.

Skýrslu um umbreyt­ingu háskóla­svæð­is­ins frá 2019 má nálg­ast hér, en hún er unnin af sömu arki­tekta­stofum og gerðu skýrsl­una sem kynnt var fyrir borg­ar­full­trúum á mið­viku­dag.

Borg­ar­full­trú­inn Vigdís lýsti sig sömu­leiðis ósátta við að fá ekki svör við því hversu mikið væri áætlað að fækka þeim 2.000 bíla­stæðum sem eru í dag á háskól­ans og gagn­rýndi einnig að það væri lagt upp með að breyta skipu­lagi akandi umferðar á Suð­ur­götu og Sæmund­ar­götu. Kallaði þetta allt saman „dellu­stjórn­mál“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár