Garðabær og Hafnarfjörður kanna hvort unnt sé að flýta vinnu við Borgarlínu

Bæj­ar­stjórnir bæði Hafn­ar­fjarðar og Garða­bæjar hafa í vik­unni sam­þykkt að kanna hjá Betri sam­göngum og Vega­gerð­inni hvort mögu­legt sé að fara fyrr af stað með vinnu við frum­drög að borg­ar­línu­leið­inni sem tengja á Hafn­ar­fjörð og Reykja­vík.

Borgarlínuleiðin sem pólitíkin í Hafnarfirði og Garðabæ vill kanna hvort hægt sé að flýta undirbúningi á er sú sem hér sést í fjólubláum lit, á milli Fjarðar og Miklubrautar.
Borg­ar­línu­leiðin sem póli­tíkin í Hafn­ar­firði og Garðabæ vill kanna hvort hægt sé að flýta und­ir­bún­ingi á er sú sem hér sést í fjólu­bláum lit, á milli Fjarðar og Miklu­brautar. Mynd: Úr safni

Bæj­ar­stjórnir bæði Hafn­ar­fjarðar og Garða­bæjar hafa í vik­unni sam­þykkt til­lögur þess efnis að athugað verði hvort flýta megi vinnu frum­draga við svo­kall­aða borg­ar­línu­leið D, fjórðu lotu borg­ar­línu­verk­efn­is­ins, sem tengja á saman Reykja­vík og Hafn­ar­fjörð. Til­lög­urnar komu frá full­trúa Við­reisnar í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar og odd­vita Garða­bæj­ar­list­ans, sem er full­trúi Við­reisnar innan þess fram­boðs.

Í til­lög­unum, sem eru nær sam­hljóða, segir að ýmsar fram­kvæmdir í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins séu á eftir á ætlun og því „gæti skap­ast rými til að horfa til ann­arra liða í sátt­mála sem mætti ýta framar í tíma­línu,“ en ekki stendur til að borg­ar­línu­leið verði byrjuð að aka á milli Hafn­ar­fjarðar og Reykja­víkur fyrr en árið 2030 sam­kvæmt núver­andi fram­kvæmda­á­ætlun verk­efn­is­ins.

Samkvæmt þeirri tíma­á­ætlun borg­ar­línu­verk­efn­is­ins sem sett var fram í frum­drögum að fyrstu lotu Borg­ar­línu er þó horft til þess að und­ir­bún­ings­vinna við lotu 4 – leið­ina á milli Fjarðar í Hafn­ar­firði og Miklu­brautar, um Hamra­borg og Kringlu­mýr­ar­braut, hefj­ist strax á þessu ári. Fram­kvæmdir geti svo haf­ist árið 2026.

„Við Sara Dögg [Svan­hild­ar­dóttir] kollegi minn og bæj­ar­full­trúi okkar í Garðabæ lögðum þetta til,“ segir Jón Ingi Hákon­ar­son bæj­ar­full­trúi Við­reisnar í Hafn­ar­firði í sam­tali við Kjarnann, en hann seg­ist hafa fengið þau svör frá Vega­gerð­inni að lík­lega yrði ekki byrjað að vinna eig­in­leg frum­drög að leið­inni fyrr en um miðjan ára­tug­inn.

„Með því að þrýsta á gerð frum­draga núna árið 2021 eða 2022 er hægt að byrja 4-5 árum fyrr á leið D (gefið að fjár­magn fáist),“ segir í grein­ar­gerð með til­lög­unum tveimur.

„Besti Miðflokksmaðurinn“ studdi tillöguna í Hafnarfirði

Jón Ingi segir líf­legar umræður hafa spunn­ist um til­lög­una á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í Hafn­ar­firði á mið­viku­dag og að end­ingu hafi allir bæj­ar­full­trúar lýst sig sam­mála því að leita til Betri sam­gangna ohf. og Vega­gerð­ar­innar með þessa fyr­ir­spurn.

„Það voru allir með, meira að segja Mið­flokk­ur­inn, sem er bara frá­bært,“ segir Jón Ingi, en þess skal getið að full­trúi flokks­ins lét bóka að sam­þykki sitt væri með þeim fyr­ir­vara að Borg­ar­línan væri of dýr leið og hægt væri að fara ódýr­ari leiðir. „Við erum með besta Mið­flokks­mann­inn,“ segir Jón Ingi um Sigurð Þ. Ragn­ars­son félaga sinn í bæj­ar­stjórn, sem margir þekkja sem veð­ur­frétta­mann.

„Það var ánægju­legt hvað fólk var sam­mála þessu og vildi sam­ein­ast um þetta. Það finnst mér frá­bært og segir manni það að borg­ar­línu­verk­efnið hefur miklu meiri stuðn­ing en kannski virð­ist á yfir­borð­inu,“ segir Jón Ingi, sem lætur þess einnig getið að honum þyki ágætt að ekki séu allir sam­mála um verk­efnið.

„Þá þurfum við bara að hafa meira fyrir því að rök­styðja okkar mál. Það er gott að hafa ein­hvern sem er mál­efna­lega andsnú­inn.“

Tækniskólinn breytir myndinni fyrir Hafnarfjörð

Jón Ingi segir að á frekar stuttum tíma hafi orðið tölu­vert miklar breyt­ingar á mynstr­inu í sam­fé­lag­inu. „Allt í einu er stærsti fram­halds­skóli lands­ins, Tækni­skól­inn, að öllum lík­indum að koma í Hafn­ar­fjörð og þá viljum við að Borg­ar­línan verði fyrr til­búin þar heldur en ella,“ segir Jón Ingi við blaða­mann.

[adspot]

Hann segir skipta máli að það liggi fyrir fyrr en seinna hvernig lega borg­ar­línu­leið­anna verði útfærð og svo sé líka hægt að hafa frum­drögin klár, þannig að mögu­lega yrði hægt að byrja fyrr á fram­kvæmda­hlut­anum en áætlað er.

„Borg­ar­línan er skipu­lags­mál og hvernig við skipu­leggjum íbúa­byggð og hvernig við skipu­leggjum þjón­ustu í kringum áhrifa­svæði borg­ar­lín­unnar skiptir svo miklu máli,“ segir Jón Ingi.

Hefur fengið þau svör að tímalínur verkefna geti hnikast til

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir bæj­ar­full­trúi í Garðabæ segir við Kjarnann að það skipti máli að sveit­ar­fé­lögin séu öll „á tánum“ gagn­vart borg­ar­línu­verk­efn­inu. „Það er gríð­ar­lega mikil ábyrgð falin í hverju sveit­ar­fé­lagi fyrir sig á að koma þessu verk­efni hratt og örugg­lega til fram­kvæmda,“ segir Sara Dögg.

Sara Dögg segir að hún hafi setið fundi með for­svars­mönnum Betri sam­gangna og Vega­gerðar þar sem fram hafi komið að „hægt sé að hafa áhrif á tíma­lín­una“ innan sam­göngusátt­mál­ans ef upp komi seink­anir á öðrum fram­kvæmdum innan sam­göngusátt­mál­ans. Hún nefnir að fram­kvæmdir á borð við gatna­mót Bústaða­vegar og Reykja­nes­brautar séu á eftir áætlun og fleiri verk­efni sömu­leiðis.

Óviss með stokk á Hafnarfjarðarvegi

Hún segir að henni skilj­ist að for­senda þess að Garðabær sé með í borg­ar­línu­verk­efn­inu sé að Hafn­ar­fjarð­ar­vegur verði lagður í stokk þar sem hann sker sig í gegnum miðbæ Garða­bæjar, en lýsir sjálf yfir efa­semdum um þær fyr­ir­ætl­anir.

Áætlunin byggi á til­lögu frá 2016 og síðan þá hafi lítil umræða verið í póli­tík­inni í Garðabæ um hvort stokkur sé eina leiðin. Fram­kvæmdin við stokk­inn er ein af mörgum í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem sveit­ar­fé­lögin og ríkið und­ir­rit­uðu árið 2019.

„Ég hef talað við fólk sem telur að stokkur sé algjör óþarfi,“ segir Sara Dögg, sem segir að áhuga­vert væri að fá upp for­send­urnar að baki lagn­ingu umferð­ar­stokks­ins, svo sem ábata­mat og mat á umhverf­is­á­hrifum út frá hávaða og öðru.

„Eftir því sem maður fer að garfa meira í þessu þá finnur maður að það skiptir miklu máli að sveit­ar­fé­lögin séu að vakta verk­efnið og halli sér ekki bara aftur og hugsi að verið sé að vinna verkið ann­ars staðar,“ segir Sara Dögg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár