Bíllausum götum í London mun fjölga

Borg­ar­yf­ir­völd í London ætla að loka stórum svæðum fyrir bíla­um­ferð í þeirri við­leitni að tryggja öryggi og bæta lýð­heilsu borg­arar­anna. Rann­sóknir sýna að mengun er mögu­lega stór áhættu­þáttur þegar kemur að alvar­leika veik­inda af COVID-19 og dauðs­föllum.

Heiðskírt yfir London í lok mars.
Heið­skírt yfir London í lok mars. Mynd: EPA

Yfirvöld margra borga ætla að bæta aðstöðu gang­andi og hjólandi veg­far­enda í kjöl­far far­ald­urs COVID-19 til að draga úr loft­mengun og til að hvetja borg­ar­ana til að hreyfa sig meira. Stór svæði í London verða lokuð fyrir umferð bíla þegar tak­mörk­unum verður aflétt í Bret­landi. Borg­ar­stjór­inn Sadiq Khan segir þetta gert til að auka öryggi þeirra sem kjósa að ganga og hjóla um borg­ina.

Í frétt breska blaðs­ins Guardian um málið segir að fram­tak Khans sé á heims­mæli­kvarða. London sé með því orðin leið­andi þegar kemur að því að helga stór svæði gang­andi og hjólandi. Aðeins þeim sem velja þann ferða­máta sem og stræt­is­vögnum verður heim­ilt að fara inn á aðal­götur á ákveðnum svæðum mið­borg­ar­innar.

Ákvörð­unin er tekin til að reyna að tryggja að fólk geti haldið fjar­lægð sín á milli í stað þess að þyrp­ast í almenn­ings­vagna og neð­an­jarð­ar­lestir. Þá vilja borg­ar­yf­ir­völd ekki að stór­kost­legar umferða­teppur skap­ist með til­heyr­andi loft­mengun þegar London fer að fær­ast í samt horf eftir aflétt­ingu tak­mark­ana.

[adspot]

Þegar Khan til­kynnti um yfir­vof­andi breyt­ingar sagði hann að allir Lund­úna­búar yrðu að leggj­ast á eitt svo að far­ald­ur­inn blossi ekki upp aftur. „Þetta þýðir að við verðum að halda fjölda þeirra sem nota almenn­ings­sam­göngur í eins miklu lág­marki og mögu­legt er. Og við sjáum ekki fyrir okkur að þeir sem áður fóru með almenn­ings­sam­göngum fari allir í bíla því þá myndu göt­urnar stífl­ast þegar í stað og loft­mengun aukast.“

Vinna við nauð­syn­legar fram­kvæmdir á götum eru þegar hafnar og á að vera lokið innan sex vikna.

Khan sagði að til þess­ara aðgerða væri nauð­syn­legt að grípa til að auka öryggi veg­far­enda í borg­inni og til að auka sam­keppn­is­hæfni borg­ar­innar. Ekkert annað væri í stöð­unni en að hraða breyt­ingum sem miði að því að frá­taka götur Lundúna fyrir fólk, eins og hann orð­aði það. „Með því að tryggja að bati borg­ar­innar okkar verði vist­vænn þá munum við á sama tíma takast á við loft­mengun sem er lífs­nauð­syn­legt svo að einn lýð­heilsu­vandi taki við af öðrum.“

Borg­ar­stjór­inn sagð­ist gera sér grein fyrir því að skrefið yrði stórt fyrir suma Lund­úna­búa. „Þetta þýðir að við þurfum að end­ur­hugsa hvernig við viljum haga lífi okkar í þess­ari borg. Og þetta verður ekki ein­falt í fram­kvæmd.“ Lofaði hann að gefa sig allan í það að fræða íbú­ana um hvert skref.

Víða um heim eru borgir að taka svipuð skref. Þær ætla að nota tæki­færið í kjöl­far útgöngu- og sam­komu­banna til að end­ur­hugsa borg­ar­skipu­lagið með til­liti til ferða­laga fólks. Yfirvöld í Mílanó hafa tekið mjög metn­að­ar­full skref í því að auð­velda aðgengi gang­andi og hjólandi. Fleiri kíló­metrar af götum munu fá nýtt hlut­verk þegar í sumar. Í París hafa yfir­völd ákveðið að setja mikla fjár­muni í hjóla­stíga sem margir munu fylgja leiðum neð­an­jarð­ar­lesta og þannig verða val­kostur við almenn­ings­sam­göngur.

Í Bogotá, höf­uð­borg Kólumbíu, verða götur sem hingað til hafa verið helg­aðar hjólandi umferð einn dag í viku alfarið breytt í hjóla­stíga. Þá verða einnig lagðir fleiri kíló­metrar af nýjum stígum til að draga úr fjölda þeirra sem hingað til hafa notað almenn­ings­sam­göngur.

Síðustu vikur og mán­uði hefur glögg­lega komið í ljós hversu miklu munar um bíla­um­ferð borga þegar kemur að loft­mengun. Loftgæði í London hafa auk­ist gríð­ar­lega og mengun minnkað um 50 pró­sent á helstu götum og gatna­mótum. Khan greip þetta á lofti og sagði mik­il­vægt að þetta yrði ekki tíma­bundið. „Okkar helsta áskorun [eftir far­ald­ur­inn] verður að minnka mengun til lang­frama.“

Nið­ur­stöður rann­sókna á 66 svæðum á Ítalíu, Spáni, Frakk­landi og Þýska­landi sýna að 78 pró­sent allra þeirra sem lét­ust í far­aldr­inum voru frá fimm svæðum þar sem mengun er sér­lega mikil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár