Niðurstaðan vafðist ekki fyrir Þorvarði. Fullyrðingar um laka fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar væru algjörlega úr lausu lofti gripnar. Staðan væri í raun þveröfug, borgin stæði fjárhagslega best allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þorvarður kveður þá sem halda öðru fram fara með vísvitandi ósannindi eða sýna af sér mjög yfirgripsmikla vannþekkingu. Hvorugt væri gott segir hann með réttu. Það er eins gott að þessi fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga fari þá með rétt mál.
[links]Þorvarður birtir m.a. tölulegan samanburð þar sem hann ber saman skuldahlutfall sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu árið 2020. Bornar séu saman tölur úr A hluta ársreikninga þ.e. borgarsjóðs og bæjarsjóða. B hluta reikningarnir [reikningar sjálfstæðra bæjarfyrirtækja] séu ekki bornir saman vegna þess að flestar stofnanirnar og fyrirtækin séu með sjálfbæran rekstur og afli tekna sem duga fyrir kostnaði, m.a. greiðslubyrði lána (sic).
Hann kveður skuldahlutfallið, þ.e. hlutfall milli skulda og heildartekna ársins, en þar er miðað við að hlutfallið fari ekki yfir 150%. Skuldahlutfallið sýni hlutfall skulda og skuldbindinga af heildartekjum A-hluta sveitarfélaga. Þarna er framkvæmdastjórinn fyrrverandi heldur betur á villigötum. Í reglugerð þar um segir að heildarskuldir og skuldbindingar [A- og B-hluta] í reikningsskilum skuli ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Um þetta ríkir hvergi neinn ágreiningur.
Því miður er Þorvarður ekki sá eini sem hefur notað þessa framsetningu. Aðrir hafa gert það í blekkingarskyni. En ekki ætla ég að væna Þorvarð Hjaltason um slíkt. Spurningin er hvort hann biðst nú ekki velvirðingar á stóryrðum sínum.
[adspot]Ársreikningar Reykjavíkurborgar eru ekki samanburðarhæfir við reikninga flestra eða allra annarra sveitarfélaga nema skuldir sem borgin hefur stofnað til til að fjármagna félagslegt húsnæði sé tekið með þótt um það sé sérstakt félag í eigu borgarinnar. Ég gerði það mér til gamans að reikna út skuldahlutfall A hluta Reykjavíkurborgar, en að viðbættum skuldum Félagsbústaða og að frádregnum „tekjum“ sem Félagsbústaðir hafa af svonefndri „matsbreytingu fjárfestingaeigna“. Þetta gerði ég vegna þess að það sem borgin nefnir „matsbreyting fjárfestingaeigna“ (sem eru raunar félagslegar íbúðir) getur ekki talist vera reglulegar tekjur og fyrirtækið er hvorki með sjálfbæran rekstur né tekjur sem duga fyrir kostnaði, m.a. greiðslubyrði lána, svo vísað sé til orða Þorvarðar. Skuldahlutfall Reykjavíkurborgar kveður Þorvarður vera 96%. Ef réttmætur samanburður er notaður er skuldahlutfall borgarinnar þannig ekki 96%, heldur 131% og fer hratt versnandi. Stefnir raunar þráðbeint upp fyrir það sem lög leyfa.
Höfundur er löggiltur endurskoðandi og hæstaréttarlögmaður.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir