Páll fer fram gegn Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum

Páll Magn­ús­son fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks mun leiða lista bæj­ar­mála­fé­lags­ins Fyrir Heimaey í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Íris Róberts­dóttir bæj­ar­stjóri verður áfram bæj­ar­stjóra­efni fram­boðs­ins.

Páll Magnússon skipar efsta sætið á lista Fyrir Heimaey í maí.
Páll Magn­ús­son skipar efsta sætið á lista Fyrir Heimaey í maí. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, mun leiða lista bæj­ar­mála­fé­lags­ins Fyrir Heimaey í Vest­manna­eyjum í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Frá þessu segir Páll í færslu á Facebook í kvöld.

Fyrir Heimaey myndar í dag meiri­hluta í bæj­ar­stjórn í Vest­manna­eyjum ásamt Eyja­list­anum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í minni­hluta. Páll studdi ekki fram­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Eyjum fyrir síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og fékk bágt fyrir frá sjálf­stæð­is­mönnum í Vest­manna­eyjum í kjöl­farið.

Íris Róberts­dóttir bæj­ar­stjóri verður bæj­ar­stjóra­efni Fyrir Heimaey þrátt fyrir að Páll leiði list­ann. Í færslu Páls kemur fram að kjör­nefnd bæj­ar­mála­fé­lags­ins og Írisi hafi þótt að best færi á því að odd­viti list­ans og bæj­ar­stjóra­efnið væru ekki einn og sami ein­stak­ling­ur­inn. Því sé sá háttur hafður á að hann leiði list­ann.

„Hvað mig varðar er ég þakk­látur og stoltur af því að vera treyst fyrir þessu verk­efni og mun leggja mig allan fram um að gera góðan bæ enn betri. Reynsla mín og þekk­ing úr stjórn­mál­unum mun vænt­an­lega ekki síst nýt­ast í sam­skiptum og hags­muna­gæslu bæj­ar­ins gagn­vart rík­is­vald­inu. Auk þess hef ég langa reynslu af rekstri stórra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja - bæði í einka­geir­anum og hinum opin­bera,“ segir Páll í færslu sinni.

[adspot]

Hann segir að sem Eyja­maður og fyrsti þing­maður Suð­ur­kjör­dæmis um fimm ára skeið hafi han fylgst býsna grant með góðri frammi­stöðu bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans á því kjör­tíma­bili sem nú er að líða undir lok.

„Árang­ur­inn hefur verið aðdá­un­ar­verður - ekki síst þegar höfð eru í huga utan­að­kom­andi áföll á borð við loðnu­brest tvö ár í röð og covid-far­aldur. Ég vil gjarnan stuðla að því að þetta góða starf haldi áfram undir öruggri for­ystu bæj­ar­stjór­ans.“ skrifar Páll.

Vonast til að hægt verði að laga klofninginn

Undir lok færslu sinnar svarar hann síðan þeirri spurn­ingu, hvort hann sé hættur að vera sjálf­stæð­is­maður, í ljósi þess­ara vend­inga.

„Svarið við þeirri spurn­ingu er nei. Ég styð Sjálf­stæð­is­flokk­inn áfram á lands­vísu þótt sjálf­stæð­is­mönnum í Vest­manna­eyjum hafi ekki borið gæfa til að laga þann klofn­ing sem hér varð 2018. Vonandi kemur að því fyrr en síðar,“ skrifar Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár