Fylgi Sjálfstæðisflokks í borginni dregst mikið saman og Samfylkingin mælist stærst

Vinstri græn næstum tvö­falda fylgi sitt í Reykja­vík sam­kvæmt nýrri könnun og myndu bæta við sig borg­ar­full­trúa á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks. Allir flokk­arnir í meiri­hlut­anum bæta við sig fylgi en allir flokkar í minni­hluta utan Sós­í­alista­flokks tapa fylgi.

Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík getur vel við unað. Allir flokkar innan hans hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjörtímabilinu. Næst verður kosið í borginni eftir rúmt ár, 2022.
Borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn í Reykja­vík getur vel við unað. Allir flokkar innan hans hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Næst verður kosið í borg­inni eftir rúmt ár, 2022. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin mælist með mest fylgi allra flokka í Reykja­vík, sam­kvæmt nýrri könnun Gallup sem Frétta­blaðið greinir frá. Borg­ar­stjórn­ar­flokkur flokks­ins mælist með 26,4 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni sem er rétt yfir kjör­fylgi hans, en Sam­fylk­ingin fékk 25,9 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir síð­ustu kosn­ingar með 30,8 pró­sent fylgi, hefur tapað miklu. Fylgi hans mælist nú 25,2 pró­sent eða 5,6 pró­sentu­stigum minna en 2018.

Allir flokk­arnir fjórir – Sam­fylk­ing, Viðreisn, Píratar og Vinstri græn – sem mynda meiri­hluta í Reykja­vík undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra hafa bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Píratar hafa bætt við sig 2,8 pró­sentu­stigum og mæl­ast nú þriðji stærsti flokkur borg­ar­innar með 10,5 pró­sent fylgi. Viðreisn stendur nokkurn veg­inn í stað og mælist með 8,9 pró­sent stuðn­ing. En mesta breyt­ingin er á fylgi Vinstri grænna, sem biðu afhroð í kosn­ing­unum 2018 og fengu þá aðeins 4,6 pró­sent atkvæða. Fylgi flokks­ins Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nú mælist 8,9 pró­sent og því hefur hann nálægt tvö­faldað fylgi sitt það sem af er kjör­tíma­bili.

Allir nema einn í minnihluta tapa fylgi

Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem vann mik­inn kosn­inga­sigur 2018, heldur sínu fylgi og mælist með 6,6 pró­sent stuðn­ing. Mið­flokk­ur­inn hefur hins vegar farið úr 6,1 í 4,5 pró­sent á meðan að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem náði ekki inn manni í Reykja­vík í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með 4,3 pró­sent fylgi.

[adspot]Flokkur fólks­ins, sem er með einn borg­ar­full­trúa sem stendur eftir að hafa fengið 4,3 pró­sent árið 2018, mælist nú með þrjú pró­sent fylgi og næði ekki manni inn.

Ef nið­ur­staða könn­unar Gallup yrði það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum myndi það þýða að Vinstri græn myndu bæta við sig einum borg­ar­full­trúa á kostnað Sjálf­stæð­is­flokks og þar með styrkja meiri­hlut­ann um einn borg­ar­full­trúa, og fara með hann upp í 13 af 23.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ætti sömu­leiðis end­ur­komu í borg­ar­stjórn með einn borg­ar­full­trúa á kostnað Flokks fólks­ins.

Miklar sviptingar í síðustu kosningum

Síðustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fóru fram 26. maí 2018. Alls náðu átta flokkar kjöri og höfðu aldrei verið fleiri. Sitjandi meiri­hluti féll og eng­inn aug­ljós meiri­hluti var til staðar til að að taka við. Sá sem það gerði sam­an­stóð, líkt og áður sagði, af Sam­fylk­ingu, Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum.

Ein allra áhuga­verð­asta nið­ur­staða kosn­ing­anna var sú að konur urðu í miklum meiri­hluta í Reykja­vík næsta kjör­tíma­bil. Alls eru 15 þeirra 23 borg­ar­full­trúa sem kjörnir voru í kosn­ing­unum konur. Og sex þeirra átta fram­boða sem náðu kjöri eru leidd af konum.

Einungis stærstu flokk­arnir tveir, flokk­arnir sem gerðu til­kall til borg­ar­stjóra­stóls­ins í krafti stærðar sinnar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing, voru leiddir af körlum. Þá voru tveir fram­bjóð­endur sem fæddir eru í öðru landi kjörnir í borg­ar­stjórn og nýr yngsti borg­ar­full­trúi sög­unnar er af blönd­uðum upp­runa.

Næst verður kosið í Reykja­vík og öðrum sveit­ar­fé­lögum lands­ins eftir rúmt ár, 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarstjórnarkosningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár