Kallar sigurvegara í prófkjöri Sjálfstæðisflokks í Mosfellsbæ trúða og segir sig úr flokknum

Fram­bjóð­andi sem sótt­ist eftir þriðja sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ segir sig­ur­veg­ara próf­kjörs­ins hafa smalað atkvæðum. Hún hefur sagt skilið við flokk­inn – „Ég þarf ekki lengur að starfa með þessum tveimur trúðum.“

Kristín Ýr Pálmarsdóttir, sem sóttist eftir 3. sæti Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri flokksins í Mosfellsbæ, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir sigurvegara í prófkjörinu hafa smalað atkvæðum.
Kristín Ýr Pálm­ars­dóttir, sem sótt­ist eftir 3. sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í próf­kjöri flokks­ins í Mos­fellsbæ, hefur sagt sig úr flokknum. Hún segir sig­ur­veg­ara í próf­kjör­inu hafa smalað atkvæðum. Mynd: Aðsend

Ásgeir Sveins­son sigr­aði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ sem fram fór í gær. Ásgeir hlaut 697 atkvæði eða 69% gildra atkvæða þegar öll atkvæði höfðu verið talin. Í öðru sæti var Jana Katrín Knúts­dóttir og Rúnar Bragi Guð­laugs­son hafn­aði í þriðja.

Kristín Ýr Pálm­ars­dóttir, sem sótt­ist eftir þriðja sæti á lista flokks­ins í bænum, segir Ásgeir, Rúnar og fleiri hafa smalað atkvæðum. Í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi þegar úrslit voru kunn segir hún að fólk sem láti ekki kjósa sig af eigin verð­leikum heldi smali fólki í kringum sig sé með minni­mátt­ar­kennd. Slíkt fólk er ekki leið­togar í hennar huga. Kristín er vara­bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Mos­fellsbæ en hefur nú sagt sig úr flokknum. „Ég er búin að segja síðan í nóv­em­ber að svona yrðu úrslitin við mitt fólk eftir að hafa unnið með þeim í 4 ár,“ segir Kristín í færslu sinni.

Kolbrún G. Þor­steins­dóttir, sem sótt­ist eftir odd­vita­sæti í próf­kjör­inu, segir í athuga­semd við færslu Krist­ínar að hún ætli ekki að kjósa flokk­inn í vor. Kolbrún hafn­aði í fjórða sæti í próf­kjör­inu en hún hefur setið í bæj­ar­stjórn frá 2014.

Kristín segir það jákvæða sem kom út úr nið­ur­stöðu próf­kjörs­ins sé að hún þurfi ekki lengur að „starfa með þessum tveimur trúðum“ og á hún þá að öllum lík­indum við Ásgeir sem varð í fyrsta sæti og Rúnar Braga Guð­laugs­son sem varð í þriðja sæti.

Haraldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri í Mos­fellsbæ, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu í bæj­ar­stjórn. Eftir úrslit próf­kjörs­ins í gær er ljóst að Ásgeir, sem er bæj­ar­full­trúi í Mos­fellsbæ, for­maður bæj­ar­ráðs og skipu­lags­nefndar, verður bæj­ar­stjóra­efni flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor.

Úrslit prófkjörsins voru þessi:

Í fyrsta sæti er Ásgeir Sveins­son með 697 atkvæði með 69% gildra atkvæða.

Í öðru sæti er Jana Katrín Knúts­dóttir með 380 atkvæði í 1. – 2. sæti eða 37,6% gildra atkvæða

Í þriðja sæti er Rúnar Bragi Guð­laugs­son með 429 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 3. sæti eða 42,5% gildra atkvæða.

Í fjórða sæti er Kolbrún G. Þor­steins­dóttir með 412 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 4. sæti eða 40,8% gildra atkvæða.

Í fimmta sæti er Hjörtur Örn Arnarson með 477 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 5. sæti eða 47,2% gildra atkvæða.

Í sjötta sæti er Arna Haga­líns­dóttir með 437 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 6. sæti eða 43,3% gildra atkvæða.

Í sjö­unda sæti er Hilmar Stef­áns­son með 497 atkvæði sam­an­lagt í 1. – 7. sæti eða 49,2% gildra atkvæða.

Alls greiddu 1.044 atkvæði í próf­kjör­inu. Gild atkvæði eru 1.010. Auð og ógild atkvæði eru 34.

Uppfært 7. febr­úar: Í gær­kvöldi, sunnu­dags­kvöld, virt­ist sem færsla Krist­ínar hefði verið fjar­lægð af Facebook en svo er ekki. Færslan er opin og öllum aðgengi­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár