Bæjarstjóri Mosfellsbæjar gefur ekki áfram kost á sér

Haraldur Sverr­is­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks sem hefur verið bæj­ar­stjóri í Mos­fellsbæ frá árinu 2007, verður ekki í fram­boði í sveit­ar­fé­lag­inu í kosn­ing­unum í vor.

Haraldur Sverrisson.
Haraldur Sverr­is­son.

Haraldur Sverr­is­son, bæj­ar­stjóri í Mos­fellsbæ, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áfram­hald­andi setu í bæj­ar­stjórn við sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar sem haldnar verða í maí á næsta ári.

Hann greindi frá þessu á fundi full­trúa­ráðs Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Mos­fellsbæ í gær­kvöldi en Haraldur er odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Mos­fellsbæ og hefur verið bæj­ar­stjóri frá árinu 2007.

[adspot]Alls hefur hann setið í bæj­ar­stjórn frá árinu 2002 og var vara­bæj­ar­full­trúi á árunum 1998 til 2002.

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir Haraldur að hann hafi verið búinn að hugsa með sér að þetta yrði síð­asta kjör­tíma­bil hans. „Ég hef verið bæj­ar­stjóri frá árinu 2007 sem er lengst allra sem gengt hafa þessu emb­ætti í Mos­fellsbæ. Á þessum tíma hefur íbúum fjölgað um helm­ing og þó ég segi sjálfur frá hefur alveg ótrú­leg upp­bygg­ing átt sér stað hér á umliðnum árum.“

Hann seg­ist muna gegna starfi bæj­ar­stjóra af trú­mennsku þar til í vor þegar kjör­tíma­bil­inu lýkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár